Bændablaðið - 24.04.2013, Side 57

Bændablaðið - 24.04.2013, Side 57
57Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 Ausa T144: Lítill og afar lipur fjölnota lyftari Vélabásinn hlj@bondi.is Hjörtur L. Jónsson Sem betur fer eru alltaf forvitni- legar nýjungar sem létta mönnum verk og vinnu að detta í sölu hér á landi og fyrir nokkru var Klettur með sýningu á sniðugum fjölnota smályfturum á athafnasvæði sínu Klettagörðum 8-10. Á sýningunni gafst mönnum kostur á að prófa lítillega litla fjölnota lyftarana sem Klettur hefur nýverið hafið sölu á. Ég skellti mér á sýninguna og fékk að prófa gripinn í smá stund. Lyftarinn heitir Ausa T144 og er skotbómulyftari með fjögurra strokka dísilvél frá Kubota og á að skila 30,8 hestöflum. Ausa T144 er skráð sem vinnuvél og þarf J-vinnuvélaréttindi til að keyra hann (litla lyftaraprófið). Lyftihæð nærri fjórir metrar Hámarkshraðinn er ekki nema 17 km/klst. og er hægt að lyfta upp í 3.990 millimetra hæð, þyngdin er ekki nema 2.400 kg, breidd er 141 cm og hæðin er ekki nema 195 cm (hæðina er hægt að lækka aðeins með því að fella vinnuljósið sem er á lömum aftur fyrir stýrishúsið). Þessi litla hæð ætti að gagnast mörgum til að moka út úr haughúsum, kjöllurum og fleira. Hjólbarðarnir eru á 12 tommu felgum með þokkalega grófu dráttarvéla munstri. Aukaúrtak er fyrir glussatengingu framan á lyftar- anum þar sem hægt væri að tengja við klemmukló og fleira. Afar lipur í snúningum Það fyrsta sem ég tók eftir var hversu lipur lyftarinn var í öllum hreifingum. Beygjuradíusinn var bara nokkrir metrar á heilum hring. Lyftugetan er yfir tonn upp í fjög- urra metra hæð, en hámarkslyftigeta næst tækinu er 1.150 kg. Ágætur í mokstur Að moka möl og slétta úr hlassi er mjög auðvelt ef maður bakdregur hrúguna. Það var aðeins tvennt sem ég var ekki sáttur við (sem ætti að vera auðvelt að leysa); á böggla- grjótinu fannst mér hann frekar stíf- ur, en ég er viss um að það sé í lagi að hleypa aðeins úr dekkjunum til að mýkja hann (var með tæp 60 psi í dekkjunum). Hitt var hávaðinn inni í stýrishúsinu frá útblæstrinum, en pústið er út undir lyftaranum hægra megin. Persónulega myndi ég fá mér pústbarka og leiða hann aftur fyrir lyftarann til að minnka hljóðið utan frá inn í stýrishúsið. Margs konar notkunarmöguleikar Það litla sem ég ók lyftaranum sá ég fyrir mér margs konar notkunar- möguleika sem liðlétting til ýmissa smærri verka, s.s. alls moksturs við þröngar aðstæður, snjómoksturs og rúllubaggavinnu hvers konar. Þrjár gerðir eru í boði af Ausa- lyfturum hjá Kletti en sá sem ég prófaði var sá smæsti og er verðið er mjög nálægt 5 milljónum fyrir utan vsk. Beygjuradíusinn er afar lítill. Þrjár gerðir eru í boði af Ausa-lyfturum hjá Kletti. Hjólbarðarnir eru á 12 tommu felgum með þokkalega grófu dráttarvéla- munstri. Að moka möl og slétta úr hlassi er mjög auðvelt ef maður bakdregur hrúguna. Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100 Hafðu samband! 568 0100 Gámurinn er þarfaþing! Gistigámar  Geymslugámar  Salernishús » Til sölu og/eða leigu » Margir möguleikar í stærðum og útfærslum » Hagkvæm og ódýr lausn » Stuttur afhendingartími www.stolpiehf.is AT H YG LI E H F. -0 1- 13 PL 01 Svart PL 45 Silfur- metallic PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar - metallic Aluzink Kopar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700 www.funi.is – www.blikkas.is Fr u m ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Litir í miklu úrvali Það er engin ástæða til að horfa á heiminn í svarthvítu. SIBA–ÞAKRENNUKERFI í fjölda lita

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.