Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar landbúnaðar vörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Stuðla skal að lækkun tolla með gagn- kvæmum fríverslunarsamningum, en gæta jafnframt að stöðu innlendrar landbúnaðar- framleiðslu. 2. Hver er afstaða framboðsins gagn- vart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Flokkur heimilanna hafnar slíkum inn- flutningi. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Já. Með því að koma til móts við heimili bænda og fyrirtæki þeirra með því að stöðva yfirtöku fjármálastofnana og afborganir af gengis- og verðtryggðum neytendalánum uns dómsniðurstaða fæst um lögmæti lánanna. Á meðan séu samningsvextir greiddir af lánum. Dæmist lánin ólögleg þurfa fjármálastofnanir að greiða oftekna vexti og verðbætur ásamt skaðabótum til þeirra sem hraktir hafa verið frá jörðum sínum og eignum. Garðrækt er að takast á við nýja tíma með stórkostlegum aukningu framleiðslu á innanlandsmarkað, þrátt fyrir samkeppni við tollfrjálsan innflutning og hyggur á útflutning. Það hefur verið gert með því að koma til móts við markaðinn með verulega bættri framleiðslu. Kornrækt með repju- og nepjurækt býður upp á mikla möguleika, sem þegar er búið að sýna fram á að getur verið hagkvæm og tengist fæðu- og matvælaöryggi landsins. Byggja þarf upp fóður- og þurrkunarstöðvar með úrvinnslumöguleikum, sem tryggi verslunarmöguleika á landsvísu með stuðningi ríkisins. Rafmagnsframleiðslu heimarafstöðva á að gera hagkvæma með lagfæringu á rafmagnsverðinu, þannig að greiðslur fyrir orkuna hækki, en flutningsverðið lækki samsvarandi af þessari framleiðslu, sem myndi leggja grunn að betri fjárhagsafkomu þeirra bænda, sem myndi nýtast til landbúnaðarframleiðslunnar. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópu sambandið? Er framboðið fylgj- andi eða andvígt aðild að sambandinu? Láta kjósa um framhald viðræðna. Flokkur heimilanna er andvígur aðild. 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar land- búnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Húmanistaflokkurinn telur að tollar og innflutningsgjöld séu eðlileg með það að markmiði að verja íslenskan landbúnað. 2. Hver er afstaða framboðsins gagn- vart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Við teljum að landbúnaðurinn eigi að njóta góðs af vafanum varðandi þá áhættu sem fylgir innflutningi dýra og innflutning á hráu kjöti. 3.Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Húmanistaflokkurinn telur það vera grund- vallarmál að tryggja fæðu- og matvæla- öryggi í landinu. Það verður gert með því að vera í góðu samstarfi við framleiðendur í landbúnaði og á öðrum sviðum þar sem matvæli eru framleidd og og búa þessum aðilum góð starfsskilyrði. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið? Er framboðið fylgj- andi eða andvígt aðild að sambandinu? Húmanistaflokkurinn er andvígur inn- göngu Íslands í Evrópusambandið og vill að hætt verði viðræðum um aðild að því. Hins vegar teljum við að það ætti að setja spurninguna um áframhaldandi viðræður í þjóðaratkvæðagreiðslu því það er mikil- vægt að þjóðarsátt ríki um þá stefnu sem tekin verður. Þessa þjóðaratkvæðagreiðslu ætti að hafa við fyrsta tækifæri eftir að þing kemur saman. HúmanistaflokkurinnFlokkur heimilanna Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Ný lög um búfjárhald og velferð dýra: Skilvirkari viðbrögð við illri meðferð á dýrum – allt eftirlit