Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 8
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 20138
Fréttir
Jón Þórarinsson á Hnúki í Skíðadal
í Dalvíkurbyggð segist ekki muna
eftir jafn rosalegri snjóatíð og í
vetur. Enn sé allt á bólakafi og ekki
nokkur einasti möguleiki að koma
fé út úr húsum, en sauðburður er
að víða hefjast þessa dagana.
„Þetta er svakalegt. Þó að við
höfum oft séð mikinn snjó fram á
vor hefur það aldrei verið eins og
nú. Þetta er bara samansafnaður
gaddur frá því í septemberáhlaupinu
og síðan í framhaldi af því meira og
minna í allan vetur.
Það tók að vísu upp á láglendi
og túnum eftir septemberhvellinn
en aldrei af fjöllunum. Við munum
aldrei nokkurn tímann eftir því hér
að það geri svo mikla snjóa strax í
október að við þyrftum þá að taka
hross á fulla gjöf og hafa á gjöf allar
götur síðan,“ segir Jón.
Þurfa vélskóflur til að grafa
niður á heyrúllurnar
– Eru menn ekki orðnir heylitlir á
þessum slóðum?
„Jú, og þetta lítur alls ekki vel
út. Þá mun það taka svakalegan
tíma fyrir þennan snjó að taka upp
og engin vísbending um hlýindi í
kortunum. Þetta er orðinn jökull. Við
reyndum að leita að rúllustæðunum
með beittum broddstöfum en það
er ekki hægt að stinga þeim niður
í gegnum snjóinn. Þetta er svo
samanbarið að það hefur ekkert
dugað til að vinna á þessu nema
gröfur.“
Áhyggjur af kali í túnum og
girðingum
–Hvað heldur þú þá með túnin, eru
þau ekki farin að skemmast af kali?
„Það lítur alls ekki vel út með
túnin á þessu svæði. Menn eru orðnir
mjög svartsýnir og sauðburður að
bresta á næstu daga. Þá er reynsla
okkar sú að afföll við sauðburð eru
mest þegar ekki er hægt að koma
lambám úr húsi. Þá hafa menn líka
mjög miklar áhyggjur af ástandi
girðinga. Það er því ekki mjög mikil
bjartsýni ríkjandi hér enda rekur
hvert áfallið annað.
Sækja hey landshorna á milli
Vegna þurrka í fyrrasumar heyjuðum
við með daprara móti í haust. Bændur
hér eru því búnir að kaupa mikið af
heyjum og ekki sér fyrir endann á því.
Fyrst í vetur var hægt að fá hey hér
innan héraðs. Síðan hafa menn verið
að sækja hey í Borgarfjörð og alveg
í Rangárvallasýslur. Það er mikill
kostnaður sem fylgir því að flytja
hey svona landshornanna á milli og
bændur eru farnir að velta vöngum
yfir því hvernig þróunin verði næstu
mánuðina. Heyrúlla sem er verið að
flytja úr Borgarfirði kostar hingað
komin um 11 þúsund krónur.
Brugðist við með fækkun gripa
Vegna þess að menn voru með hey í
minnsta móti í haust fóru þeir strax
að slátra hér hestum og nautgripum.
Hér er t.d. búið að slátra meira af
hestum en nokkur mann eftir. Síðan
í nóvember er búið að senda héðan
úr sveitarfélaginu á milli 70 og 80
hross til slátrunar hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga. Þá hafa menn verið
að grisja hjá sér nautgripina líka eins
og þeir hafa getað. Það er því ekki
ríkjandi hér nein rosaleg bjartsýni.“
Farið að reyna á sálartetrið
Jón segir að ástandið sé farið að
reyna mjög á sálartetrið hjá mörgum.
Þá sé sauðburðurinn á fyrstu bæj-
unum að byrja í þessari viku og fari
á fulla ferð fyrstu dagana í maí.
„Það er ekki fræðilegur möguleiki
að setja fé út því það eru margra
metra háir skaflar í kringum öll hús.
Ég hef stundum sagt að það geti verið
draumur að vaka yfir sauðburðinum
þegar vel viðrar en það getur líka
verið martröð í erfiðu árferði.“ Jón
segist sjálfur samt ekki eins illa
staddur og margir aðrir. Hann sé ekki
með nema 115 kindur og 30 hross
og hafi getað stundað aðra vinnu
meðfram skepnuhaldinu. Samt kalli
þetta á yfirlegu og vökunætur. Hann
segist líka telja að sem betur fer hugsi
flestir bændur um bústofn sinn ekki
síður en fjölskylduna og því ekki
skrýtið að menn hafi áhyggjur. /HKr.
Bændur í Dalvíkurbyggð orðnir uppgefnir á vetrinum sem ekkert lát virðist ætla að verða á:
Snjódýptin víða margir metrar og
leitað að heyrúllum með gröfum
– sauðburður að hefjast en algjörlega vonlaust að koma lambfé út úr húsum
Ótti við alvarlegt kaltjón í Þingeyjarsýslum:
Yfir 60 sentímetra þykkur klaki á túnum í Aðaldal
– bændur hafa miklar áhyggjur af stöðu mála
Veðurfarið hefur leikið þingeyska
bændur grátt undanfarna mánuði
og hafa bændur vægast sagt mjög
miklar áhyggjur af stöðunni.
