Bændablaðið - 10.01.2013, Síða 23

Bændablaðið - 10.01.2013, Síða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 2013 Á síðustu vikum hefur umræða um byggðastefnu, tækifæri og ógn- anir byggðar á landinu öllu orðið meiri en oft áður. Umræðan kemur reyndar oft í bylgjum án þess að skilja eftir nokkra niðurstöðu þegar hún hættir. Ástæða núverandi bylgju er án efa áhugaverðir þættir sjónvarps- stöðvanna á eftir fréttir á sunnudögum um tækifæri byggð anna sem jafnframt sýna fram á aðstöðumun fólk sem býr í þéttbýli (ekki síst SV-hornið) og dreifbýli. Einnig varð þó nokkur umræða í kjölfar á mjög áhuga- verðu erindi Þórodds Bjarnasonar, stjórnarformanns Byggða stofnunar, sem hann hélt á Fjármála ráðstefnu sveitarfélaganna fyrr í haust. Þar sýndi hann fram á að við hefðum í raun verið með byggðastefnu – sem hefði tekist afbragðsvel – en það væri 150 ára gömul ákvörðun um að gera Reykjavík að höfuðborg og að flytja allar stofnanir samfélagsins þangað. Engri þjóð hafi gengið jafnvel að framfylgja sinni byggðastefnu. Þá hefur verið þó nokkur umræða á Alþingi um byggðamál. Þar höfum við Framsóknarmenn lagt fram þingmál sem byggja á að jafna aðstöðumun, auka jafnræði meðal þegnanna og munu, ef samþykkt, styrkja fjölbreytni í búsetumöguleikum fólks. Ójöfn skattlagning Framsókn hefur einnig barist gegn aukinni skattheimtu sem sérstaklega hefur lagst þungt á dreifbýlið þar má t.a.m. nefna síaukna skatta á farartæki. Í forsendum fjárlaga 2011 var gert ráð fyrir að umferð mundi aukast um 2% og þar með tekjur af eldsneyti. Ríkisstjórnin lagði til aukna skatt- heimtu. Við Framsóknarmenn stóðum gegn þeirri hækkun. Staðreyndin er sú líka að umferð dróst saman um nærri 5%, eða 4,9%, vegna þess einfald- lega að eldsneyti var orðið of dýrt. Skattlagningin er orðin of mikil og almenningur dregur við sig að fara á milli staða eða fara í heimsóknir og margir hverjir sem hafa þurft að keyra um langan veg til vinnu hafa þurft að velta því fyrir sér og jafnvel þurft að taka þá ákvörðun að skyn- samlegra sé að gefast upp á þeirri vinnu eða flytja annað eins og svo margir hafa reyndar gert, því miður. En skattlagningin lagðist á dreifbýlið sem ekki hefur raunverulegt val um að aka milli staða – eða um að fara á reiðhjóli eða taka strætó. Þess vegna lögðum við fram þingsályktun um að kannað yrði hvernig mætti koma fyrir skattaafslætti til þeirra sem þurfa að aka langan veg til og frá vinnu. Hugmyndirnar eru sóttar til Norðurlanda en öll ríkin þar eru með einhverja slíka skattaafsláttastefnu. Það sem við viljum ná fram eru raunverulega stærri atvinnusvæði og auknir valkostir í búsetu. Norska leiðin Annað sem við Framsóknarmenn höfum verið að skoða er norska leiðin hvað byggðastefnu varðar, en hún byggist á skattaafsláttum m.a. til svæða þar sem sýnt er að ríkisvaldið geti ekki sinnt þegnunum með þeirri þjónustu sem skattarnir eiga að standa undir. Einnig eru ívilnanir til fyrir- tækja sem setjast að í dreifbýli og þar til viðbótar er háskólamenntuðu fólki boðinn afsláttur t.d. á námslánum setjist það að á jaðarsvæðum. Aðalmálin En fyrst og fremst viljum við í Framsókn jafna aðstöðumun fólks til grunnþjónustu – í heilbrigðismálum, í löggæslumálum og í menntunar- málum svo nokkur þau helstu séu nefnd. Niðurskurðurinn hefur gengið of langt, ekki síst úti á landi. Við höfum líka lagt mikla áherslu á að jafna flutningskostnað, bæta fjar- skipti með því að hvetja ríkisvaldið til að skoða hvort ekki sé tækifæri við gjaldþrot og skipti slíkra fyrir- tækja að koma grunnnetinu í opinbera eigu eða í það minnsta að stuðla að því að allir landsmenn eigi sama rétt á háhraðatengingum. Þá viljum við jafna húshitunarkostnað og höfum lagt raunhæfar tillöguur þess efnis fyrir þingið. En við viljum ganga lengra, því höfum við spurt af hverju er jöfnun á olíuvörum, mjólk og símamínútum um land allt en ekki á