Læknablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 52
172
LÆKNABLAÐIÐ
Þessi lyf þola sýru, og því er
unnt a<ð ná miklum styrldeika
í blóðvara (serum concentra-
tion) með því að gefa þau í
inntöku. Hægt er að ná meiri
styrkleika við Penicillin V-gjöf,
vegna þess að þau skiljast hæg-
ar út.
Þau liafa þó líklega minni
sýklaeyðandi áhrif en Penicillin
V, því að þau bindast meira
plasmaeggj ahvítunni (Barbe-
rol11).
Phenethicillin og Propicillin
verka nokkuð á penicillin-
ónæma klasakokka, en þó miklu
verr en Methicillin.
Hættur: Líkar og af öðrum
penicillíntegundum.
Skammtur: 250—500 mg 4
sinnum á dag. Lyfin á að gefa
nokkrum tímum fyrir eða eftir
máltíðir (Brown12), annars
verður upptakan lítil og sein.
Broxil og Ultrapen eru ódýrust
þessara lyfja. Skylt er að taka
fram, að Penicillin V er lang-
ódýrast þeirra penicillínteg-
unda, sem gefin eru sem inn-
taka.
Bendralan liefur verið notað
nokkuð á lyflæknisdeild Land-
spítalans, en um árangur er lit-
ið iiægt að dæma vegna þess,
hve tilfellin eru fá.
III.
Með því að hæla einfaldri
aminobindingu inn i benzvl-
penieillin fæst fram:
1) Ampicillin (Avi’ed13). Lyfið
er þekkt undir nöfnum sem
Penbritin (B.B.L.) og Docta-
cillin (Astra). Þetta lyf verk-
ar bæði á Gram -t- og Gram
— kokka, en ekki á klasa-
kokka, sem framleiða peni-
cillinasa. Lyfið þolir ekki
sýru, verður því að gefa það
sem stungulyf. Það verkar
líkt á Gram + kokka eins
og Penicillín V, en ná má
meiri styrkleika í blóðvara.
Lyfið befur verið gefið með
góðum árangri við þvagfæra-
og þarmasýkingum, sem orsak-
ast af B. coli og Proteus, einnig
Ilæmofilus influenzae og Ivleb-
siellalungnabólgu (Brumfitt14).
Góð verkun hefur fengizt á
Shigella Sonnei (G. T. Stew-
art15), en óvist er enn þá um
verkun þess á Salmonellasýk-
ingar.
Hættur: Líkar og af öðrum
penicillintegundum.
Skammtur: 0,5 til 1 gr 4 til
5 sinnum daglega í viku eða
lengur.
Lvfið hefur verið notað á lyf-
lækningadeild Landspítalans í
nokkrum tilfellum með góðum
árangri.
2) Alfa- amino- benzyl- peni-
cillín (S. Ross16). Þetla er
eitl nýjasta penicillínlyfið,
sem verkar hæði gegn klasa-
kokkum, sem framleiða
penicillínasa og vanalegum
Gram + og Gram — kokk-
um. Nægileg reynsla er ekki
fengin af þessu lyfi.