með velferð dýra nú hjá Matvælastofnun Undir lok þinghalds á Alþingi á dögunum voru ný lög um velferð dýra samþykkt og sömuleiðis voru þá samþykkt ný lög um búfjárhald. Með þessum nýju lögum hefur allt eftirlit með velferð dýra verið fært til Matvælastofnunar (MAST) og sömuleiðis heyrir málaflokkur dýravelferðar nú allur undir eitt ráðuneyti; atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Áður var dýraverndin hjá Umhverfisstofnun – undir umhverfisráðuneytinu. Lögin taka gildi um næstu áramót, en fimmtudaginn 16. maí nk. mun verða efnt til kynningarráðstefnu um þessi nýju heildarlög og verður hún auglýst nánar með dagskrá er nær dregur. Sigurborg Daðadóttir er yfirdýralæknir hjá MAST og mun bera ábyrgð á eftirliti með þessum málaflokkum með gildistöku nýju laganna. „Með nýjum lögum verður stjórnsýslan einfölduð til muna, öll stjórnsýsla um málefni dýravelferðar verður undir einu ráðuneyti og einni stofnun. Þetta mun hraða afgreiðslu mála og viðbrögð við illri meðferð dýra ættu að verða skilvirkari. Fyrra fyrirkomulag fól í sér aðkomu tveggja ráðuneyta, tveggja stofnana, allra sveitarfélaga og allra lögregluumdæma landsins. Sveitarfélög munu með nýjum lögum ekki hafa neina aðkomu að dýravelferðar málum nema sem eigandi villtra og hálfvilltra dýra (ómerkt dýr sem ganga laus) – auk þess að taka týnd dýr í vörslu sína. Lögreglan mun áfram gegna hlutverki varðandi tilkynningar um neyðartilvik og þar sem beita þarf þvingunum við aðgerðir. Núverandi búfjáreftirlit verður samtvinnað öðru eftirliti Matvælastofnunar, bændur fá þá aðeins einn eftirlitsaðila varðandi fóður, fjölda gripa, merkingar, heilbrigði og velferð dýra – auk úttekta vegna matvælaframleiðslu. Langur aðdragandi að betri lögum Aðdragandi nýrra laga er langur, að sögn Sigurborgar. Í kjölfar áskorana sem komu frá Dýraverndarráði, árið 2006, og Dýralæknafélagi Íslands, árið 2007, samþykkti þáverandi umhverfisráðherra að skipa nefnd til að endurskoða lög varðandi velferð dýra. Fljótlega varð nefndin sammála um að eftirlitið ætti að færast á eina hendi, til Matvælastofnunar, sem hefði bestu fagþekkingu á málaflokknum. Þetta tafði vinnu nefndarinnar nokkuð því ráðuneytin (umhverfisráðuneyti og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti) þurftu að ganga frá samkomulagi þessa efnis og nefndin var endurskipuð í kjölfarið. Nefndin leitaði fyrirmynda í nágrannalöndum okkar. Noregur var með ný lög – og er EFTA-ríki eins og Ísland – og því var ákveðið að hafa norsku lögin sem fyrirmynd enda fannst nefndarmönnum margt mjög gott í þeim. Nefndin skilaði einróma tillögum að frumvarpi sumarið 2011, það fór í opna umsögn þá um sumarið. Ráðuneytið lagði frumvarpið fram nokkuð breytt haustið 2011, breytingarnar vöktu sterk viðbrögð í samfélaginu og var frumvarpið lagt aftur fram 2012 og þá að mestu búið að taka út breytingarnar sem gerðar höfðu verið á tillögum nefndarinnar. Í meðförum Alþingis var tekið tillit til fjölmargra umsagna sem bárust, m.a. var hætt við að krefjast leyfisveitingar til dýrahalds en í stað þess kom skylda til standast úttekt Matvælastofnunar áður en starfsemi hæfist í umfangsmiklu og tæknivæddu dýrahaldi. Einnig voru gerðar breytingar á greinum sem fjalla um aðgerðir stjórnvalda, þær gerðar skýrari, þannig að dýraeigendum væri ljóst við hverju þeir mættu búast ef lögin yrðu brotin og ákæruvaldinu gerð vinnan einfaldari. Einnig var tekið út ákvæði í frumvarpinu þess efnis að skerða mætti opinberar greiðslur til þeirra bænda sem ítrekað brjóta lögin. Í heildina er ég sátt við nýju lögin, fjölmörg nýmæli eru í þeim – dýrum til bóta.