Bændablaðið - 10.01.2013, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 20132
Hinn 23. nóvember síðastlið-
inn staðfesti atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra verklags-
reglur Bændasamtaka Íslands
um ráðstöfun fjár vegna ullar-
nýtingar. Reglurnar voru birtar
í Stjórnartíðindum sama dag.
Fjármunum til ullarnýtingar
skal ráðstafað þannig að að
minnsta kosti 84% skulu greið-
ast beint til bænda. Skal fjár-
hæðinni deilt niður hlutfallslega
eftir gæðum á hvert kíló hreinnar
ullar miðað við alla innlagða ull
á tímabilinu 1. nóvember – 31.
október samkvæmt verðskrá
sem Bændasamtök Íslands hafa
útbúið og verður birt á vefsíðu
samtakanna.
Í 1. mgr. 6. gr. segir að
Bændasamtökin skuli fyrir 1. mars
ár hvert ljúka uppgjöri gagnvart
seljendum ullar. Bændasamtökin
munu því sjá um að greiða út bein-
greiðslurnar til bænda sem áður
voru inni í verðskrá ullarkaupanda
(Ístex). Stærsti hluti greiðslna til
bænda mun því nú koma beint frá
Bændasamtökunum en aðeins hluti
þeirra frá kaupendum ullar.
Að því er greiðslufyrirkomulag
Bændasamtakanna á greiðslum
fyrir ullarnýtingu er gert ráð fyrir
að ein greiðsla verði greidd þegar
nóvember-desember framleiðslan
er komin inn, eigi síðar en 20. mars
2013. Síðan verði önnur greiðsla
framkvæmd þegar janúar-mars
framleiðslan er komin inn, eigi
síðar en 1. júní 2013. Greidd verða
80% af áætluðu framlagi á kg ullar
sem metið er á grundvelli þeirra
fjármuna sem eru til ráðstöfunar
og áætlaðu framleiðslumagni, Í lok
framleiðsluársins er ein uppgjörs-
greiðsla þegar öll framleiðslan er
komin inn. Í lok nóvember 2013.
verður síðan framkvæmt upp-
gjör með svipuðum hætti og gert
er gagnvart gæðastýringarálagi.
Þá mun koma í ljós hver verður
endanleg greiðsla á framleitt kíló
af hreinni ull.
Allt að 15% fjármuna til ullar-
nýtingar greiðast til kaupenda ullar
sem stuðningur til söfnunar á ull.
Sunnudaginn 25. nóvember
var auglýst eftir umsóknum
um stuðning til söfnunar ullar í
Morgunblaðinu. Umsóknarfrestur
rann út hinn 10. desember síðast-
liðinn og aðeins barst ein umsókn.
Umsækjandinn, ÍSTEX hf., er
reiðubúinn til þess að uppfylla
öll skilyrði samkvæmt 3. og 4.
gr. verklagsreglnanna og Bænda-
samtökin hafa gert samning við
fyrirtækið um stuðning til söfn-
unar ullar.
Beingreiðslur ekki lengur inni í
verðskrá Ístex
Ullarverð samkvæmt verðskrá sem
Ístex hefur gefið út nú í vetur er
mun lægra en í fyrra. Skýrist það
af því að búið er að taka opinberu
greiðslurnar út úr verðinu og
bændur fá þær greiddar sérstak-
lega. Framlag til ullarnýtingar sam-
kvæmt samningi um starfsskilyrði
sauðfjárræktarinnar verður nú
greitt beint til bænda. Verðin sem
stjórn Ístex samþykkti og hér eru
birt eru því markaðsverð.
Miðað við þetta verð nemur
heildargreiðsla Ístex vegna ullar-
kaupa 138,6 milljónum króna á
árinu 2013. Samþykkt var í stjórn
Ístex tillaga um að félagið greiddi
fyrir innlagða haustull hinn 10. maí
2013 og fyrir vetrarull 30. ágúst
2013.
Fréttir
Rafmagnsleysi truflaði fjarskipti og samgöngur í óveðri á Vestfjörðum:
„Þetta var hátíð hagræðingarinnar“
– segir Árni bóndi á Vöðlum í Önundarfirði um vandræðaganginn í orku-, fjarskipta- og samgöngumálum
Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum
í Önundarfirði segir að reynslan
hafi kennt sér að vera alltaf
viðbúinn rafmagnstruflunum
og lokun vega vegna snjóa. Því
hafi veðuráhlaupið um jólin ekki
plagað hann mikið þrátt fyrir að
rafmagn færi af raforkukerfinu
sem sumir þurftu að búa við allt
upp í nærri 40 klukkustundir og
til dæmis Árneshreppur töluvert
lengur. Hann segir ástandið í
raforkumálum, vegamálum og
opinberri þjónustu við Vestfirðinga
samt vera með öllu óverjandi.
