Bændablaðið - 24.04.2013, Page 46

Bændablaðið - 24.04.2013, Page 46
46 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur Í kvæðinu Mold kallar Steinn Steinarr þann hluta jarðvegsins sem í daglegu tali nefnist mold drottningu lífsins, móður og líf- gjafa allra lifandi vera. Þetta er fallegt og að öllum líkindum rétt því gróður jarðar er háður moldinni og flestar aðrar lífverur háðar gróðri. Mestur hluti jarðvegs er upp- runninn í föstu bergi sem hefur veðrast og molnað niður í smáar agnir. Plönturnar nota agnirnar sem næringarefni til vaxtar og viðhalds þegar þær hafa leyst upp í vatni. Í jarðvegi er einnig mikið af líf- rænum leifum plantna og dýra. Mismunandi jarðvegur Allur jarðvegur á Íslandi hefur myndast eftir síðustu ísöld og er því í hæsta lagi 10.000 ára gamall og hefur þá sérstöðu að vera að mestu gerður úr basalti. Grónu landi er skipt í votlendi, mólendi og malarborinn eða grýttan jarðveg. Gróðurlausu eða lítt grónu landi er skipt í sanda, malarborið og grýtt land, og land án jarðvegs. Einkenni votlendis er að grunn- vatnsstaða er há og vegna súrefnis- skorts brotna lífræn efni hægt niður. Votlendi er skipt í hallamýrar, flæði- mýrar og flóa. Mólendi einkennist af áfoksefnum og sandi. Móajarðvegur er þurr og fokgjarn ef sár koma í gróðurþekjuna. Mólendi er skipt í gras-, lyng- og hrísmóa. Gróðurrýr jarðvegur, eins og sandar, er fokgjarn en auðveldur í vinnslu. Ræktun í sandi getur verið erfið í þurrkatíð vegna þess að hann heldur illa vatni. Sandur skiptist í fok-, jökul- og fjörusand. Land án jarðvegs telst nýtt hraun og berir klettar og líkist því sem við þekkjum af myndum frá tunglinu. Þess má geta að tunglfarar voru þjálfaðir við slíkar aðstæður hér á landi. Jarðvegsbætur Vanda verður vel allan undirbúning jarðvegs fyrir ræktun því árangur hennar er háður því að jarðvegurinn sé góður. Það eru fyrst og fremst eðliseiginleikar eins og jarðvegs- uppbygging og samsetning næringar- efna sem ráða frjósemi jarðvegsins. Jarðvegsuppbygging ræðst af hol- unum í jarðveginum og æskilegast er að þær séu bæði stórar og smáar. Í smáu holunum geymist vatn og súrefni en þær stóru sjá um að leiða regnvatn niður í jarðveginn. Engin ein jarðvegsgerð uppfyllir öll skilyrði til ræktunar. Því er tilvalið að blanda saman ólíkum jarðvegsefnum til að fá hentugan ræktunarjarðveg. Búfjáráburður gerir öllum jarð- vegi gott. Hann er ríkur af næringar- efnum sem leysast hæfilega hratt upp og auðugur af lífrænum efnum sem byggja upp jarðveginn. Rakastig jarðvegs Til þess að plöntur vaxi og dafni þurfa þær vatn. Það verður því að búa plöntum umhverfi þar sem þær hafa aðgang að nægu vatni. Jarðvegurinn þarf að vera hæfilega rakur og í honum verður að vera nægilegt loft. Holur, fylltar lofti, þurfa að vera um 10 til 15% af rúmmáli jarðvegsins til þess að ræturnar fái nóg súrefni. Blautur jarðvegur er kaldur, loft- lítill, hefur slæm áhrif á rótarvöxt og hægir á vexti ofanjarðar. Starfsemi jarðvegsgerla og smádýra verður lítil og það hægir á rotnun. Starfsemi líf- vera í jarðvegi bætir ástand hans og flýtir rotnun plöntuleifa og hringrás næringarefna. Lífverur í jarðvegi Í jarðvegi er urmull smárra lífvera sem bæta hann með starfsemi sinni. Jarðvegsdýrin umbreyta lífrænum leifum, kljúfa torleyst efnasambönd og breyta þeim í það form sem plöntur geta nýtt. Plöntur af ertu- blómaætt lifa í sambýli við rótargerla sem framleiða nitur/köfnunarefni úr andrúmslofti. Þegar gerlarnir drepast og rotna losnar nitrið út í jarðveginn, plöntunum til góðs. Á rótum ýmissa trjátegunda lifa sveppir í samlífi við trén. Samlífi róta og sveppa nefnist svepprót og er fólgið í næringarefnaskiptum. Sveppirnir sjá trénu fyrir stein- efnum en tréð sér sveppunum fyrir lífrænum næringarefnum. Á Íslandi finnast að minnsta kosti tíu tegundir ánamaðka. Þeir nærast á rotnandi leifum plantna og smásæjum jarðvegsdýrum. Ánamaðkurinn grefur göng í moldinni og í frjósömum jarðvegi eru þeir margir. Rætur plantnanna fylgja oft ánamaðkagöngunum, þær vaxa eftir þeim og nýta sér nær- ingarefni í ánamaðkasaur og slími sem þekur göngin. Sýrustig jarðvegs Með sýrustigi jarðvegs er átt við fjölda óbundinna vetnisjóna í jarð- veginum. Sýrustig er táknað með pH. Þegar sýrustigið er á milli 0 og 7 er sagt að jarðvegurinn sé súr, en basískur sé hann með pH milli 7 og 14. Jarðvegur með sýrustigið 7 er hlutlaus. Sýrustig er því hærra sem pH-talan er lægri en basískara eftir því sem talan er hærri. Sýrustig jarðvegsins hefur mikil áhrif á plönturnar. Áhrifin eru bæði bein og óbein og eru hin óbeinu mun meiri. Beinna áhrifa gætir ekki á plöntum þótt sýrustigið sveiflist innan vissra marka, pH 4,5-8,0. Það er ekki fyrr en jarð- vegur er orðinn mjög súr eða mjög basískur að það dregur úr vexti. Hver tegund á sitt kjörstig sem hún dafnar best við. Mold – lífgjafi jarðarinnar Jarðvegsuppbygging ræðst af holunum í jarðveginum og æskilegast er að þær séu bæði stórar og smáar. Ánamaðkurinn grefur göng í mold- inni og er besti vinur ræktunarfólks. Vanda verður vel allan undirbúning jarðvegs fyrir ræktun því árangur hennar er háður því að jarðvegurinn sé góður. Minni á að 5. maí er alþjóðlegi „Verum nakin í garðinum dagurinn“ (World Naked Gardening Day) og er þetta í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur. Íslensk garðyrkjuáhugafólk og starfsfólk garðyrkjustöðva og gróðurvöruverslana er að sjálfsögðu hvatt til að taka þátt í þessu skemmtilega átaki og viðra belginn, brjóstin og bossann í tilefni dagsins. Garðyrkja & ræktun

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.