Bændablaðið - 24.04.2013, Síða 59
59Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
Lovísa Ýr Héðinsdóttir er 15 ára
gamall nemandi við Hlíðarskóla á
Akureyri. Hún æfir söng og hefur
gaman af landafræði í skólanum.
Í sumar ætlar hún meðal annars
að fara til útlanda í sumarfríinu.
Nafn: Lovísa Ýr Héðinsdóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Hlíðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Landafræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Kettir.
Uppáhaldsmatur? Pasta.
Uppáhaldshljómsveit? Ég á enga
uppáhaldshljómsveit.
Uppáhaldskvikmynd? The Hunger
Games.
Fyrsta minningin þín? Þegar litli
bróðir minn fæddist.
Æfir þú íþróttir eða spilar þú á
hljóðfæri? Ég æfi söng.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að fara á Facebook,
Youtube og Tumblr.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Kennari eða sál-
fræðingur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Raka af mér allt hárið.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Skólasund.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Já, fara til útlanda.
/ehg
Hvolpainniskór
PRJÓNAHORNIÐ
Stærð:
23/25-26/28-29/31-32/34-35/37.
Lengd á fæti:
15-17-18-20-22 cm.
Efni:
Nepal frá Drops nr. 4311, 150 g. Svart í eyru
og auga- hvítt og rautt í tunguna.
Heklunál nr. 4,5
Heklað er í hring til að byrja með en síðan fram
og til baka.
Byrjun á tá og eyra.
Snúið garninu einu sinni um vinstri vísifingur til
að mynda lykkju, haldið í lykkjuna með vinstri
þumalfingri og löngutöng, leggið þráðinn yfir
vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni gegnum
lykkjurnar, sláið upp á garnið og dragið það
gegnum lykkjuna, heklið l loftlykkju. Síðan eru
heklaðar fastalykkjur kringum hringinn sem
myndast. Þá á að vera hægt að draga saman
opið í miðjunni.
1. umf. heklið 7-7-7-8-8 fastalykkjur utan um
hringinn tengið í hring.
2. umf. Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju.
=14-14-14-16-16 fl.
3 umf. Heklið fastalykkju í fastalykkju en aukið
í um 4-6-8-8-8 = 18-20-22-24-2 fastal. 4.umf.
Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
5. umf. Heklið 1 fastal í hverja fastal. En aukið um
8 l allan hringinn 16-18-30-32-32 fl.
6. umf. Heklið 1 fastal í hverja fastal.
7. umf. Heklið 1 fastal í hverja fastal. Aukið um
leið um 4 fl. jafnt yfir = 30-32-34-36-36 fl.
Heklið nú 1 fl í hverja fl í hring þar til skórinn
mælist um 7,5-8,5-9,10,11 cm. Þegar lokið er
síðustu fl í síðustu umferðinni haldið þá áfram
næstu 10-10-11-12-12 fl.
Fyrsta röð frá réttu. Snúið nú skónum og heklið 1
fl í hverja af næstu 20-20-22-24-24 fl frá röngu,
(= 10-12-12-12-12 fl.) til baka á miðju framan
á skónum. Nú er heklaður sólinn undir skónum.
Heklið fram og til baka þessar 20-20-22-24-24
fl. þar til skórinn mælist 14,5-16,5-17,5-19,5-
21,5 cm þá er næsta röð frá réttu hekluð þannig.
1. röð heklið 6-6-7-8-8 fl. Takið saman 2 fl
þannig: stingið nálinni gengum 1 fl dragið
þráðinn í gegn stingið svo í gegn um næstu
fl dragið þráðinn í gegn, dragið svo þráðinn
gegnum þessar 3 l. Endurtakið þetta 4 sinnum=
8-8-9-10-10 fl. Snúið 10-10-11-12-12 fl eiga þá
að verða eftir hinum megin.
2. röð Takið saman á sama hátt og áður 2 fl, 4
sinnum. 1 fl í hverja fl út umferðina.
=6-6-7-8-8 fl snúið.
3. Röð heklið 2-2-3-4-4 fl takið 2 fl saman síðustu
4 fl= 4-4-5-6-6 fl.
4. Röð takið 1-1-1-2-2 fl saman yfir fyrstu 2-2-2-
4-4 fl, 1fl í hverja fl út umf. 0 3-3-4-4-4 fl. Klippið
og gangið frá endanum.
Heklið nú yfir hinar 10-10-11-12-12 fl hinum
megin.
1. röð Takið saman 2 fl yfir fyrstu 4 fl síðan 1 fl
i hverja fl út umferðina =8-8-9-10-10 fl snú
2. röð Heklið 4-4-5-6-6 fl og takið saman 2fl og
2 fl yfir síðustu 4 fl.= 6-6-7-8-8 snú.
3. Röð takið saman 2 fl og 2 fl yfir fyrstu 4 fl, 1 fl
í hverja fl út umferðina=4-4-5-6-6 fl
4. röð takið úr 1-1-1-2-2 fl yfir síðustu 2-2-2-4-4
fl.= 3-3-4-4-4 fl. Klippið og gangið frá endanum.
Saumið skóinn saman á miðjum hæl. Byrjið á
miðjum hæl og heklið eina umferð fastalykkjur
allan hringinn. Heklið í hornunum þannig að
stungið er heklunálinni gegnum 1 fm. dragið
þráðinn í gegn stingið í næstu fl og dragið
þráðinn í gegn sláið upp á og dragið gegnum
allar 3 lykkjurnar. Heklið aðra umferð fastalykkjur
allan hringinn dragið þráðinn í gegn um síðustu
lykkjuna og gangið frá.
