Læknablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 22
148
LÆKNABLAÐIÐ
ráða um skipun yfirlækna í emb-
ætti, heldur er farið eftir mati hlut-
lausrar dómnefndar, þó að veiting-
arvaldið sé í höndum viðkomandi
yfirvalds.
Stjórn L.I. leyfir sér því að leggja
til, að yfirlæknum og sérfróðum
héraðslæknum verði raðað þannig
í launaflokka:
30. flokkur:
1. Yfirlæknir á sjúkradeildum með
50 rúm eða fleiri.
2. Yfirlæknir Rannsóknarstofu Há-
skólans.
3. Yfirlæknir Rannsóknarstöðvar á
Keldum.
4. Tryggingayfirlæknir.
5. Yfirlæknar á röntgen- og rann-
sóknadeildum við sjúkrahús með
50 rúmum eða fleiri.
6. Sérfróðir héraðslæknar (Akur-
eyri.).
29. flokkur:
Aðrir yfirlæknar.
Þá þykir rétt, að aðstoðaryfir-
læknum verði raðað í 28. flokk.
F. h. stjórnar L.l.
Virðingarfyllst,
(Undirskrift.)
Til launaráðs BSRB.
Strax eftir síðasta aðalfund
fól stjórnin þeim Brynjúlfi
Dagssyni, Eggerti Einarssyni og
Ólafi Björnssyni að flokka
læknishéruðin. Við flokkunina
höfðu þeir eftirfarandi atriði i
huga:
1. Mannfjölda i héraði.
2. Þéttbýli og líklega aðsókn
að lækni.
3. Vegalengdir og vegun.
4. Læknishústaði.
5. Fjölda starfandi lækna í hér-
aði.
6. Aðstöðu til að senda sjúkl-
inga á sjúkrahús.
7. Sennileg embættisumsvif.
Með tilliti til þessara atriða
flokkuðu þeir héruðin í 7
flokka.
Samningum launanefndar
ríkisstjórnarinnar og Kjararáðs
BSBB lauk þannig, að launa-
flokkum var fækkað úr 32 nið-
ur í 28, og varð við það tölu-
verð röskun á allri röðun Kjara-
ráðs, m. a. hafði læknishéruð-
um verið dreift á 5 flokka. Þeg-
ar hér var komið málum, sendi
stjórnin Kjararáði BSBB eftir-
farandi bréf:
Reykjavík, 13/3 1963.
Að gefnu tilefni leyfir stjórn L.l.
sér að bera fram eftirfarandi til-
lögu um röðun lækna í launaflokka:
28. flokkur:
Landlæknir.
27. flokkur:
Yfirlæknir á sjúkradeildum með
50 rúm eða fleiri.
Yfirlæknar á Rannsóknastofu Há-
skólans.
Yfirlæknir á Rannsóknarstöðinni
að Keldum.
Tryggingayfirlæknir.
Yfirlæknar á röntgen- og rann-
sóknardeildum við sjúkrahús
með 50 rúmum eða fleiri.
Sérfróðir héraðslæknar (Akur-
eyri).
26. flokkur:
Aðrir yfirlæknar. Aðstoðaryfir-
læknar.
25. flokkur:
Deildarlæknar. Héraðslæknar I.
2Jf. flokkur:
1. aðstoðarlæknar. Héraðslæknar
II og III.