Bændablaðið - 24.04.2013, Síða 2
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 20132
Fréttir
Hlutfall útgjalda til matvörukaupa
samkvæmt nýjustu tölum Eurostat
á árinu 2013 sýnir að Íslendingar
verja 13% heildarútgjalda sinna til
kaupa á matvörum en meðaltal ESB-
ríkja er tæp 14%. Tölur Eurostat
sýna hlutfall matvælakostnaðar í
neyslu íbúa í 32 löndum í Evrópu.
Evrusvæðið í heild er með hærra
hlutfall en Ísland, sem er í 24. sæti
á listanum, í flokki með Kýpur og
Hollandi. Þessar tölur stangast
mjög á við fullyrðingar Samtaka
verslunar og þjónustu í fjölmiðlum
að undanförnu um hlutfallslega hátt
matvælaverð á Íslandi miðað við
önnur Evrópulönd.
Í tölum Eurostat, sem miða
við almenna neyslu fyrir utan
húsnæðiskostnað, kemur fram að
hlutfallið bæði innan ESB og á
Evrusvæðinu er hærra en á Íslandi
og á Evrusvæðinu út af fyrir sig er
það ekki lægra en innan ESB í heild.
Ísland er líka lægra en Finnland,
Svíþjóð og Noregur.
Þess má geta að útgjöld íslenskra
neytenda til kaupa á íslenskum
búvörum eru um 5,4% heildar útgjalda.
Allt grænmeti, bæði innflutt og
innlent, er 0,8% af heildarútgjöldum.
Aðeins 8 lönd með lægra hlutfall
Varðandi þau átta lönd sem eru
með lægra hlutfall en Ísland má
telja augljóst að Lúxemborg, sem
er neðst á listanum sé án efa að
njóta vegna smæðar sinnar nýtingar
á þjónustu og af mannvirkjum
öflugra nágrannaríkja. Hvað
Bretland varðar má t.d. geta þess
að enginn virðisaukaskattur er þar
á nauðsynjavörur svo sem matvæli,
og staða pundsins gagnvart evru kann
líka að hafa töluverð áhrif á góða
stöðu Breta á listanum.
Landbúnaðarkerfi ESB
stærsti útgjaldaliður
sambandsins
Evrópusambandið er með
mjög öflugt styrktarkerfi
við landbúnað (Common
Agricultural Policy – CAP), sem
er stærsti einstaki útgjaldaliður
sambandsins. Á árinu 2010 var
31% af útgjöldum ESB vegna
CAP.
Öflug tollverndarstefna ESB
ESB rekur einnig öfluga
tollverndarstefnu gagnvart
ódýrari framleiðslu frá ríkjum
utan sambandsins. Er það m.a.
til að vernda iðnað, fiskveiðar,
umhverfi, heilsu og landbúnað
sem er með hátt í 14 milljón
bændur. Meðaltalstollurinn á
landbúnaðarvörum hefur þó
verið að lækka á undanförnum árum
samkvæmt tölum Evrópuráðsins.
Nokkur andstaða hefur þó komið
upp í kreppunni á ESB-svæðinu
gagnvart lækkun tolla, ekki síst
á vörum frá þróunarlöndum
vegna ótta við vaxandi samdrátt
í landbúnaði innan ESB.
Betri staða fyrir neytendur
á Íslandi en í ESB
Vegna CAP-landbúnaðar-
kerfisins og tollvernda ESB er
talið að evrópskir neytendur fái
landbúnaðarvörur á lægra verði
en annars mætti ætla. Samt er
sambærilegt kerfi, sem sumir
vilja leggja niður á Íslandi, að
skila betri árangri til neytenda
hérlendis en flest ESB-löndin
geta státað af samkvæmt tölum
Eurostat.
Svisslendingar, sem eru í
þriðja neðsta sæti á lista Eurostat,
njóta umtalsverðs styrkjakerfis
í matvælaframleiðslu sinni. Þar
er eigi að síður þrepaskiptur
virðisaukaskattur en samt aðeins
frá 2,5% til 8%.
Austurríki er einnig fyrir
neðan Ísland þrátt fyrir
tiltölulega háan virðisaukaskatt,
eða 20%, á meðan Þýskaland
er með 7% virðisaukaskatt á
matvæli. Írar eru aftur á móti
með 0% virðisaukaskatt á
fjölmargar tegundir matvæla en
annars frá 9% til 13,5% vsk. á
þjónustu og 23% á aðrar vörur.