Varaafl OrkubúsVestfjarða brást
„Maður hefur bara búið sig þannig
út að maður reiknar alltaf með svona
veðuráhlaupi, þetta var kannski harð-
ur hvellur, en stóð stutt og maður
man vel eftir meiri snjó,“ segir Árni.
„Veðrið núna breytti því nákvæm-
lega engu hjá mér. Frá fyrsta degi var
ég með klárt varaafl og þar sem ég
hef líka verið að sinna snjómokstri
hef ég haft yfir tækjabúnaði að ráða
þannig að ég hef getað bjargað mér
með öll aðföng og eins að losna við
mjólkina sem flutt er suður með tank-
bílum. Hér í Önundarfirði er búið
að leggja svo til allar sveitalínur í
jörð en það var bara ekkert rafmagn
hægt að fá inn á þessar línur. Búið
er að taka stærri varaaflsvélina frá
Flateyri og þar er nú aðeins lítil vél
sem dugar ekki til að framleiða varafl
nema fyrir hálft þorpið í einu. Ekki
var því um það að ræða að þaðan
fengist straumur inn í sveit. Þá voru
varaaflsstöðvar, bæði á Ísafirði og
í Bolungarvík, að bila þannig að
ekki var hægt að senda straum yfir
Breiðadalsheiði.
Fyrsti straumur sem kom inn á
kerfið hér í Önundarfirði var frá vara-
aflsstöð á Þingeyri og þá með því að
slá út hálfu þorpinu á Þingeyri og
eins byggðinni í Mýrarhreppi hinum
forna. Rafmagnið var víða úti í allt
að 40 klukkustundir og ekki hægt
að kynda hús. Ég veit um fólk hér á
svæðinu sem var orðið ansi kalt og
illa haldið. Ég veit líka um bæi sem
hafa varaafl og vissu lítið af þessu.“
Árni hefur þegar á þarf að halda
á vetrum unnið sem undirverktaki
Græðis sf. í snjómokstri og lagt
þar til eigið vinnuafl og öfluga
dráttarvél sem tengd hefur verið
við snjóblásara verktakans. Hefur
Árni m.a. haldið uppi mokstri heim
að bæjum í Önundarfirði og var nú
eftir áramótin einnig fenginn til að
hjálpa til við að ryðja götur á Ísafirði.
Ástæðan er m.a. mikill samdráttur
í opinberri þjónustu á svæðinu og
þar með starfsemi Vegagerðarinnar,
sem hefur ekki lengur yfir nægum
tækjabúnaði að ráða.
Búið að draga tennurnar úr
þjónustunni
„Það sem kemur fyrst upp í minn
huga eftir svona uppákomu sem við
eigum að vera vel meðvituð um að
geti alltaf komið upp er að það er
búið að draga svo tennurnar úr allri
þjónustu á svæðinu að öll starfsemi
er fljót að lamast. Það urðu vand-
ræði með rafmagnið og þá þurfti að
fara að keyra dísilvélar. Þá kom í
ljós að olía var takmörkuð. Einnig
eru flest þorpin í þeirri stöðu að
þar eru ekki lengur til olíubílar né
olíubirgðir til staðar. Meira að segja
í Bolungarvík varð uppnám vegna
þess að það þurfti að ryðja vegi til
að fá olíubíl frá Ísafirði til að koma
olíu á dísilvélarnar í Víkinni. Mér var
sagt að ruðningstækið sem fór í þetta
verkefni frá Bolungarvík þyrfti svo
að fá litaða vinnuvélaolíu hjá N-1 á
Ísafirði. Þar sem viðkomandi var þar
ekki í viðskiptum og því ekki með
viðskiptakort gat hann ekki fengið
slíka olíu afgreidda þó að hann legði
fram reiðufé. Þannig er hagræðingin í
olíugeiranum búin að lama þetta kerfi
ef eitthvað kemur upp á eins og núna.
Þá er líka búið að rýra svo tækja-
kost Vegagerðarinnar að þegar á þarf
að halda verða öll viðbrögð máttlaus.
Ofan á þetta er búið að skera niður
mannskap hjá Orkubúinu í þorpunum
auk þess sem um hátíðir eru menn oft
ekki heima til að bregðast við útkalli.