Mikill snjór er ennþá mjög víða á
túnum í sýslunni og engin merki
um að vorið sé á næstu grösum.
Bændur vita í raun ekki hvað er
undir snjónum en margir óttast
að mjög mikill klaki sé á túnunum,
undir snjónum, sem komi til með
að valda kaltjóni mjög víða. Þetta
kemur fram á vefsíðunni 641.
63 cm þykkur klaki
Þar segir einnig að Benedikt
Kristjánsson bóndi á Hólmavaði í
Aðaldal hafi tekið sig til og borað
holu í klakann sem er á einu túnanna
á Hólmavaði til þess að mæla hve
þykkur hann væri. Hann notaði
ísbor til þess. Þykktin á klakanum
var 63 cm og upp úr holunni gaus
rotnunarfýla mikil þannig að augljóst
er að túnið er ónýtt vegna kals.
Bændur heylitlir
Að sögn Maríu Svanþrúðar
Jónsdóttur ráðunautar á Húsavík eru
margir bændur orðnir mjög heylitlir
og mega því illa við því að seint vori.
Heyfengur bænda varð rýr vegna
kals og kuldatíðar sumarið 2011 og
sumarið 2012 var heyfengur líka rýr
vegna þurrka. Af þeim sökum eiga
bændur litla sem enga fyrninga fyrir
þetta vor og brugðu margir á það
ráð að minnka ásetning síðasta haust
til þess að fækka á fóðrum. Margir
kúabændur hafa sent yngri gripi
til slátrunar í vetur en venjulega,
til að létta á fóðrum. Bændur fá
minna greitt fyrir yngri og léttari
gripi og því ber þetta allt að sama
brunni. Bændur í Þingeyjarsýslu og
Eyjafirði hafa keypt hey í vetur, bæði
úr Borgarfirði og alla leið sunnan úr
Landeyjum. Gríðarlegur kostnaður
er við þessi heykaup en algengt verð
sem greiða þarf fyrir hverja heyrúllu
er um 6-7.000 krónur og annað eins
fyrir flutninginn heim í hlað. Því
miður hefur eitthvað borið á því að
þessar aðkeyptu heyrúllur séu lélegar
og varla skepnufóður í einhverjum
tilfellum.
Girðingar ónýtar
Í septemberóveðrinu eyðilögðust
girðingar mjög víða og ekki hafa
snjóþyngslin í vetur bætt úr skák.
Líklegt er talið að mun meira tjón
á girðingum en blasti við eftir
septemberóveðrið eigi eftir að koma
í ljós þegar snjóa leysir.
Verstu 12 mánuðir árum saman?
Ef veðurfarið í Þingeyjarsýslu er
lauslega skoðað frá því í maí 2012
til apríl 2013 má segja að þessir tólf
mánuðir sé einhverjir þeir verstu til
búskapar í sýslunni síðan 1979. Seint
í maí 2012 kom hressileg stórhríð
og allt fór á kaf í snjó. Sumarið
var líklega það þurrasta í einhverja
áratugi, sem leiddi til þess að tún
brunnu vegna þurrkanna og mjög lítil
uppskera kom af þeim. Seinni sláttur
brást algjörlega hjá langflestum
bændum og heyfengur varð með
minnsta móti. Allir muna svo eftir
fjársköðunum sem urðu í september
og margir þurftu að taka inn kýr í
kjölfar óveðursins vegna þess að
grænfóður og kál eyðilögðust vegna
snjóa. Síðan kom mjög snjóþungur
vetur sem ekki sér fyrir endann á
ennþá.
Engin hlýindi í kortunum
Augljóst er að allur búfénaður hjá
flestöllum bændum í Þingeyjarsýslu
þarf að vera á fullri gjöf langt fram
eftir vori fari ekki að hlýna í veðri
fljótlega. Veðurspáin fyrir næstu
daga gefur ekki tilefni til bjartsýni,
því búist er við áframhaldandi
snjókomu og frosti eftir helgi, eins
langt og spáin nær.
Bændur vonast auðvitað eftir því
að það breyti um veðurlag um eða
upp úr mánaðamótum með hlýjum
sunnanáttum og hláku. Það getur
breytt stöðunni mikið til batnaðar
frá því sem nú er. Þangað til geta
bændur hins vegar ekki annað gert
en að bíða og vona. /MÞÞ
Beita þarf gröfum til að ná heyrúllum upp úr samanbarinni fönninni.
Myndir / Jón Þórisson
Snjódýptin er vel á þriðja metra.
Hvert sem litið er er ekkert nema snjór.
Nei, þetta er ekki nýtt stöðuvatn, heldur svell á túninu á Hólmavaði.
63 cm þykkur klaki er á einu túninu
á Hólmavaði í Aðaldal.
Myndir / Benedikt og Elín á Hólmavaði