Læknablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 24
150
LÆKNABLAÐIÐ
sér í lagi ef tekið er tillit til þess,
að héraðslæknirinn vinnur á eigin
ábyrgð, en kandidat undir annarra
stjórn.
Læknafélag Islands mun hins veg-
ar, eins og önnur félög innan BSRB,
verða að sinni að sætta sig við
það samkomulag um skipun í
launaflokka, sem gjört hefur verið.
Stjórn L.l. vill samt minna á það
enn einu sinni, að henni þykir lækna-
kandidötum mismunað, þegar þeir
eru settir I lægri launaflokk en aðr-
ir háskólakandídatar, sem hafa 2
—3 ára styttri námstíma og virma
ekki ábyrgðarmeira starf en þeir.
Ætla má, að um það bil helming-
ur læknakandidata leggi út í sér-
nám að kandidatsstarfi loknu, og
tekur það nám a.m.k. 4 ár og er
ærið kostnaðarsamt. Enn fremur
þykir vert að minna á, að ef fyrir-
komulag héraðslæknisstarfs í stærri
kaupstöðum breytist i það horf, sem
nú er á Akureyri, flytjist héraðið
í 26. launaflokk.
Að þessu athuguðu leggur stjóm
L.l. til, að læknishéruð verði flokk-
uð sem hér segir:
26. fl.: Akureyri.
21. fl.: Hafnarfjarðarhérað, Kópa-
vogshérað, Keflavikurhérað, Akra-
neshérað.
20. fl.: Reykhólahérað, Flateyjar-
hérað, Bíldudalshérað, Suðureyr-
arhérað, Súðavíkurhérað, Djúpa-
víkurhérað, Grenivíkurhérað,
Kópaskershérað, Raufarhafnar-
hérað, Þórshafnarhérað, Norður-
Egilsstaðahérað, Austur-Egils-
staðahérað, Bakkagerðishérað,
Djúpavogshérað, Kirkjubæjarhér-
að.
19. fl.: Álafosshérað, Þingeyrarhér-
að,Flateyrarhérað,Bolungarvíkur-
hérað, Höfðahérað, Ólafsfjarðar-
hérað, Vopnafjarðarhérað, Seyðis-
fjarðarhérað, Víkurhérað.
18. fl.: Kleppjárnsreykjahérað, Búð-
ardalshérað, Isafjarðarhérað,
Hólmavíkurhérað, Hofsóshérað,
Siglufjarðarhérað, Breiðumýrar-
hérað, Eskifjarðarhérað, Búðar-
hérað, Hafnarhérað, Vestmanna-
eyjahérað, Eyrarbakkahérað.
17. fl.: Borgarneshérað, Ólafs-
víkurhérað, Stykkishólmshérað,
Hvammstangahérað, Blönduós-
hérað, Sauðárkrókshérað, Hvols-
hérað, Helluhérað, Laugaráshér-
að, Patreksfjarðarhérað, Dalvik-
urhérað, Hveragerðishérað, Húsa-
vikurhérað, Neshérað, Selfoss-
hérað.
Virðingarfyllst,
f. h. stjórnar Læknafélags Islands.
(Undirskrift.)
Til Kjararáðs BSRB.
Er nú eftir að ákveða launa-
stigann, en það er hlutverk
Kjaradóms.
Með lögum nr. 45/1962 er
héraðslæknum ætlað að taka
greiðslu fyrir læknisstörf, önn-
ur en embættisstörf, skv. samn-
ingi. Viðræður um þessi mál við
fulltrúa Tryggingastofnunar
ríkisins hófust í lok september.
Fulltrúar L.I. voru þeir Brynj-
úlfur Dagsson, Bjarni Guð-
mundsson og Ólafur P. Jóns-
son, en stjórnin var auk þeirra
viðstödd við flestar viðræðurn-
ar. Það var markmið fulltrúa
L.l. að sama greiðsla fengist um
allt land fyrir sama læknisstarf.
Um þetta varð töluvert mála-
þras, sem endaði með þvi, að
báðir aðiljar féllust á að fela
iveim mönnum að gera tillögur
um lausn á deiluatriðum, þeim
Ólafi Björnssyni f. b. L.í. og
Páli Sigurðssyni f. h. Trygginga-