Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
Skriðuklaustur einn af fjölsóttari áningarstöðum ferðamanna á Austurlandi:
Um 20 þúsund gestir árlega og búist við að þeir verði fleiri í ár
Skriðuklaustur er vinsæll áfanga-
staður ferðalanga sem leið eiga
um Austurland og þangað koma
árlega um 20 þúsund ferðamenn,
langflestir yfir sumartímann.
Skúli Björn Gunnarsson,
forstöðu maður Gunnars-
stofnunar á Skriðu klaustri, segir
að búist sé við miklum fjölda
gesta á komandi sumri, en í
lok síðasta sumars var opnað
formlega minjasvæði á staðnum
að lokinni einni umfangsmestu
fornleifarannsókn síðari ára.
Rannsóknin stóð í áratug, hófst
árið 2002 og lauk í fyrrasumar
með frágangi minjasvæðisins,
en hún náði til rústa hins forna
Ágústínusarklausturs sem stóð á
staðnum á 16. öld og kirkjugarðs.
Æ fleiri útlendingar
Skúli Björn segir að fram til þessa
hafi bróðurpartur þeirra sem sæki
staðinn heim verið Íslendingar, en
hin seinni ár hafi hlutfall þeirra
erlendu ferðamanna sem leggja
þangað leið sína vaxið.
„Þeir eru að sækja í sig veðrið,
sífellt fleiri erlendir gestir koma til
okkar og það er ánægjulegt,“ segir
hann, en m.a. hafa farþegar af
skemmtiferðaskipum sem leggjast
að á Austfjarðahöfnum viðkomu
á Skriðuklaustri í hópferðum sem
þeim standa til boða.
Tvær klausturreglur störfuðu á
Íslandi á miðöldum, Benediktsregla
og Ágústínusarregla og er talið að
alls hafi 9 klaustur verið starfrækt
hér á landi en Skriðuklaustur var síð-
asta klaustrið sem efnt var til á kaþ-
ólskum tíma árið 1493. Grunnform
klausturbygginga og kirkju voru í
samráði við Fornleifavernd ríkisins
(nú Minjastofnun Íslands) hlaðin
upp í kjölfar uppgraftrar. Búið er að
tyrfa veggi og ganga frá umhverfi
með stígum úr viðarkurli. Þannig
að hægt er að feta í fótspor þeirra
sem dvöldu í klaustrinu fyrir 500
árum. Eins hefur útsýnispalli verið
komið fyrir ofan við svæðið og
fræðsluskiltum á íslensku og ensku.
Minjasvæðið hefur aðdráttarafl
„Við eigum von á að nýja
minjasvæðið hafi mikið
aðdráttarafl og laði að sér gesti.
Margir hafa komið hér og fylgst
með uppgreftrinum, en á meðan
á honum stóð var boðið upp á
leiðsögn um svæðið sem margir
þáðu og höfðu gagn og gaman að.
Nú geta gestir gengið um rústir
hins forna klausturs sem hér var
starfrækt á tímabilinu 1493-1554,
gert sér í hugarlund hvernig daglegt
líf var hér á staðnum og upplifað
stemmninguna,“ segir Skúli
Björn. „Þetta er stærsta frágengna
fornleifasvæði á landinu og frá því
gengið með öðrum hætti en fólk á
að venjast. Við hlökkum til að sýna
gestum svæðið næsta sumar.“
Í tengslum við opnun minja-
svæðisins kom út bókin Sagan af
klaustrinu á Skriðu eftir dr. Steinunni
Kristjánsdóttur fornleifafræðing, en
hún stýrði uppgreftrinum sem eins
og áður segir var sá viðamesti sem
ráðist hefur verið í um árabil. Skúli
Björn segir að bókin hafi vakið
verðskuldaða athygli, en í henni
er saga staðarins rakin, sagt frá
leitinni að klaustrinu og óvæntum
niðurstöðum sem uppgröftur leiddi
í ljós. Meðal þess sem í ljós kom
við rannsóknina er að á Skriðu
var ekki aðeins aðsetur munka
með helgihald og heitum bænum,
heldur var þar einnig skjól fyrir
sjúka og dauðvona. „Bókin hefur
fengið góðar viðtökur og hún vekur
óneitanlega athygli á staðnum.“
Margt við að vera
Skúli Björn bendir á að þó hið
glæsilega minjasvæði hafi mikið
aðdráttarafl sé ýmislegt fleira
áhugavert að skoða á staðnum auk
þess sem um hann fari ferðamenn
sem leið eigi að Kárahnjúkum,
inn að Snæfelli eða á aðra staði á
hálendinu á austanverðu landinu.
