Læknablaðið - 01.06.1962, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ
69
eftir faraldurinn 1925—1926.
Kemur þetta furðu vel heim við
það, sem taflan sýnir, og raun-
ar enn betur en tölurnar þar
segja, því að aðeins tvö af börn-
unum þremur frá 1916 og eilt
frá 1927, fæddust á þeim tíma
hvort árið sem helzt var að
vænta, ef um samband við far-
aldrana hefði verið að ræða. Og
ekki er þá áberandi ósamræmi
í því, að ekkert slíkt barn fædd-
ist eftir faraldurinn 1906—1907,
þar sem aðeins var að vænta
eins eða tveggja.
Að öllu athuguðu virðist
mega gera ráð fyrir, að áhætt-
an 1940—1941 og 1954—1955
liafi í mesta lagi verið sem svar-
ar rúmlega 10%, en líklegt þyk-
ir, að hún hafi verið nær 5—
6%.
Hér má að vísu henda á, að
þessar athuganir ná aðeins til
heyrnarlausra barna, sem kom-
izt Iiafa á skólaaldur eða a.m.k.
náð 5 til 6 ára aldri. Börn, sem
kynnu að liafa fæðzt án heyrn-
ar, en dáið fyrir þann aldur,'
hefðu því fallið undan talningu.
En á hinn hóginn er ekki full-
víst, að öll börnin frá 1941 og
1955 hafi borið menjar rauð-
hundasýkingar, þótt vafalítið
hafi svo verið um langflest
þeirra.
Öruggari vitneskju um hætt-
una má fá, ef fvlgzt væri með
nógu mörgum þeirra kvenna,
sem sýkjast á meðgöngutím-
anum, og samanburður gerður
á börnum þeirra og annarra
kvenna, er þar að kemur. Gall-
inn er sá, að þar sem flestir
fá rauða hunda, áður en full-
orðinsaldri er náð, eins og víða
er, og oft er ráðizt í fóstureyð-
ingu, ef harnshafandi kona tek-
ur veikina, getur tekið alllangan
tíma að ná til nógu margra.
Slíkar athuganir, að vísu í
smáum stíl, hafa þó verið gerð-
ar á seinni árum. Benda þær
yfirleitt til þess, að meiri háttar
vanskapnaður eða vöntun, sem
auðvelt er að greina, en þar af
er heyrnarleysi algengast, komi
miklu sjaldnar fram en í önd-
verðu var talið, varla oftar en
í 12—15% tilfella, að því er
sumir telja <L3) Qg er þá mið-
að við sýkingu á fyrsta þriðj-
ungi meðgöngutímans. Má
segja, að þær niðurstöður, sem
hér hefur verið komizt að um
heyrnarleysi, geti komið allvel
heim við þetta.
Meðfædd blinda af völdum
rauðra hunda stafar að jafnaði
af cataraeta. Erfiðara er að
hafa upp á þessum tilfellum eft-
ir á en heyrnarleysingjum, því
að sem betur fer tekst oft að
veita börnum, sem fæðast með
cataracta blindu, sæmilega
sjón. Þau koma þá ekki á
blindraskrá og eru ekki vistuð
í blindraskólum.
Tekizt hefur — aðallega með
góðfúslegri hjálp augnlækna —
að hafa upp á 19 fæðingum
blindra barna með cataracta á