“ Dýr eru skyni gæddar verur „Stærsta efnislega breytingin á lögunum er að í þeim er viðurkennt að dýr séu skyni gæddar verur, það þýðir að dýr finna til bæði líkamlega og andlega, þess vegna setjum við reglur um umgengni okkar við dýr. Með þeim er skýrt hver ber ábyrgð á dýrunum; að hugsað sé vel um þau og þeim komið til hjálpar, hvort heldur þau séu gæludýr, eldisdýr eða villt dýr – og bannað verður að fara illa með dýr. Grasbítar skulu fá að bíta gras, dýr skulu fá tilhlýðilega umönnun við sjúkdómum eða slysum m.a. er dýraeigendum gert skylt að koma upp útbúnaði svo hægt sé að annast um dýr og meðhöndla þau. Bannað verður að hafa samræði eða önnur kynferðismök við dýr, ekki má nota lifandi dýr sem fóður, agn eða skotmark við æfingar og dýraat verður bannað. Skýrt verður hvað má ekki gera við dýr og hvað má gera við dýr og með hvaða skilyrðum. Einnig verður skýrt hver má gera hvað. Það verður því t.d. refsivert að bóndi taki upp á því að gefa nýfæddum lömbum og kálfum sprengitöflur sem gömul frænka átti. Drekking dýra verður bönnuð en þó með þeirri undantekningu að heimilt verður að drekkja minkum í skipulögðum aðgerðum stjórnvalda. Þá verður bannað að aflífa dýr sem skemmtiatriði eða í keppni. Bannað verður að sleppa dýrum sem alist hafa upp hjá mönnum út á guð og gaddinn, svo einhver efnisleg nýmæli séu nefnd.“ Sigurborg segir að nýju lögin setji rammann og reglugerðum sé síðan ætlað að útfæra nánar, t.d. í sambandi við það að grasbítum sé tryggð beit. „Í reglugerð yrði t.d. kveðið á um aldur, svo sem að kálfar yngri en x-mánaða í upphafi beitartímabils og graðnaut þurfi ekki að setja út á beit. Einnig yrði þar ákvæði um tímalengd beitar að lágmarki og þá ekki síst með keppnis- eða hestaleiguhross í huga.“ Betri þvingunarúrræði gagnvart vanrækslu Á undanförnum misserum hafa komið upp nokkur erfið mál þar sem sannarlega hefur átt sér stað ill meðferð á dýrum og búfé. Erfiðlega hefur gengið að taka á slíkum málum með viðunandi úrræðum en að sögn Sigurborgar verða Matvælastofnun færð verkfæri með nýjum lögum til að taka skipulega á slíkum málum, sem séu þó afar breytileg að efni og umfangi. „Þessi mál geta spannað allt frá illri meðferð eins gæludýrs upp í viðvarandi illa meðferð á þúsundum dýra. Áhrifamesta verkfærið er án efa sektir, það er bæði gömul saga og ný að peningar skipta miklu máli til að ná fram breyttri hegðun fólks. Matvælastofnun mun geta sektað fyrir brot sem átt hefur sér stað og uppgötvast t.d. ekki fyrr en við slátrun. Það er jú of seint að krefjast úrbóta þegar dýrin eru dauð, dæmi um þetta er ef of þétt hefur verið á dýrum eða þegar dýr hafa liðið þjáningar, t.d. þegar lambhrútar og kálfar eru geltir án deyfingar – að ógleymdum grísunum. Þá er sekt áhrifarík refsing að mínu mati. Þar sem er viðvarandi vanræksla á dýrum, t.d. í nokkrum málum sem komið hafa upp á síðustu misserum, er stjórnsýslan einfölduð með nýjum lögum. Málin verða alfarið á hendi Matvælastofnunar og hún getur beitt dagsektum eða látið vinna verk á kostnað eiganda. Síðasta úrræðið er svo að taka dýrin af fólki, það verður alfarið á hendi Matvælastofnunar, ekki þarf að leggja það fyrir lögreglustjóra til ákvörðunar eins og nú er.“ /smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.