Það er því alls óvíst hvort hægt er
að finna menn sem geta hlaupið í
þessi verk.
Ég veit að bæði á Flateyri og
Þingeyri voru það ekki starfsmenn
Orkubúsins sem björguðu málum til
að byrja með. Á Flateyri var þar fyrir
tilviljun staddur maður sem hafði
kunnáttu og gaf sig í að hjálpa til
við að keyra varaaflsstöðina ásamt
vönum manni.
Viðbrögð Orkubúsins og upp-
lýsingagjöf eru sér kapítuli sem ég
hyggst taka upp á næsta stjórnar-
fundi, þar sem ég á nú sæti. Fólk sat
hér meira og minna án fjarskipta-
sambands sem jók enn á vandræðin.
Látum vera þó að GSM-sendar hafi
dottið út, en að heimasímakerfið og
þar með tölvusamband dytti líka út,
gengur ekki. Eini færi möguleikinn
til að veita upplýsingar til almenn-
ings var þá í gegnum langbylgjusend-
ingar Ríkisútvarpsins, sem ekki er þó
hægt að ná í öllum útvarpstækjum í
dag. Samt datt Orkubúinu það helst
í hug að koma upplýsingum á fram-
færi í gegnum vefsíðu! Maður verður
bara orðlaus.“
Svo var farið að bera á skorti á
mjólkurvörum , eitthvað í versl-
unum á Ísafirði en aðallega Flateyri,
Suðureyri og Þingeyri. Það má segja
að MS hafi sloppið með skrekkinn
þegar flutningabíll þess að sunnan
var leystur úr klemmu milli snjóflóða
á Súðavíkurhlíð á föstudeginum en
eftir það var hún lokuð í þrjá sólar-
hringa.
„Hátíð hagræðingarinnar“
Árni segir að líkja megi þessari upp-
ákomu við að boðað hafi verið, með
tveggja daga fyrirvara (þ.e. veður-
spáin), til sameiginlegrar bæjarhá-
tíðar á Vestfjörðum helgina 28.-30.
desember síðast liðinn undir nafninu
„Hátíð hagræðingarinnar“. Hátíðin
hafi verið í boði Orkubús Vestfjarða,
Olíufélaganna, Mjólkursamsölunnar,
Fjarskiptafyrirtækjanna og Vega-
gerðarinnar. Það sé mat manna að
fyrirtækin hafi öll staðið sig nokkuð
vel. Nánast allir íbúar hafi tekið þátt
og „notið“ hagræðingarinnar. Því bíði
heimamenn nú spenntir eftir næstu hátíð
sem væntanlega verði látin standa í
fleiri daga og treysta því jafnframt að
einhver fái nú greiddan vænan arð.
Árni vill meina að hluta af þessum
vandræðagangi í raforkumálunum
megi rekja til nýrra orkulaga þar
sem skilið var á milli framleiðslu
og dreifingar á raforku. „Síðan hafa
verið endalaus átök á milli Landsnets
og Orkubús Vestfjarða og annarra
orkuframleiðslufyrirtækja um hver
eigi að gera hvað. Því draga menn
lappirnar við að halda kerfinu í lagi
eins og reynslan núna sýndi. En hluti
er greinilega heimatilbúinn“
/HKr.
Fundað í umhverfis- og samgöngunefnd um neyðarástandið á Vestfjörðum um jólin:
Raforkumál, fjarskipti og samgöngur voru í uppnámi
– starfandi formaður nefndarinnar vill Súðarvíkurgöng næst á eftir Dýrafjarðargöngum
Nýtt fyrirkomulag
ullargreiðslna
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, er starfandi
formaður umhverfis- og
samgöngunefndar Alþingis eftir
að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
sagði af sér þingmennsku. Ólína
sagði í samtali við Bændablaðið að
hún hefði boðað fund í nefndinni
í gær vegna þess ástands sem
skapaðist á Vestfjörðum í óveðrinu
um jólin. Á fundinn voru boðaðir
fulltrúar fjarskipta-, samgöngu-,
og raforkumála, sem og fulltrúi
Almannavarna.
