Læknablaðið - 01.06.1962, Page 60
82
LÆKNABLAÐIÐ
um. Flestum skýrslum ber
saman um, að lungnakrabbi
sé 6 til 8 sinnum algengari
meðal karla en kvenna. Flest-
ir sjúklingar eru á aldrinum
45—55 ára, en þó kemur sjúk-
dómurinn bæði fyrir hjá þeim,
sem yngri eru og eins eldri en
það. '
S júkdómsfræði,
í langflestum tilfellum virð-
ist æxlið vaxið frá yfirborðs-
frumum berkjukvíslanna, en
þó bafa sumir haldið því fram,
að það geti einnig vaxið frá
slímkirtlum, sem þarna er
mikið af. Um 60% æxlanna
koma fyrir hægra megin og
um 60% eru staðsett í efra
lungnablaði. Virðist mjög
sjaldgæft, að þau eigi upptök
sin í miðblaði og lingula, en
þó er ekki alllaf unnt að
segja með vissu, livar æxlið
hafi byrjað að vaxa, ef það er
orðið mjög stórt.
í berkjugreinunum er sluðla-
þekja með bifhárum, en það er
löngu vitað, að metaplasia á
sér auðveldlega stað við ert-
ingu og jafnvel næringarskort
í slímhúðinni, og sést flögu-
þekja því oft i gömlum berkla-
holum, ígerðarholrúmum,
berkjuskúlksholum og í kring-
um gamla infarcta.
Ekki er alllaf auðvelt að
flokka þessi æxli eftir frumu-
byggingu, en þó tala flestir um
fjóra aðalflokka:
I. Carcinoma epidermoidis
(squamocellulare), eða
flöguþekjukrabbi, sem er
a. m. k. 50% af öllum
krabbameinum í lunga.
II. Carcinoma anaplastica,
um 30%.
III. Adenocarcinoma um 15%.
IV. Carcinoma bronchiolaris
um 3%.
Ad. I: Um 85% þessara
æxla koma fyrir meðal karl-
manna. Þau vaxa mishratt, en
þó yfirleitt hægt, og eru bata-
horfurnar því einna beztar við
jæssa tegund. En þau mesl dif-
ferentieruðu af þessum æxl-
um innihalda epithel-perlur,
en venjulega er þó Iitil horn-
myndun. Með tímanum berast
þau í eitlana við lungnarót, en
þau berast sjaldan með blóði
til fjarlægra staða.
Þessi æxli eru stundum orð-
in mjög slór, þegar þau eru
uppgötvuð, og jafnvel þótt
þau séu ekki komin i önnur líf-
færi, eru þau oft óskurðtæk
vegna stærðar eða legu alveg
inn við lungnarótina. Stundum
eru þau vaxin inn í aðliggjandi
líffæri eða út í brjóstvegg. Það
er þessi tegund, sem áður var
kallaður námukrabbi, en nú
reykingakrabbi.
Ad. II. Þessi æxli eru mjög
illa differentieruð með pleo-
morph frumum og vaxa mjög
hratt, og meinvörp koma fljótt,
bæði með sogæðum og einnig
blóðleiðina. Undirflokkar við