Skriðuklaustur í Fljótsdal liggur
á milli hinna fornu höfuðbóla
Valþjófsstaðar og Bessastaða. Þar
reisti Gunnar Gunnarsson skáld
stórhýsi sitt árið 1939 þegar hann
sneri heim eftir rúmlega 30 ára dvöl
í Danmörku. Hann dreymdi um að
reka stórbúskap á Skriðuklaustri
líkt og hann hafði kynnst á megin-
landinu, en Gunnar hafði alla tíð
mikla trú á íslenskum landbúnaði.
Réðst hann í jarðabætur og beitti
sér fyrir stofnun ræktunarsambands
á Héraði. Búrekstur varð þó aldrei
stór í sniðum, mest um 360 fjár, 10
hestar, 5 kýr, nokkrir nautgripir, svín
og fiðurfénaður. Fjölskyldan flutti
búferlum frá Skriðuklastri 1948 og
gáfu Gunnar og Franzisca kona hans
íslensku þjóðinni jörðina árið 1948.
Margrétarsaga austur
Gunnarsstofnun hefur frá árinu 2000
rekið menningar- og fræðasetur á
Skriðuklaustri. Skúli Björn segir
að áhersla sé lögð á að starfsemin
sé lifandi og í boði eru sýningar af
margvíslegu tagi, þar eru haldnir
fyrirlestrar, tónleikar og aðrir
viðburðir. „Aðsetur stofnunarinnar
er hér á Skriðuklaustri, en starfs-
vettvangurinn er allt Austurlandi og
í raun allur heimurinn því að við erum
m.a. að höndla með höfundarrétt að
bókum Gunnars og í samskiptum við
erlenda útgefendur,“ segir hann.
Skúli Björn segir að í vor hefjist
samstarf á milli Gunnarsstofnunar og
Árnastofnunar og bindur miklar vonir
við það. Skriðuklaustur verði einn
af þeim stöðum sem fóstrar handrit í
sumar í tilefni af 350 ára afmæli Árna
Magnússonar. Margrétarsaga, sem
gæti hafa verið skrifuð í klaustrinu
á Skriðu á sínum tíma verður þá til
sýnis fyrir gesti. „Við hlökkum mjög
til að sýna Margrétarsögu, það er
verulegur fengur að því fyrir okkur að
fá það austur til okkar, og mun falla
vel að stórri sýningu sem við erum
með um klaustrið og rannsóknina á
því,“ segir hann.
Veitingar úr héraði
Skúli Björn segir að eins og vera ber
á svo fjölsóttum ferðamannastað geti
gestir notið veitinga, en á neðri hæð
Gunnarshúss er veitingastaðurinn
Klausturkaffi. Íslensk matargerð er
þar í hávegum höfð og áhersla lögð
á að nota hráefni úr heimabyggð,
lambakjöt, hreindýrakjöt, hrútaber og
lerkisveppi svo eitthvað sé nefnt. Allt
sem á boðstólum er er heimabakað.
Þá má nefna að Klausturkaffi
framleiðir og selur matarminjagripi
eins og fíflahunang, hvannarsultu og
hrútaberjahlaup. Gamla borðstofan
í Gunnarshúsi og sólstofan undir
svölunum taka um 50 manns í sæti en
á góðviðrisdögum er hægt að setjast
út á suðurstétt og sleikja sólskinið
með heimagerðum ís.
Þá má nefna að á vegum
Gunnarsstofnunar er rekin gesta íbúð á
Skriðuklaustri, sem nefnist Klaustrið
og er fyrir lista- og fræðimenn
Mynd / Steingrímur Karlsson
Mynd / SBG
náttúrunnar.