Læknablaðið - 01.06.1962, Side 68
90
LÆKNABLAÐIÐ
logiskri rannsókn, fáist örugg
sjúkdómsgreining hjá um 80%
þessara sjúklinga.
Sumir taka sýnishorn með
nál úr æxli í lungum, en það
tel ég úrelta aðferð og hættu-
lega vegna útsæðishættu í þeim
tilfellum, þar sem um skurð-
lækt æxli gæti annars verið að
ræða. Venjulegar almennar
rannsóknir eru að sjálfsögðu
alltaf gerðar, en koma að litlu
liði við sjúkdómsgreininguna.
Ef engin af þessum rann-
sóknaraðferðum eða röntgen-
myndir gefa ákveðna sjúk-
dómsgreiningu, ber hiklaust
að opna brjóstholið í tilrauna-
skyni. Þá er unnt að þreifa allt
lungað vandlega og taka sýnis-
horn, þar sem ástæða þykir til,
og athuga með frystiskurði.
Það, sem kemur helzt til greina
við sjúkdómsgreininguna, er:
I. Berklar (berklaæxli, (tuber-
culoma) og brismyndun, t. d.
bundið við heilt lungnablað).
II. Berkjuskúlk (bronchiec-
tasiae). III. Brismyndandi
Iungnabólga. IV. Igerð. V.
Sveppasjúkdómar. VI. Góð-
kynja æxli í lungum. VII. Mein-
vörp frá æxlum annars staðar
i líkamanum.
Meðferð og horfur.
Eina mögulega lækningin
við lungnakrabba er sú, að
nnnt sé að nema æxlið brott.
Venjulegasta aðgerðin og sú,
sem vænlegust er til árangurs,
er að taka burt allt lungað og
hreinsa alla eitla úr miðmæti
þeim megin, bæði eitla við
lungnarót og fyrir ofan þann
stað, þar sem barkinn greinist
í tvennt, þ. e. algjört brottnám
lungans (Allison 1950) (3).
Við lítil æxli, sem liggja ut-
arlega í lunganu, kemur minna
brottnám, svo sem brottnám
lungnablaðs, til greina, og er
einkum ástæða til þess hjá
gömlum sjúklingum eða þeim,
sem af einhverjum orsökum
hafa minnkaða hjarta- og
lungnagetu. Hjá þeim verður
að skilja eftir eins mikinn
Iungnavef og unnt er, en vissu-
lega getur það þýtt minni
möguleika á varanlegum bata.
Ýmsir hafa á seinni árum
gert samanburð á árangri eftir
brottnám lungans og brottnám
lungnablaðs og komizt að
þeirri niðurstöðu, að batahorf-
urnar séu engu lakari eftir
brottnám lungnablaðs. En
þetta er alls ekki sambærilegt,
þar sem brottnám lungnablaðs
er ekki framkvæmt, nema um
lítið æxli sé að ræða og nálægt
yfirborði lungans, þ. e. hjá
sjúklingum með miklu betri
batahorfur en eru hjá þeim,
sem nauðsynlegl er að nema
lungað á brott úr.
Eins og áður er getið, er
sjúkdómurinn kominn á það
hátt stig hjá 55—60% þessara
sjúklinga, þegar þeir koma á
handlæknisdeildir, að aðgerð