Læknablaðið - 01.06.1962, Page 59
LÆKNABLAÐIÐ
81
sjálft, og gegnir það nokkuð
öðru máli. En þeir, sem reykja
ofan í sig, fá heitan reykinn á
lungnaslímhúðirnar og með
lionum mikið af sótkornum, er
setjast á slímhúðir herkju-
kvíslanna.
Ef sú tilgáta er rétt, að or-
sakasamhand sé milli sígar-
ettureykinga og lungnakrabba,
ætti hann smám saman að
verða algengari meðal kvenna
í þeim löndum, þar sem þær
reykja nú orðið til jafns við
karlmenn, svo sem í Englandi
og Ameríku. Samkvæmt rann-
sóknum síðustu ára virðisl
þetta ætla að verða reyndin.
Sígarettuneyzlan hefur auk-
izt gífurlega hér á landi eða
rúmlega l(K)-faldazt á 40 árum.
Arið 1910 var innflutningur á
sígarettum til íslands 1285 kg
og 1949 129100 kg(2). (Neyzla
hvers íhúa í enskum pundum
var 1913 0.03, en 1947 1.39). í
tóhaki er 2—5% nikótín, sem
er mjög sterkt eitur. Þá má
heldur ekki glevma því, að ar-
sensambönd eru notuð sem
skordýraeitur til úðunar á tó-
baksplöntuna og gætu þannig
orðið krahbavaldar, enda þótl
flestir telji meiri líkur fyrir
])ví, að carcinogen-efni mynd-
ist við hægfara bruna tóhaks-
ins. Þá eru margir, sem hall-
ast að því, að carcinogen-efni
séu í sóti frá alls konar verk-
smiðjureyk, enda sýnir sig, að
lungnakrabbi er sérlega al-
gengur í helztu iðnaðarhorgum
Englands og nánasta umhverfi
þeirra. Einnig hafa menn álit-
ið, að talsverður þáttur í aukn-
ingunni geti verið malhikun á
götum og hin mikla hifreiða-
fjölgun, og væri þá um carci-
nogen-efni að ræða í útblást-
ursreyk frá hifreiðum.
Um síðustu aldamót var
krabbamein í lungum sjaldséð
og livergi meira en 2—4%
allra illkynjaðra æxla. Á
þriðja tug aldarinnar virðist
víða verða mikil aukning. í
London var það 6.76% allra
krabbameina árið 1923, en 1928
14.15%. Sums staðar í Eng-
landi og Bandaríkjunum er
lungnakrabbi nú orðinn al-
gengasta illkynjaða æxlið með-
al karlmanna og 20—25% af
öllum illkynja æxlum. Lungna-
krahhi er nú valdur að um
10% allra dauðsfalla í Banda-
ríkjunum og vfir 20% allra
dauðsfalla meðal karhnanna.
Arið 1955 dóu í Bandaríkjun-
um 27.000 sjúklingar úr
lungnakrabba.
Hér á landi hefur verið um
mikla aukningu að ræða sið-
ustu árin. Engar áreiðanlegar
heildartölur eru til frá fyrri
árum, en samkvæmt krabba-
meinsskráningu á vegum
Krabbameinsfélags íslands, er
nær yfir árin 1955—1959, er
lungnakrabbi nú fjórða algeng-
asta illkynjaða æxlið hjá karl-
mönnum og 4.86% af þeim öll-