Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 12

Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 12
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 201312 Fréttir „Sá sem ekki þyrfti að éta yrði fljótt ríkur.“ Mig minnir endilega að það hafi verið pabbi sem lét sér þessa visku um munn falla. Líklega er nokkuð til í þessu hjá honum. Samkvæmt tölum Eurostat verja Íslendingar 13 prósentum útgjalda sinna til kaupa á mat- og drykkjarvörum. Meðalfjölskyldan eyðir um 750.000 krónum á ári til kaupa á matvöru samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Það mætti nota þá aura í annað. Þar sem ég bý í Vesturbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið úti á Granda, bý ég svo vel að hafa fjöldann allan af matvöruverslunum í göngufæri. Úti á Seltjarnarnesi er Hagkaups- verslun sem opin er allan sólarhringinn. Þangað er 430 metra gangur. Í JL-húsinu við Hringbraut er Nóatúnsverslun sem opin er til miðnættis. Vegalengdin þangað er 885 metrar. Hinum megin við Hringbrautina er Víðisverslun sem opin er til klukkan 23.00. Sé haldið eilítið lengra til norðausturs blasir við verslunin Iceland, opin til klukkan 20.00. Hinum megin götunnar er verslun Bónus. Sú verslun er að jafnaði opin til 18.30. Steinsnar í norðaustur frá Bónusversluninni stendur svo verslun Krónunnar. Þar er hægt að versla til klukkan 20.00 öll kvöld. Vegalengdin í Krónuna frá heimili mínu er 1,5 kílómetrar. Ekki má svo gleyma því að rölti ég í austurátt heiman að frá mér rekst ég fljótlega á Melabúðina, sem einnig er opin til klukkan átta á kvöldin. Þangað þarf ég að ganga 1,3 kílómetra leið, sem er um það bil sama vegalengd og heimreiðin heim að bæ foreldra minna í Skagafirði. Nú veit ég ekki hversu mörgum manneskjum þessar verslanir eiga að þjóna. Vissulega hef ég komið í sumar þessar verslanir þegar verið hefur örtröð í þeim en oftar hefur það nú verið svo að varla hefur verið köttur á kreiki í verslununum. Ég hef líka ekki orðið var við annað en að þessar verslanir selji meira og minna nákvæmlega sömu vörurnar. Í skýrslu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey um Ísland sem kynnt var undir lok síðasta árs kemur fram að verslunarhúsnæði hér er allt of mikið. Verslunarrými á hvern íbúa hér á landi er 4,1 fermetrar samanborið við 2,1 fermetra í nágrannalöndunum, Norðurlandaríkjunum og Bretlandi. Þá er framlegð frá verslunarrekstri mun minni en í viðmiðunarlöndum okkar. Þrjú fyrstu árin eftir bankahrunið voru tæpir 94 milljarðar króna afskrifaðir af lánum til fyrirtækja í verslun og þjónustu. Lánum upp á tæpan 21 milljarð króna var á sama tíma breytt í hlutafé í fyrirtækjunum. Samtök verslunar og þjónustu hafa undanfarið haft hátt um að hag heimilanna sé best borgið með því að lækka vörugjöld og afnema tolla, meðal annars á innflutta matvöru sem er í beinni samkeppni við innlenda búvöru. Þegar litið er til þess sem að framan er rakið örlar nú á því að mér finnist holur hljómur í þeim málflutningi. En skítt með það. Nú bíð ég í ofvæni eftir því að Nettó og Kostur finni sér húsnæði til að opna verslanir í Vesturbænum. Fjandinn hafi það, ég vil líka fá Fjarðarkaup! Er ekki augljóst að samkeppni er af hinu góða? /fr STEKKUR Ísland er eldfjallaeyja. Löng og fjölbreytt gossaga landsins mark- ar djúp spor í þjóðar vitundina ekki síður en í jarðveginn sjálfan. Áþreifanlegan vitnisburð um stór- an hluta þessarar sögu er að finna og sjá í jarðlögunum en aðgengi fyrir almenning að slíku jarðvegs- sniði hefur verið fremur fágætt. Hörður Davíðsson, eigandi Hótel Laka og ábúandi á Efri-Vík í Landbrotinu, stóð fyrir því síðast- liðið haust að grafið væri jarðhýsi í Landbrotshólunum – skammt frá Hótel