Bændablaðið - 24.04.2013, Page 49
49Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
ráðuneytinu í 15 ár. Fram að því
ýmis störf í borg og sveit eins og við
tölvukennslu, landmælingar, verslun,
þjónustu og almenn sveitastörf.
Nafn: Ólafur Þór Þórarinsson.
Starfsheiti: Ráðunautur í búrekstri.
Starfsstöð: Selfoss.
Uppruni og búseta: Búsettur í
Laugardælum, fæddur þar og uppal-
inn (í Laugardælum var tilraunabú
Búnaðarsambands Suðurlands til
margra ára).
Menntun og fyrri störf: BSc í
tölvunarfræði frá Háskóla Íslands
1990, stúdent frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands 1985. Hefur starfað hjá
Bssl frá 1990, fyrst við bændabók-
hald og síðar bókhald og fjármál bún-
aðarsambandsins einnig, en fyrsta
verkið þar var að kynna bændum
virðisaukaskattinn. Hóf búrekstur
með bróður sínum í Laugardælum
1987 með mjólkurframleiðslu og
hesta en nú eingöngu hross. Fyrir
það, með skóla og á sumrin voru það
almenn sveitastörf. Er í 50% starfs-
hlutfalli á móti bókhalds- og fjár-
málum hjá Bssl.
Nafn: Sigríður Bjarnadóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur í búrekstri.
Starfsstöð: Akureyri.
Uppruni og búseta: Er frá
Eyhildarholti í Hegranesi í
Skagafirði. Búsett í Hólsgerði í
Eyjafjarðarsveit ásamt Brynjari
Skúlasyni og fjórum börnum.
Menntun og fyrri störf:
BSc-gráða í hestafræðum
frá Há skólanum Hólum/
Landbúnaðar háskóla Íslands 2010,
kennslu fræði til kennslu réttinda
frá Háskólanum Akur eyri 2002,
MSc-gráða frá Landbúnaðar-
háskólanum Ási, Noregi, 1993.
Búfræðipróf frá Bænda skólanum
á Hólum 1987 og stúdentspróf
frá Menntaskólanum á Akureyri
1986. Ráðunautur á Búgarði frá
2005, tilraunastjóri Rannsókna-
miðstöðvar land búnaðarins
á Stóra-Ármóti í Flóa 1997-
1999, sérfræðingur hjá RALA á
Möðruvöllum í Hörgárdal 1994-
1997.
Nafn: Sigríður Ólafsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur í
búrekstri og hlunnindum.
Starfsstöð: Blönduós.
Uppruni og búseta: Fædd og
uppalin í Víðidalstungu í Víðidal,
býr þar enn og rekur sauðfjárbú
ásamt fjölskyldu sinni.
Menntun og fyrri störf:
Meistaragráða í búvísindum árið
2012 og búfræðipróf árið 2004
frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Stúdentspróf af hagfræði- og
viðskiptabraut frá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra árið 2002.
Starfaði við sauðfjárrækt, skýrslu-
hald í hrossa rækt, áburðar áætlanir
og túnkorta gerð hjá Leiðbeininga-
miðstöðinni ehf. og við
sauðfjárrækt og áburðaráætlanir
hjá Búnaðar sambandi Suður-
lands. Er stundakennari við
Landbúnaðar háskóla Íslands og
ráðunautur í hlutastarfi.
50
100
150
200
250
300
350
2006 2007 2008 2009 2010 2011
Hl
ut
fa
lls
le
g
hæ
kk
un
fr
á
ár
in
u
20
06
Áburður
Olía
Kjarnfóður
Mjólk, seld
Dilkakjöt
Ungnaut, geldneyti
Neysluverðsvísitala
Skýrsluhald um rekstur – Gagnagrunnur BÍ
Þróun tekna á kúa- og sauðfjárbúum.
B ó k h a l d s g ö g n b æ n d a
m y n d a m i k i l v æ g a s t a
gagnasafn rekstrarráðgjafar í
einstaklingsbundinni ráðgjöf. Þá
eru gögnin nauðsynleg undirstaða
til að meta þróun í landbúnaði,
breytingar í búrekstri og sem
grunn í kjarabaráttu bænda. Á
grundvelli þeirra er hægt að meta
ávinning eða tap af breytingum,
hagræðingarmöguleika og
framþróun í rekstri.
Vinna við rekstrargreiningu
fyrir kúabændur sem tengir
saman rekstrargögn og önnur
skýrsluhaldsgögn er á lokametrunum.
Verkefnið gengur undir heitinu
„Betri bú“ og myndræn framsetning
á greiningunni gerir mögulegt að
benda á veikleika og styrkleika
viðkomandi bús.
Vonandi hefst fljótlega
sambærileg vinna fyrir aðrar
búgreinar í samvinnu fagsviða
rekstrar og viðkomandi búgreinar
og búgreinafélags.
Betri bú til framtíðar
Til framtíðar kemur rekstrargreining
búa til með að byggja á verkefninu
„Betri bú“ en í ár geta kúabú fengið
hefðbundna rekstrargreiningu vegna
rekstrarársins 2012. Þá er um að ræða
greiningu sem framkvæmd hefur
verið í rekstrarverkefnunum Ráðhildi
og Sunnu.
Bændur hafa verið mjög duglegir
við að taka þátt í svona samstarfi og
hefur það komið sér vel. Allir bændur
sem nota dkBúbót bókhaldskerfið
eða eru í þjónustu hjá bókara sem
notar það geta sent inn gögn í
gagnagrunninn.
Lögð hefur verið áhersla á að
bændur sendi inn gögn aftur í
tímann og sendi svo inn reglulega.
Best er að senda gögnin að jafnaði
þrisvar á ári; í kjölfar uppgjörs
virðisaukaskattskýrslanna og þegar
framtalinu er skilað.
Innsending gagna
Innsending gagna tekur nokkrar
sekúndur. Til að gögnin fari inn í
grunninn svo hægt verði að vinna
með þau þarf skriflegt upplýst
samþykki.
Á valmyndinni fyrir innsendingu
sést fyrir hvaða tímabil gögnum
hefur verið skilað, hvort viðkomandi
hafi skilað inn samþykki og eins
öll einkennisnúmer búsins. Þá er
þar einnig að finna eyðublað fyrir
upplýst samþykki. Þegar gögnin fara
síðan inn í grunninn til úrvinnslu
verður á engan hátt hægt að rekja
þau til viðkomandi bús. Nánari
upplýsingar og leiðbeiningar eru á
bondi.is og rml.is.
Ert þú búin(n) að skila inn
gögnum fyrir þitt bú?
Betri bú, einstaklingsmiðuð skýrsla
fyrir kúabú.
Innsetningarvalmynd fyrir gagnagrunn BÍ í dkBúbót.
Hér er á ferðinni einhver besta
varmadæla sem komið hefur fyrir
allt venjulegt húsnæði.
Þessi verðlaunaða varmadæla hitar t.d.
ofnakerfi, gólfhita og neysluvatn.
Getur notað vatn, jörð og sjó til
orkuöflunar.
Allur búnaður innandyra.
NIBE F1245 eyðir litlu og sparar mikið.
NIBE frá Svíþjóð.
Stærstir í Evrópu í 60 ár.
W
NIBE™
F1245 |
Jarðvarmadæla
Ný kynslóð af varmadælum
Nýtt
Með NIBE F1245 getur þú lækkað húshitunarkostnað um allt að 85%
Er rafmagnsreikningurinn of hár?
Er þá ekki kominn tími til að við tölum saman?
FFriorka www.friorka.is 571 4774
NIBE™ F1245 Jarðvarmadæla