Bændablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. maí 201312
Varla er til sá fréttamiðill sem
ekki hefur sagt frá þeim slæmu
samgöngum sem hreppsbúar í
Árneshreppi á Ströndum þurfa
að búa við. Fyrir skemmstu
fór Hjörtur Leonard Jónsson,
starfsmaður BÍ, í helgarferð
í Norðurfjörð í Árneshreppi
og sá þá með eigin augum
hvers lags ófremdarástand er í
samgöngumálum hreppsbúa.
Þegar beygt var út af bundna
slitlaginu upp á Bjarnarfjarðarháls
var skilti þar sem stóð að hámarks-
öxulþungi væri 7 tonn. Á töluvert
mörgum stöðum hafði grjót hrunið
á veginn úr bröttum skriðum fyrir
ofan, en verst var aurbleytan í
illa uppbyggðum veginum frá
Veiðileysu að Gjögri. Hver drullu-
pytturinn eftir annan á þessum kafla
leiðarinnar gerði veginn illfæran og
ef ekki hlýnar í bráð og vegurinn
þornar verður ekki hægt að létta
af þeim þungatakmörkunum sem
á honum eru núna. Það getur skipt
sköpum varðandi áburðarflutninga
til bænda.
Furðu lítill snjór á túnum
Við komuna í Norðurfjörð blasti við
furðu lítill snjór á túnum og mátti sjá
að túnin í Steinstúni voru að byrja
að vakna til lífsins. Í fjárhúsunum
í Steinstúni voru hjónin Edda
Hafsteinsdóttir og Guðlaugur A.
Ágústsson sem eru með tæp 300
fjár að búa sig undir sauðburð, sem
reyndar var aðeins byrjaður. Fyrsta
ærin bar tveim fallegum gimbrum
þann 10. apríl sem nefndar voru
Vigdís og María, en alls voru fimm
ær bornar. Í stuttu spjalli við þau
hjón létu þau vel af sér og sagði
Guðlaugur að í sauðburðarbyrjun
hefðu oft verið verri aðstæður en
nú í vor.
Lambadauði á Melum 2 líklega
talinn stafa af slæmu fóðri
Næst var farið í heimsókn á Mela
2 til Kristjáns Albertssonar, sem
var að ljúka kvöldgegningum.
Kristján er sjálfur með um 100 ær
en nágranni hans, Björn Torfason
á Melum 1, er með um 450 fjár.
Þeir félagar vinna mikið saman
við búskapinn. Kristján lét ekki
vel af byrjun sauðburðar hjá sér því
fyrst létu tvær tvílembur lömbum
sínum og daginn áður höfðu tvær
tvílembur borið og öll fjögur lömbin
drápust. Kristjáni þótti verst að
vita ekki hvers vegna hann væri að
missa lömbin, en hugsast gæti að
það hefði verið skemmt hey sem
þessar ær höfðu fengið að honum
óafvitandi fyrr í mánuðinum.
„Ég lét ómskoða mitt fé og á
fyrstu tveim dögunum kom mikið
einlembt, svo komu tvílemburnar og
síðast þrílemburnar. Ég hefði viljað
hafa þetta öfugt og fá þrílemburnar
fyrst. Sennilegasta skýringin á þessu
er hversu haustið var slæmt og
kom fé frekar seint á hús. Fóðrun
hefur ekki verið komið nægilega af
stað fyrr en í lok fengitíma, þegar
frjósemin tók við sér með þessum
þrílembum í restina,“ sagði Kristján
að lokum.
Spurning um forgangsröðun í
vegagerð
Á leiðinni til baka var staldrað
aðeins við í botni Steingrímsfjarðar
til að skoða vegaframkvæmdir sem
þar eru á þriggja kílómetra kafla,
ásamt nýrri tvíbreiðri brú sem
ekki er enn komin í gagnið. Sagði
Hjörtur að miðað við tímann og
efnisflutninga sem þetta verkefni
útheimti á þessum stutta kafla
þarna í Steingrímsfirði hefðu þessar
framkvæmdir alveg mátt bíða. Þess
í stað hefði mátt nýta fjármagnið í
veginn frá Veiðileysu að Djúpuvík,
sem bráðnauðsynlega þarfnaðist
uppbyggingar og viðhalds.
Fréttir
Þegar ég var ungur drengur
í sveitinni var ekki algengt
að komast í tæri við þekkta
Íslendinga. Ómar Ragnarsson
kom til dæmis aldrei fljúgandi á
Frúnni, lenti á túninu heima og
tók viðtal við bændur og búalið
sem svo birtist í sjónvarps-
fréttum. Ekki heima hjá mér.