Laka – í þeim tilgangi að greiða götu ferðamanna að jarð- lögum undanfarinna þúsund ára. Markverðustu gosin með sérkennileg goslög Hörður segir að jarðhýsið sé frost- frítt og rafvætt og sé því sýningar- hæft allan ársins hring. „Þar má sjá ummerki um gos í Landbrotinu í meira en þúsund ár. Markverðustu öskulögin hafa sín sérkenni. Öræfagosið árið 1362 er ljósleitt, lagið frá 1205 úr Veiðivötnum (Ljótapolli) er grænleitt og Kötlugosið 1918 er mjög þykkt. Mörg önnur öskulög eru þarna líka sem ég ekki þekki og væri vel þegið að fá einhvern öskufróðan í heimsókn til að setja þau í samhengi. Við byggingu jarðhýsisins slóg- um við tvær flugur í einu höggi. Við ákváðum að grafa í gegnum gamlan garð sem hefur hrunið fyrir 900 árum. Garðsbrotið sést vel í jarðvegssniðinu. Fyrir um þúsund árum var blómleg byggð hér fyrir austan Landbrotshraunið sem hét Skjaldbreið. Þetta hefur verið það þróuð byggð að íbúar hennar hafa talið þörf á að halda búsmala heima og/eða halda honum frá byggðinni. Byggðu þeir þá þennan garð sem heitir Bjarnagarður og er hann ellefu kílómetra langur, liggur frá Ásgarði í norðri að Hraunkoti í suðri. Þetta hefur verið með mestu mannvirkjum Íslandssögunnar á þeim tíma. Fyrir tveimur árum byggðum við Skúli Jónsson þarna fimmtíu metra langan garð sem við teljum að líkist hinum forna garði.“ Fróðlegt fyrir leika og lærða Hörður segist vera byrjaður að sýna ferðamönum jarðhýsið, sem hann kallar goslagabyrgi. „Það kom ekki á óvart að jarðfræðimenntað fólk hefur gaman af að skoða þetta en það kemur skemmtilega á óvart hvað hinn almenni ferðamaður hefur mikinn áhuga á gossögunni og Bjarnagarði. „Vegna jákvæðra viðbragða ætlum við að lengja jarðhýsið um nokkra metra og fara dýpra niður og vonandi niður fyrir þykkt lag sem er eftir hamfarahlaup – ef til vill það sem Jón Steingrímsson sagði frá í eldritinu. Svo eigum við eftir að setja upp skilti sem sýnir legu og tilurð Bjarnagarðs og fróðleik um hvernig Landbrotshólarnir urðu til.“ Goslagabyrgið er öllum opið án endurgjalds, ferðamönnum sem öðrum. /smh Keypt og skorið Goslögin í Landbrotinu til sýnis – auk hins fornfræga Bjarnagarðs Hér til vinstri á myndinni má sjá garðinn sem Hörður hefur reist eins og hann telur að Bjarnagarður gæti hafa verið. Út frá honum sér í Goslagabyrgið og í gegnum það gengur hinn fornfrægi Bjarnagarður. Mynd / smh Hörður Davíðsson stendur hér við goslögin í Goslagabyrginu. Ljósleita lagið er talið vera úr Öræfagosinu árið 1362. Bændurnir í Fjósatungu í Þing- eyjarsveit, Ástþór Örn Árnason og Svana Ósk Rúnarsdóttir, og fjölskyldur þeirra vilja koma á framfæri sínum bestu þökkum til allra þeirra sem hafa stutt þau á einn eða annan hátt síðustu vikur vegna fráfalls litlu dóttur þeirra, Lilju Dóru Ástþórsdóttur, þann 15. mars síðastliðinn. Hjálpin skipti sköpum Ástþór og Svana segja að hjálp, hlýhugur og stuðningur í þeirra garð hafi skipt sköpum. Ómetanleg sé hjálp sveitunga og annarra við bústörfin í Fjósatungu, stuðningur í gegnum styrktarreikning, samvera, símtöl, kveðjur og góðar óskir. Vaskur hópur rúningsmanna Myndin var tekin af vöskum hópi rúningsmanna sem tóku að sér að rúninginn fyrir Fjósatungubændur í mars en margir aðrir bændur, nágrannar, vinir og velunnarar hafa styrkt Ástþór og Svönu með ýmiss konar aðstoð og framlögum eða lagt hönd á plóg við bústörfin. Auk þess hafa nokkrir boðist til að aðstoða í komandi sauðburði, en í Fjósatungu bera yfir 800 ær í vor. „Það er ómetanlegt að finna stuðninginn og samkenndina frá bændum um land allt og raunar frá fólki alls staðar úr samfélaginu, kærar þakkir frá Fjósatungu.“ Kveðja og þakkir frá Fjósatungu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.