Eyru:
Heklað í hring.
Byrjið að hekla samkvæmt leiðbeiningunum í
byrjun með svörtu.
1.umf. Heklið 4 fl utan um byrjunarhringinn.
2. umf. heklið 2 fl í hverja fl.
3. umf. 1 fl í næstu fl 2 fl í næstu fl endurtakið.=
12 fl
4. umf.1 fl í næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl endurtakið
= 14 fl
5.-6. umf. Fastalykkju í fastalykkju allan hringinn.
7. umf 1 fl í næstu 5 fl 2 fl saman (úrtaka)
endurtakið = 12 fl
8.umf Heklið fl í fl allan hringinn.
9 umf 1 fl í næstu fl hekla 2 fl saman endur-
taka= 8 fl
klippið og gangið frá endanum.
Hekla annað eyra eins.
Auga:
Hekla í hring með svörtu Byrjað á sama hátt og
á skónum og eyrunum.
Heklið 6 fl í hringinn.
Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
Klippið þráðinn og gangið frá.
Tunga:
Hekluð fram og til baka fastahekl.
Fitjað upp 2 loftlykkjur með rauðu.
3 fl í aðra loftlykkju frá nálinni.
Heklað 2 fastalykkju umferðir með 3 fastalykkjur
í hverri umferð.
Klippið og gangið frá þræðinum.
Rófa:
Heklið 9 loftlykkjur með svörtu.
Síðan 1 fl í 2 loftlykkju frá nálinni, þá l loftlykkju
og 1fl endurtekið út umferðina.
Endað á 1 fl í síðustu loftlykkjuna. Klippa frá og
ganga frá endanum.
Frágangur:
Saumið eyrun á sitt hvoru megin til hliðar á
skónum..
Saumið heklaða augað á með hvítum krossi og
saumið hitt augað með svörtum krossi á móti.
Saumið út munninn og trýnið.
Saumið tunguna og rófuna á
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Rakaði eitt sinn allt hárið af
2 9
6 7
3 8 5
1 8
6 1 4 7
6 9
4 8 7
8 1
3 4
3 2
4 1
2 5 4
1 6 9
5 9
6 4 3
7 6
1 8
9 8 6
9 4
1 6 2
5 1 4 6 9
2 5 7 8
5
6 7 8
3 6 7
9
6 2 829
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er
lengst til vinstri er léttust og sú til hægri
þyngst en sú í miðjunni þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautir á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
6
Rakel Ýr ætlar að verða kennari eða
sálfræðingur þegar hún verður full-
orðin.
Heklað,
prjónað og
saumað út
Litríkar lykkjur úr garðinum eftir
Arne og Carlos sem gáfu út hina
eftirminnilegu Jólakúlubók á síðasta ári
er komin út en hér bregða höfundarnir á
leik með fjölmörg skemmtileg verkefni
og sækja innblástur í garðinn sinn.
hitaplatta, sessur og aðra heklaða eða
og blómabörn birtast sem prjónuð
leikföng og stjúpurnar í garðinum
verða fyrirmyndir að útsaumuðum
púðum. Hlýleg teppi, hekluð eða
prjónuð úr garnafgöngum, er algjör
nauðsyn utan- sem og innandyra
og gleðja augað. Litríkar lykkjur
úr garðinum er falleg bók fyrir
hannyrðafólk og aðra fagurkera.
Verkefnin eru fjölbreytt – bæði stór
og smá – og henta byrjendum jafnt
sem lengra komnum.
Kvennakór Kópavogs
leggur land undir fót
Á sumardaginn fyrsta mun
Kvennakór Kópavogs leggja
land undir fót. Fyrst er förinni
heitið vestur í Dali, nánar tiltekið
í Búðardal, þar sem áð verður í
Leifsbúð og sungið um kl. 13.00
við opnun Jörfagleði. Leiðin liggur
síðan alla leið til Ísafjarðar þar
sem kórkonur munu dveljast
dagana 25.-28. apríl og taka þátt
í kóramóti í boði Kvennakórs
Ísafjarðar. Aðrir kórar þar
verða Kvennakór Öldutúns úr
Hafnarfirði og norski kórinn
Corevi. Allir kórarnir munu syngja
á tónleikum í Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 27. apríl kl. 17.00.
Vortónleikar kórsins verða
síðan haldnir í Digraneskirkju
miðvikudags kvöldið 1. maí kl.
20.00. Boðið verður upp á takfasta
tóna og suðræna sveiflu en þar
koma fram ásamt kórnum þau
Kristjana Stefánsdóttir og Sigurður
Guðmundsson, sem mun syngja lög
af plötunni Okkar menn í Havana.
Helga Laufey Finnbogadóttir leikur
á píanó, Axel Haraldsson á trommur
og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Stjórnandi kórsins er að vanda Gróa
Hreinsdóttir.
Eftir vortónleika verður síðan skipt
um takt. Þá ætlar hópur úr kórnum að
taka þátt í mótorhjólamessu, sem er
árlegur viðburður í Digraneskirkju á
annan í hvítasunnu, 20. maí. Verður
messan í ár með sveitahljómi og
gospelsniði.
Vonast Kópavogskonur til að sjá
sem flesta á þessum stöðum í vor.