Læknablaðið - 01.06.1962, Side 26
56
LÆKNABLAÐIÐ
til nýtingar á geðlækningu.
2) Depressio neurotica er
þunglyndisástand, sem kemur
fram sem þáttur í taugaveikl-
unarsjúkdómum, þar sem að-
alorsakir eru óvitaðar, bældar
togstreitur eða sálkreppur
(conflicts). Aðaleinkennið er
kvíðnin (anxiety), sem oft og
tíðum gagntekur sjúklinginn.
Þar sem þunglyndið er einn
þáttur í varnaraðferðum sjúkl-
ingsins gegn kvíðninni, þá
verður þessi tegund að réttu
lagi heimfærð undir tauga-
veiklun.
3) Depressio symptomatica
er það þunglyndi, sem kemur
i kjölfar ýmissa líkamlegra
sjúkdóma, einkum blóðleysis,
heilaáverka, morbus Addison,
morbus Cushing, acromegalia
o. fl. Aðaleinkennið er lang-
varandi þreytutilfinning (de-
pressio asthenica), og er þung-
lyndið sennilega afleiðing
hinnar langvinnu, líkamlegu
þreytu, sem kemur í veg fyrir,
að sjúldingurinn geti lifað lífi
sínu eins og hann áður gerði.
Við læknisskoðun finnst oft
járnskortur og truflanir frá
meltingarfærum. Einnig hafa
þessir sjúklingar tíðum haft
sýkingar í öndunarfærum.
Þessi þunglyndistegund er sér-
staklega algeng meðal kvenna
og er þá oft langvinn, með bata
og versnun á vixl. Þunglyndis-
ástand getur einnig oft verið
fvrsta einkenni líkamlegra
sjúkdóma, svo sem tumor cere-
bri, paralysis generalis og
annarra taugasjúkdóma.
Samanburður á eðli og ein-
kennum hinna tveggja aðal-
flolcka þunglyndissjúkdóma
leiðir þannig i ljós frábrigði í
eftirfarandi atriðum, sem sér-
staklega liafa hagnýtt gildi.
Depressiones endogenes:
1) eiga sér ekki vtri ástæð-
ur (,,ómótiveraðar“), en virð-
ast bundnar eðlisfari manns-
ins.
2) valda sérkennandi svefn-
truflunum (svefni fyrri hluta
nætur, svefnleysi seinni hluta
nætur).
3) valda sérkennandi dæg-
ursveiflum (vanliðan að
morgni, vellíðan að kvöldi).
4) ECT getur stvtt gang
sjúkdómsins í völdum tilfell-
um.
Depressiones exogenes:
1) eiga sér ávallt ytri ástæð-
ur (andlegt áfall eða langvar-
andi sálkreppu).
2) valda engum sérkennandi
svefntruflunum (stundum þó
andvökum fyrri hluta nætur).
3) valda engum sérkenn-
andi dægursveiflum (stundum
þó vanlíðan að kvöldi).
4) ECT hefur engin áhrif á
gang sjúkdómsins.
Suicidium-hættan er mikið
vandamál í samhandi við sér-
hvert þunglyndisástand. Hún