Fundurinn var haldinn í gær-
morgun en niðurstaða hans lá ekki
fyrir þegar blaðið fór í prentun. Ólína
sagði fyrir fundinn að hugmyndin
hefði verið að fara yfir málin með
þessum aðilum. „Síðan hef ég óskað
eftir sérstakri umræðu í þinginu um
raforkuöryggi á Vestfjörðum.“
Þarna afhjúpuðust ákveðnir
veikleikar
„Það er alveg augljóst að þarna
afhjúpuðust ákveðnir veikleikar í
raforku-, samgöngu- og fjarskipta-
kerfunum sem þarf að fara mjög vel
yfir. Þegar brestur á með langvar-
andi rafmagnsleysi fara fjarskipta-
sendarnir að detta út, tölvusamskipti
brenglast og upplýsingagjöfin verður
ófullnægjandi. Þá myndaðist mikil
snjóflóðahætta á öllum vegum að
og frá Ísafirði, sem er höfuðstaður
Vestfjarða. Þetta er okkar helsta sam-
gönguæð yfir vetrartímann fyrir utan
samgöngur á sjó. Það segir sig sjálft
að í svona veðrum notar ekki nokkur
maður flug, þannig að þarna myndað-
ist hættuástand vegna einangrunar
ákveðinna bæja og byggðarlaga.“
Kallar á skýringar
„Fjórar varaaflsstöðvar virkuðu ekki
sem skyldi þegar til átti að taka, þar
af tvær á Ísafirði. Ein komst í vanda
vegna þess að það vantaði olíu. Það
er alveg augljóst að við munum þurfa
að kalla eftir skýringum á þessu og
áætlunum frá ábyrgum aðilum um
hvernig hægt sé að fyrirbyggja þetta
til framtíðar. Ég hlýt að vænta þess að
menn séu nú þegar tilbúnir með slíkar
áætlanir eða með þær í smíðum.“
Ólína sagðist ekki vilja
úttala sig um hvort aðskilnaður
raforkuframleiðslu og dreifingar í
orkulögum hefði skapað togstreitu
milli þeirra aðila sem orsakaði það
að viðhaldi varaaflsbúnaðar væri ekki
sinnt sem skyldi.
„Orkufyrirtækin bera öll
samfélagslega ábyrgð. Raforkumál
eru í raun almannavarnamál. „Vertu
trúr yfir litlu,“ segir í góðri bók. Þetta
er kannski bara spurning um hvernig
menn starfrækja sínar stofnanir og
gera áætlanir fram í tímann fyrir sína
þjónustu, til að bregðast við þegar á
reynir.“
Grundvallaratriði að
fjarskiptamálin séu í lagi
„Nú eru öfgar í veðurfari augljóslega
að aukast og við finnum fyrir því.
Þá verða þessi fyrirtæki að leggja
það niður fyrir sér hvernig þau geti
staðist aukið álag sem getur myndast
vegna veðurfarsaðstæðna. Það er
grundvallaratriði að fjarskiptamálin
séu í lagi. Að Almannavarnir,
björgunarsveitir og lögregla geti
haft samskipti sína á milli og komið
skilaboðum áleiðis. Á þessu varð
misbrestur í óveðrinu á Vestfjörðum.“
Súðavíkurgöng verði sett í
samgönguáætlun
„Við búum við hættulega vegi
sem teppast af snjóflóðum yfir
vetrarmánuðina. Í þessu óveðri sem
gekk yfir norðvestanvert landið
um jólin varð ástandið þó mjög
alvarlegt, því annað hættuástand var
líka yfirvofandi á Vestfjörðum. Því
þarf núna að taka jarðgangamál á
milli Ísafjarðar og Súðavíkur mjög
föstum tökum. Það er ekki hægt að
búa við það að megin samgönguæðin
við höfuðstað heils landshluta lokist
á alla vegu vegna snjóflóða þegar
svona stendur á. Ég mun því beita
mér fyrir því að Súðavíkurgöngin
verði sett á teikniborðið núna og þeim
komið inn í samgönguáætlun í beinu
framhaldi af Dýrafjarðargöngum.
Þetta eru manndrápsvegir og í raun
Guðs mildi að ekki hafi verra hlotist
af. Þetta er ekki bara spurning um
vegfarendur og björgunaraðila,
heldur líka bjarg irnar sem koma þar
fram og til baka, segir Ólína.“ /HKr.
Ólína Þorvarðardóttir
Árni hafði mikið að gera við snjómokstur um jólin. Auk þess að halda opnum
leiðum heim að bæjum við Önundarfjörð þurfti hann eftir áramótin að aðstoða
H-1-Lamb 280 kr./kg
H-1 og H-2-L 250 kr./kg
H-2 160 kr./kg
M-S, G og M 200 kr./kg
M-2 80 kr./kg