Hemmi Gunn og Bylgjulestin
áttu ekki leið um sveitirnar og
Valgeir Guðjónsson sat ekki
uppi á Stuðmannarútunni með
gjallar horn og auglýsti ball í
félagsheimilinu.
Hins vegar birtist reglulega
einn þekktur Íslendingur á
hlaðinu heima. Keyrandi um á
blárri Lödu brunaði hann upp
heimreiðina, stórstjarnan Herbert
Guðmundsson, með skottið fullt
af bókum útgefnum af Erni og
Örlygi. Herbert Guðmundsson,
sem hefur afrekað það að gera
sama lagið vinsælt þrjá áratugi
í röð, lagið Can‘t Walk Away,
sem að mati undirritaðs er eitt
besta lag sem samið hefur verið á
Íslandi. Með sólgleraugu, túperað
hár (næstum því) og í támjóum
skóm vatt stjarnan sér út úr
bílnum, heilsaði kumpánlega,
ruglaði jafnvel hárinu á börnum
sem stóðu hjá með stjörnur í
augum og hóf svo að pranga
Íslensku alfræðiorðabókinni inn
á heimilisfólk. Ef mig misminnir
ekki vorum við pabbi alltaf að bisa
við að draga áburðardreifarann
út úr véla geymslunni. Já, þegar
Herbert renndi í hlað var vorið
komið.
Svo fóru Örn og Örlygur
á hausinn um miðjan tíunda
áratuginn og Herbert hætti að
koma á bláu Lödunni. Herbert
flutti til Svíþjóðar og varð
útlærður í ísgerð, flutti svo aftur
heim og rak ísbúð í Reykjavík.
Það er önnur saga en nátengd
þeirri sem nú skal vikið að.
Eins og naskir lesendur hafa nú
uppgötvað snýst þessi pistill ekki
um Herbert Guðmundsson heldur
um ís. Eftir að Herbert hætti að
birtast í hlaðinu hefur lítið farið
fyrir reglulegum heimsóknum
frægðarmenna í sveitinni. Hins
vegar kemur reglulegur gestur í
heimsókn í sveitina, gestur sem
börn og ungmenni taka ekki síður
fagnandi en Herbert forðum.
Þegar bjölluhljómurinn heyrist
þýtur heimilisfólk út í dyr og
fagnar Ísbílnum.
Ísbíllinn er fjölskyldu-
fyrirtæki sem hóf starfsemi sína
með einum bíl um hvítasunnuna
1994. (Þess má geta að Örn og
Örlygur fóru einmitt á hausinn
sama ár. Tilviljun?) Fyrst um sinn
var keyrt um sveitir Árnessýslu
en árið 1999 hóf Ísbíllinn
farandsölu á ís um land allt.
Ísbílarnir eru í dag átta talsins
og keyra um sveitir landsins tíu
mánuði á ári. Þegar ömmu- og
afabörnin mæta í sveitina er
gjarnan spurt hvort Ísbíllinn sé
ekki örugglega nýkominn, nú
eða þá rétt ókominn. Komur
Ísbílsins eru því ómetanlegar
þegar þörf er á að ofdekra eða
múta barnabörnum.
Alþekkt er að nýr forsætis-
ráðherra Íslands, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, hefur
dálæti á ís. Það er því ekki
ólíklegt að bjölluhljómur muni
heyrast í húsinu við Austurvöll á
næstunni. Það verður vonandi til
góðs og eykur sátt og samlyndi
þingmanna okkar. Því hver getur
rifist um pólitík með ís í hönd?
/fr
STEKKUR
Blá Lada
og bjöllur
Árneshreppur á Ströndum:
Ófremdarástand er í samgöngumálum
– bændur á fullu í sauðburði og vona að vegirnir þorni svo þeir þoli áburðarflutninga sem fram undan eru
Vegurinn af Veiðileysu niður í Reykjafjörðinn er eitt drullusvað. Myndir/ HLJ
Kristján Albertsson á Melum 2. Hann
er sagður heimsmeistari í hrútaþukli
af nágrönnum sínum.
Edda Hafsteinsdóttir og Guðlaugur A. Ágústsson í Steinstúni.
Elsta lambið á Steinstúni ber nafnið
María og er fallega golsótt.
Fjárhúsin í Steinstúni.
Melar 2.