Bændablaðið - 10.01.2013, Page 5
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 2013 5
Það er víðar en á Norðurlandi sem
fé hefur ekki skilað sér til byggða.
Í sumum landshlutum eru stað-
hættir þó þannig að fé á auðveldara
með að komast af en í fannferginu
norðan heiða.
Jónas Erlendsson bóndi í Fagradal,
skammt austan við Vík í Mýrdal, tók
þessa mynd af lambi á klettanöf á
Kerlingadalsafrétti á gamlársdal
þegar hann var þar á ferð ásamt Jóni
Hjálmarssyni. Ekkert fararsnið sást á
lambinu og það virtist þokkalega á sig
komið. Ekki var heldur annað að sjá
en að það hefði nóg að bíta. Þá var það
trúlega ekki í neinum vandræðum
með að finna sér skjól í ótal hellum
og skútum á þessu ægifagra svæði.
„Við fórum þarna á gamlársdag
að telja eins og við segjum. Við sáum
þarna þrjár aðrar kindur inni í gili. Á
mánudag voru þær svo komnar hér
niður í Höfðabrekkuhálsinn. Þegar
átti svo að sækja þær létu þær sig
hverfa og hafa ekki sést síðan.
Annars er vitað um einhverja
tugi fjár hér inni á afrétti og eins hér
fyrir utan,“ sagði Jónas í samtali við
Bændalaðið.
„Meðan tíðin er svona hefur féð
nóg að bíta. Þetta er samt alltaf visst
vandamál. Það getur verið erfitt að
smala þessu fé og einnig hætta á að
missa það ofan fyrir björg. Þegar
komið er fram á þennan tíma er féð
líka orðið léttara á fótinn og erfiðara
fyrir hundana að ná því.“ /HKr.
PRAMAC varaaflstöðvar frá 4 – 110 kW. Opnar eða í
hljóðeinangruðu húsi. Vélarnar eru ýmist knúnar Perkins
eða Yanmar dieselvélum
Dráttarvélatengdar-rafstöðvar frá 6 – 25 kW
Framúrskarandi viðhaldsþjónusta og þjónustuumboð
um allt land
Klettur er einnig umboðsaðili fyrir CATERPILLAR rafstöðvar
PRAMAC RAFSTÖÐVAR
Eftirlegukind í
Kerlingadal
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
5630300