Bændablaðið - 24.04.2013, Side 7
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 7
Líkt og ritstjóri boðaði
fyrr í Bændablaðinu er
ætlunin að birta frekar
af vísum þeim sem
fluttar voru á fjáröflunarsamkomu
„Vina Tungnarétta“ í Aratungu 8.
mars sl. Ekki verður þó unnt að
birta allt efni þeirra hagyrðinga
sem þar áttu um að véla, enda tæki
það allt rúm vísnaþáttarins fram á
mitt næsta ár. Í þessum þætti birtist
því einvörðungu nokkuð af vísum
þeirra Magnúsar Halldórssonar
járnsmiðs á Hvolsvelli og Péturs
Péturssonar „g-læknis“ á
Akureyri. Aðrir þátttakendur
voru auk stjórnandans Guðna
Ágústssonar þeir Kristján
Ragnarsson frá Ásakoti, Reynir
Hjartarson reiðlistamaður
Akureyri, Sigurjón Jónsson frá
Skollagróf og Þórður Pálsson
ráðunautur frá Sauðanesi. Pétur
orti til sessunauta sinna „blíðlegar“
braghendur. Til Magnúsar orti
Pétur:
Magnús slekkur margra þörf
á bekknum.
Dylur ekki afrek sín,
allvel þekkir hross og vín.
Sigurjóni fagnar Pétur svo:
Lítt í hófi löngum prófar skensið.
Skollagrófarskálkurinn
skæting óf í kveðskapinn.
Og um Kristján:
Sífellt otar sínum tota ljótum.
Frá Ásakoti kræfur er.
Kristján skotmark verður hér.
Reyni frænda sínum semur Pétur
svo:
Reynir Hjartar höku- skartar toppi.
Honum kvartað undan er
ef í partý skellir sér.
Og til Þórðar Pálssonar:
Á Þórði fésið þykir spes með réttu.
Sauðanesi sagður frá,
síst mun vesen manninn hrjá.
Auðvitað sendi Pétur völu að
stjórnandanum Guðna:
Framsóknargorgeirinn Guðna vex í,
en gott er að muna vel eftir hinu,
að líklega reynist hann langa á ný
í lúsuga flatsæng með íhaldinu.
Magnús afgreiddi hins vegar
Húnvetninga svona heilt yfir, en
lét Sunnlendinga vera:
Ekki er margt sem Húnvetninga
heftir,
við hnútuköstin eru talsvert iðnir.
Það verður af þeim voða lítið eftir
ef vankantarnir eru burtu sniðnir.
Það sýnist passa við suma enn
sagan um öxina og jörðina,
þó oft væru líka öndvegismenn
innan um glæpahjörðina.
Víst eru þarna vænstu menn,
en vottar sjaldan fyrir hlýðni.
En lygin virðist lifa enn
þó lækki manndrápstíðni.
Til Guðna Ágústssonar orti
Magnús:
Að afrekum sínum ennþá býr,
er um þetta margt að heyra.
Á sínum ferli kysst‘ann kýr
kerlingar og jafnvel fleira.
Hefur brokkað hátt með stert,
hryggðar firrtur tárum,
og mörgum sauðnum greiða gert
Guðni á liðnum árum.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
L
Formleg opnun var á Grillinu á
Hótel Sögu á föstudag í síðustu
viku eftir algera endurnýjun
veitingastaðarins. Leitast var við að
halda í sérkenni staðarins, sem hefur
verið í rekstri í 50 ár. Grillið var að
vísu prufukeyrt eftir endurbætur
hinn 8. febrúar og var m.a. nýtt fyrir
hina miklu matarhátíð Food and
Fun í byrjun mars.
Ingibjörg Ólafsdóttir, fram-
kvæmda stjóri Radisson Blu Hótel
Sögu, lýsti breytingunum á Grillinu
fyrir gestum en þær voru orðnar
mjög aðkallandi eftir 50 ára rekstur.
Skipt var um alla glugga og gólfefni
og breytt um liti þar sem enn eimdi
eftir af litabreytingum sem gerðar
voru á diskótímabilinu. Þá var bleikt,
fjólublátt og svart ríkjandi á grillinu,
þjónar gengu um í bleikum jökkum og
bleikir dúkar hafðir á borðum. Óhætt
er að segja að endurnýjunin á grill-
inu hafi lukkast afar vel, en hún var í
höndum Leifs Welding og Berglindar
Berndsen. Litir eru mjög tónaðir niður
í jarðlitum.
Skreytingar í lofti njóta sín nú mun
betur en áður. Þess má geta að búið er
að setja hurð á suðurgafl
Grillsins þannig að næsta
skref er að gera myndar-
legar svalir út á þak hótels-
ins sem geta gefið staðnum
stórkostlega viðbótarmögu-
leika með því frábæra útsýni
sem þarna er.
Toppklassa starfsfólk
Sigurður Helgason, yfir-
matreiðslumaður Grillsins,
galdraði fram ljúf-
fenga rétti ásamt
starfsfólki sínu þar
sem valinn maður
er í hverju rúmi.
Með Sigurði í eld-
húsinu starfa Atli
Þór Erlendsson
a ð s t o ð a r -
matreiðslu maður
og Hafsteinn
Ó l a f s s o n
matreiðslu maður.
Báðir hafa þeir
tekið þátt í Bocuse
d'Or keppni
m a t r e i ð s l u -
meistara, eins og
Þráinn Freyr Vigfússon sem líka starf-
aði á Grillinu. Nú í vor er Sigurður
sjálfur svo að fara í þessa frægustu
keppni matreiðslumanna í heimi.
Sigurður hóf feril sinn á veitinga-
húsinu Perlunni árið 1998, var val-
inn matreiðslunemi ársins árið 1999
og útskrifaðist með hæstu einkunn
árið 2001. Á árunum 1999-2001
starfaði Sigurður hjá embætti forseta
Íslands við veislu undirbúning undir
sterkri leiðsögn Sturlu Birgissonar.
Nú er hann á leið fyrir Íslands hönd
á Bocuse d'Or, keppni matreiðslu-
meistara í Lyon í Frakklandi sem er
virtasta keppni matreiðslu-
meistara í heimi.
Veitingastjóri Grillsins
er Jakob Már Harðarson,
en hann hóf hann hóf nám
sitt í framleiðslu í Grillinu
á Hótel Sögu árið 1985 og
lauk sveinsprófi í faginu
þaðan þremur árum síðar.
Jakob er hokinn af reynslu
og eftir smá hlé við störf á
öðrum veitingastöðum er
hann aftur kominn á Grillið.
/HKr.
Grillið orðið enn glæsilegra en
áður eftir miklar endurbætur
– gamlar skreytingar fá þó að njóta sín að fullu og fagmannlega að öllu staðið
Ingibjörg Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Radisson Blu Hótel Sögu, Jakob Már Harðarson veitingastjóri og Sigurður
breytingunum.
-