Læknablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
167
til að sinna margvíslegum hugð-
arefnum sínum, svo sem tón-
list, myndlist, tungumálum og
fögrum bókmenntum. Notaði
liann hverja stund til að viða
að sér fróðleik og afla sér
menntunar á sem flestum svið-
um. Yar það hverjum þeim, sem
því kynntist, undrunarefni,
hversu afkastamikill hann var,
án þess að á honum sæist anna-
eða asamerki.
Þegar í læknadeildina kom,
þyngdist námið til mikilla
muna, vegna hins geysimikla
námsefnis, en Guðmundur hélt
uppteknum hætti og sinnti
áhugamálum sínum samfara
náminu. Jafnframt vann hann
hið einstæða afrek að ljúka
náminu á óvenjulega stuttum
tíma og með slíkum árangri, að
engum hafði áður tekizt að gera
betur. Er þetta að minni hyggju
mesta námsafrek, sem unnið
hefur verið við læknadeildina
fyrr og síðar.
Er Guðmundur tók að vinna
hin ýmsu læknisstörf á sjúkra-
deildum og í héraði eftir emh-
ættispróf, kom í ljós, að liæfi-
leikar lians náðu út yfir nám
og lærdóm. Honum var sýnt að
nota og nýta þekkingu sína, og
hæfileg sjálfsgagnrýni gerði
störf hans farsæl. Eftir kynni
mín af Guðmundi á þessum ár-
um ætla ég, að hann liafi liaft
allt það til brunns að bera, er
með þarf til mikilla afreka,
hvort heldur í hagnýtu starfi
eða á sviði vísinda.
Guðmundur kaus að leggja
stund á skurðlækningar, en
hafði áður hugleitt að lielga sig
rannsóknar- og vísindastörfum,
en að slíkum störfum hneigðist
liugur hans mjög. Er ekki að
efa, að þar hefðu hinir frjóu
liæfileikar hans notið sín vel.
Guðmundur hóf nám i heila-
skurðlækningum í Svíþjóð, en
varð fyrir vonbrigðum, þegar
hann kynntist starfinu nánar og
hætti því. Ætla ég, að starf þetta
liafi ekki átt við skapferli Guð-
mundar, sem var viðkvæmur í
lund og vildi leysa verkefni sín
til hlítar. En einnig mun liafa
komið til, að nú hafði hann
kennl sjúkdóms þess, er síðar
dró hann til dauða, og dró það
úr starfsþreki lians og orkn.
Eftir þetta starfaði hann við al-
mennar skurðlækningar með
ágætum árangri, og voru hon-
um falin Iiin vandasömustu
verkefni á því sviði, þegar svo
l^ar undir.
Auk almennra skurðlækn-
inga hugðist Guðmundur leggja
stund á sköpulagsaðgerðir
(plastikkirurgi), og kynnti hann
sér þá grein nokkuð á sjúkra-
húsum í Svíþjóð. Jafnframt
undirbjó liann rannsóknarstörf
þau, er hann hugðist leysa af
hendi og að framan er getið,
enda hafði hann ávallt í hyggju
að láta nokkuð að sér kveða á
því sviði.