Læknablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 30
154
LÆKNABLAÐIÐ
farin ár, en að erfilt væri að
átta sig á notkun liinna nýju
róandi og örvandi lyfja, vegna
þess að þau lyf væru ekki skrán-
ingarskyld hér frekar en í öðr-
um löndum.
Frekari upplýsingar er ekki
iiægt að gefa í þessu máli fyrr
en rannsókn er lokið.
Með veitingu Kópavogshér-
aðs í apríl sl. var hrotin sú hefð,
að sá héraðslæknir sæti fyrir
embætti, sem að mati landlækn-
is væri til þess verðugastur sak-
ir menntunar eða reynslu i
starfi. Þegar veitingin varð
kunn, var eftirfarandi yfirlýsing
frá stjórn L.í. birt í dagblöðum
Reykjavíkur:
Reykjavík, 23/4 1963.
Yfirlýsing frá stjórn Læknafélags
Islands.
1 Lögbirtingablaðinu, 56. árg., 53.
tölubl. 1963, er tilkynning frá heil-
brigðisstjórninni um veitingu hér-
aðslæknisembættisins í Kópavogi.
Að því tilefni gefnu, vill stjórn L.í.
geta þessa:
Um þetta embætti sóttu 8 héraðs-
læknar og sumir þeirra með langan
embættisferil að baki, en enginn
þeirra hlaut náð fyrir augum veit-
ingavaldsins. Hins vegar var emb-
ættið veitt lækni, sem hafði valið
sér annan verkahring en héraðs-
læknisstörf, og þrátt fyrir það að
iandlæknir legði til, að annar mað-
ur hlyti starfið. 1 heiðarlegri keppni
um embætti hlýtur það að teljast
til sjálfsagðra mannréttinda, að sá
hljóti val, sem tilkvaddur sérfróð-
ur aðili metur verðugastan. Með
þessari veitingu, sem hér um ræðir,
hefur ríkisvaldið enn einu sinni
gengið á þennan rétt lækna. Er þess
varla að vænta, að slíkt atferli
hvetji lækna til þess að gera sig
faglega hæfa til ábyrgðarmikilla
embætta og einnig ekki vænlegt til
þess, að heilbrigðisþjónustan í land-
inu verði rækt með þeim hætti, sem
bezt má verða. Fyrir því mótmælir
íslenzk læknastétt harðlega slikri
misbeitingu veitingavaldsins, og er
þeim mótmælum beint bæði til nú-
verandi ríkisstjórnar, sem og ann-
arra, sem hafa látið hæfni til við-
komandi embættisstarfa þoka fyrir
annarlegum sjónarmiðum.
Stjórn Læknafélags Islands.
Mál frá síðasta aðalfundi.
Á síðasta aðalfundi var sam-
þykkt að fela stjórn Domus Me-
dica í samráði við stjórn L.I.
og stjórn L.R. að hefja hygg-
ingu Domus Medica svo fljótt
sem auðið yrði, þegar fjárhags-
grundvöllur væri tryggður.
Bjarni Bjarnason, formaður
Domus Medica-nefndarinnar
mun gera grein fyrir því síð-
ar á þinginu, hvernig þessum
málum er varið nú. Stjórn L.í.
hefur samþykkt, að félagið ger-
ist aðili að byggingunni, en áð-
ur Iiafði stjórnin ráðfært sig við
lögfræðing félagsins, Einar B.
Guðmundsson hæstaréttarlög-
mann, og Guðlaug Þorláksson,
löggiltan fasteignasala.
Laganefnd hefur ekki lialdið
fund og skilar þvi engum tillög-
um um lagabreytingar. Þetta mál
þarf að ræða nánar á þessu
þingi. Þar sem til mála kemur
að samræma lög aðildarfélag-