Danmörk er með aðeins
lægra kostnaðarhlutfall matvæla
en Ísland þrátt fyrir sinn 25%
virðisaukaskatt, en Danmörk er
mikið matvælaframleiðsluland
líkt og Ísland. Þá er Holland
áttunda landið á listanum, næst
fyrir neðan Ísland, með 6%
virðisaukaskatt á valdar vörur
en að öðru leyti 21% vsk.
/EB/TB/HKr.
Nýjar tölur Eurostat um hlutfall matvælakostnaðar í neyslu íbúa í 32 löndum í Evrópu:
Tuttugu ESB-ríki eru með hærra hlutfall
neysluútgjalda vegna matvæla en Ísland
– Evrusvæðið í heild er einnig með hærra hlutfall en Ísland, sem er í 24. sæti á listanum
Margir af bestu hestum og knöpum
landsins munu fara á kostum
á stórsýningu í Reiðhöllinni
Svaðastöðum á Sauðárkróki
laugardagskvöldið 27. apríl.
Á sýningunni munu ræktunarbú
sýna gullmola sína og afkvæmi
þekktra stóðhesta leika listir sínar.
Glæsihryssur verða kynntar til leiks
og fjölbreytt atriði önnur verða í boði.
Veitt verða peningaverðlaun fyrir
fljótasta skeiðhestinn, glæsilegasta
hest sýningarinnar og besta atriðið.
Að lokinni sýningu verður dans-
leikur á Mælifelli þar sem Hreimur
og Rúnar Eff spila ásamt hljómsveit.
Meðal gæðinga sem koma fram
á sýningunni má nefna Korg frá
Ingólfshvoli, sem var hæst dæmdi
klárhesturinn 2012. Bragur frá
Bjarnastöðum verður þar einnig,
en hann var Íslandsmeistari í skeiði
2012. Þá koma stóðhestarnir Sólon
frá Vesturkoti (9,5 tölt, 9 fyrir brokk,
stökk og vilja og geðslag), Púkar
tveir, frá annars vegar Lækjarbotnum
og hins vegar Kálfholti, Grettir og
Byr frá Grafarkoti mæta einnig
og feðgarnir Þeyr frá Prestsbæ
og Hlekkur frá Saurbæ, sem og 1.
verðlauna hryssurnar Gáta frá Ytra-
Vallholti og Kvika frá Leirubakka.
Þá má nefna sýningu Mola-
afkvæma frá Skriðu, afkvæma
Sendingar frá Enni og afkvæma
Dimmbláar frá Hafsteinsstöðum. Að
auki verða glæsileg sýningaratriði
frá fjölda landsþekktra knapa, atriði
frá fulltrúum ungu kynslóðarinnar,
sýningar reiðkennaraefna Hólaskóla,
að ógleymdum húnvetnsku dívunum
sem heiðra okkur með nærveru sinni.
Fyrr um daginn fer fram
kennslusýning reiðkennaraefna
Hólaskóla í reiðhöllinni og opið
hús verður í Hrímnishöllinni hjá
Hrossaræktarbúinu Varmalæk,
bæði föstudag og laugardag. Í
Hrímnishöllinni verður m.a. nokkur
fjöldi hrossa til sölu.
Forsala aðgöngumiða er á N1 á
Sauðárkróki og er miðaverð aðeins
kr. 2.500.
Tekið til kostanna:
Hestadagar í
Skagafirði
ESB - samtals
Rúmenía***
Litháen***
Kýpur**
Lettland***
Króatía
Eistland**
Búlgaría***
Pólland**
Portúgal**
Ungverjaland***
Spánn**
Grikkland**
Slóvakía**
Tékkland***
Slóvenía**
Ítalía**
Belgía**
Frakkland**
Malta**
Finnland**
ESB - Evrusvæðið
Evrópska efnahagssvæðið
Svíþjóð***
Noregur
Kýpur**
Ísland
Holland**
Danmörk***
Írland**
Þýskaland**
Austurríki**
Sviss
Stóra-Bretland***
Lúxemborg**
* Hlutfall af neyslu án húsnæðiskostnaðar
** Evruríkin 17
*** ESB ríki án evru
Nýjustu tölur Eurostat sýna
glögg lega að hvorki aðild að
Evrópu sambandinu né aðild
að myntbandalagi Evrópu er að
skila ESB þegnum lægra hlutfalli
matvæla í neyslu útgjöldum en
Íslendingar búa við í dag.