dreifingu raf- magns. Af hverju rekum við fimm til sex opinber fyrirtæki (í eigu ríkis og sveitarfélaga – Landsnet, Rarik. rafveituhluti- OR,- HS-veitna,- OV) sem öll dreifa rafmagni með sérleyfis- gjaldskrá? Við viljum skoða kosti þess að sameina rafveituhluta þessara fyrir- tækja í eitt fyrirtæki og eina gjaldskrá á dreifingu rafmagns. Aðalbyggðamálið er hins vegar atvinnumál. Þar höfum við Framsóknarþingmenn talað fyrir sókn í atvinnumálum – nýta tækifærin sem hvert landsvæði býður uppá – við viljum að allar vinnufúsar hendur fái tækifæri við sitt hæfi. Sóknarfærin eru mörg, bæði innan núverandi atvinnu- vega en einnig í nýsköpun. Fólksflótti Það hefur komið fram í byrjun árs að 2011 var næstmesta fólksflóttaár héðan frá Íslandi sem við höfum lifað, en sjö einstaklingar fóru úr landi á dag. Framsókn vill snúa þessari þróun við með öflugri atvinnuuppbyggingu og skynsamlegri skattastefnu en nú er við lýði. Flestir sem flytja utan fara til Noregs, þar sem tekjuskattsprósentan er 36%. Hins vegar fara Norðmenn þá leið að vera með lægri prósentu fyrstu tvö árin fyrir þá sem flytja inn í landið, þ.e. 28%, sem hækkar síðan í 32%. Þannig laða þeir að öflugt og gott fólk til að viðhalda hagvexti hjá sér og tryggja að störf séu mönnuð. Margir Íslendingar hafa eðlilega stokkið á það. Hér hefur ríkisstjórnin aftur á móti farið þá leið að hækka alla skatta, bæði nýja skatta og aðra skatta. Skattprósentan hér er með því hæsta sem þekkist ef við leggjum lífeyr- isiðgjöldin við. Allar þessar skatt- breytingar hafa einfaldlega dregið alvarlega mátt úr atvinnulífinu. Seilst hefur verið ofan í vasa heimilanna í landinu sem voru illa stödd fyrir þótt ekki sé sífellt verið að auka álögur á þau. Þannig búa til að mynda 40% heimila ekki við sjálfbæran efnahag og efnahagur þess hóps fer sífellt versnandi, m.a. vegna skattpíningar á eldsneyti og hárra skatta almennt. Það hefur komið að bara sá hluti lána almennings sem hefur hækkað af völdum ríkisstjórnarinnar nemur 23 milljörðum, það er sá hluti sem kemur beinlínis til vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar um að hækka þjón- ustugjöld og skatta, á allar stéttir. Ný byggðastefna Stefna Framsóknar er um atvinnu- uppbyggingu, byggðastefnu sem miðar að eflingu landsbyggðanna annars vegar með að efla grunn- þjónustuna alls staðar og hins vegar í að nýta sérstakar aðstæður til atvinnusköpunar í hverri byggð. Stækka atvinnusvæðin og gera þau sjálfbær. Áhugavert er að skoða niðurstöður um „NorðausturRíkið“ (skýrsla á vegum Eyþings), án efa má reikna út að önnur kjördæmi og svæði eru líka sjálfbær þ.e. að skatt- tekjur og útflutningstekjur svæðanna standa fyllilega – og gott betur – undir opinberri þjónustu á hverju svæði fyrir sig. Þannig og aðeins þannig mun okkur auðnast að halda í fólkið sem dýrmætir skattpeningar hafa menntað. Standa verður vörð um það samfélag sem eldri kynslóðir hafa unnið hörðum höndum við á síð- astliðnum áratugum að byggja upp. Öll viljum við samfélag jafnræðis þar sem einstaklingarnir einir sér eða saman geta nýtt sköpunargáfur og kraft sinn til atvinnuuppbyggingar og velsældar. Tækifærin eru til staðar – vilji og þor til verka er allt sem þarf. Eitt af fyrstu verkunum er ný byggðastefna. Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður Samfélagið sem við viljum Sigurður Ingi Jóhannsson Bændur athugið! REYKJAVÍK - AKUREYRI ÞÓR HF ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Sími 568-1500 | Akureyri: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Síðasti dagur til þess að tryggja sér KRONE heyvinnuvél á vetrarverði er föstudagurinn 25. janúar n.k. Hafi þér ekki borist KRONE yfirlitsbæklingurinn í pósti getur þú haft samband við sölumenn okkar og fengið sent eintak um hæl. Einnig er hægt að hlaða honum niður á vefsíðu okkar www.thor.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.