Fyrir skömmu var gengið frá
ráðningu Sigríðar Ólafsdóttur
frá Víðidalstungu í Víðidal í
hlutastarf sem ráðunautur í
æðarrækt í stað Guðbjargar
Helgu Jóhannesdóttur, sem
gegndi áður því starfi hjá
Bændasamtökum Íslands.
Reiknað er með að á næstunni
muni Æðarrræktarfélag Íslands, BÍ
og RML skilgreina nánar starfs-
svið hvers aðila varðandi málefni
æðarræktarinnar í heild.
Sigríður lauk meistaraprófi í
búvísindum frá Landbúnaðarháskóla
Íslands á liðnu ári og starfar að öðru
leyti við rekstraráðgjföf hjá RML.
Símanúmer Sigríðar er 516 5041
og 847 2684, netfang so@rml.is.
Sigríður Ólafsdóttir
Nýr ráðgjafi
í æðarrækt
Sáralítið afskrifað af lánum til bænda frá upphafi efnahagshrunsins 2008 fram á haust 2011:
94 milljarðar afskrifaðir hjá verslunar- og
þjónustufyrirtækjum fyrstu þrjú ár eftir hrun
Frá bankahruni og fram til
september 2011 voru ríflega
165 milljónir króna afskrifaðar
af lánum fjármálafyrirtækja til
bænda. Á sama tíma voru tæpir
94 milljarðar króna afskrifaðar
af lánum til verslunar- og
þjónustufyrirtækja. Þá höfðu
sjávarútvegsfyrirtæki fengið
afskrifaðar tæpa 13 milljarða
króna. Þetta kemur fram í
skýrslum Eftirlitsnefndar
um framkvæmd sértækrar
skuldaaðlögunar.
Sérstaklega var fjallað um
stöðu bænda í skýrslu nefndarinnar
sem birt var í september 2011. Í
nýjustu skýrslu nefndarinnar, frá
því í desember 2012, er vitnað
í fyrri skýrslu og bent á að lítið
sem ekkert hafi verið afskrifað af
skuldum bænda. Ekki er fjallað
sérstaklega um bændur að öðru
leyti í skýrslunni frá í desember og
verður því stuðst við fyrrnefnd gögn
frá árinu 2011. Samkvæmt skýrslu
nefndarinnar vekur athygli að aðeins
um 6,5 prósent bænda voru talin í
greiðsluvanda á þeim tímapunkti.
Verðmæti jarða hugsanlega
kerfisbundið ofmetið
Þann 1. apríl 2011 voru flestir
bændur í viðskiptum við
Landsbankann, eða 1.600 talsins. Af
þeim voru 65 taldir í greiðsluvanda.
Landsbankinn hafði á þeim
tímapunkti ekki klárað samninga
við neinn þeirra. Næstflestir bændur
voru í viðskiptum við Arion banka,
eða 1.000. Af þeim töldust 86 vera
í greiðsluvanda. Búið var að klára
samninga við 33 þeirra og af þeim
höfðu 6 fengið skuldir afskrifaðar.
Þær skuldaafskriftir stóðu að baki
þeim 165 milljónum sem nefndar
eru hér í inngangi. Eftir því sem
næst verður komist hefur Arion
banki nú klárað samninga við
nálega alla bændur sem töldust í
greiðsluvanda en ekki liggja fyrir
nýrri tölur um afskriftir. Fáir bændur
voru í viðskiptum við Íslandsbanka
eða Byr sparisjóð.
Eignastaða flestra búa er yfirleitt
sterk, sé tekið tillit til bókfærðra
eigna. Þær eignir eru einkum
bújörðin sjálf og framleiðsluréttur.
Nefndin benti á að verðmat jarða
hefði verið grundvallað á tiltölulega
fáum sölum þar sem virði jarða var
hátt. Sé verðmæti jarða kerfisbundið
ofmetið þýðir það kerfisbundið
ofmat á eiginfé. Því gæti eignastaða
þeirra í raun verið verri en bókfært
er.
/fr