Læknablaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ
3!)
uin til þess. Var það borið und-
ir atkvæði og samþykkt. Gerði
liann grein fyrir ástandinu á
Kúbu eftir nýjustu vitneskju
frá læknum, er nýlega höfðu
flúið frá landinu. Sagði hann,
að margir hefðu verið settir
þar í fangelsi af pólitískum á-
stæðum, en kjör lækna væru
yfirleitt léleg, en mjög mis-
jöfn; þeim væri mismunað eft-
ir stjóilnmálaskoðunum, sér-
staldega þeim læknum, sem
væru í praxís; einkum væri
starfandi læknum mismunað á
þann liátt að synja þeim lækn-
um, sem hefðu andstæðar
stjórnmálaskoðanir, um inn-
flutningsleyfi fyrir bifreiðum;
eingöngu væri um rússneskar
bifreiðar að ræða og þeir, sem
fengju þær ekki keyptar beinl
eftir binum venjulegu inn-
flutningsleiðum, gætu aðeins
fengið bifreiðar á mjög háu
verði; þetta gerði læknum
næstum ókleift að stunda al-
mennar lækningar, nema þeir
væru inn undir lijá stjórn-
völdunum. Taldi hann, að fær-
ustu læknarnir hefðu flestir
flúið úr landi, enda væru
starfsskilyrðin slæm. Ástand
þetta taldi hann mjög alvar-
legt, jafnt fyrir lækna og al-
þýðu manna í landinu.
Engar uinræður urðu um
þetta mál, enda var undanþág-
an veitt með því skilyrði, að
hér væri aðeins um upplýs-
ingaerindi að ræða, sem ekki
mætti byggja á neinar tillögur
eða verða undirstaða undir
umræður. Samþykkl var að
kjósa nefnd til þess að rann-
saka kjör lækna á Kúbu.
1 tilefni af skýrslu dr. Rodri-
guez kvaddi fulltrúi Mexico sér
liljóðs og gerði grein fyrir
skipulagi félagsmála lækna
þar í landi og vék nokkuð að
þeim óheppilegu atvikum, er
liann taldi þess valdandi, að
ekki reyndist unnt að halda 17.
ársþing alþjóðasamtaka lækna
í Mexico. Kom i ljós, að megin
orsökin fyrir þessu mun hafa
verið ófullnægjandi skipulag
og ósamkomulag innan lækna-
samtakanna í Mexico.
Skýrslci Norð ur-Kyrrah afs-
svæðisins var flutt af ritara
þess, dr. Jose C. Denoga.
Skýrði hann meðal annars frá
fyrirætlan ríkisstjórnar Fil-
ippseyja um endurbætur á
læknisþjónustu landsins. A-
kveðið hafði verið að byrja á
upphafinu, þ. e. a. s. menntun
lækna. Hefði rikisstjórnin sent
Iióp af læknaskólakennurum
til Bandarikjanna, sem hefðu
kvnnt sér fyrirkomulag kekna-
menntunar þar og Jieir síðan
gert allvíðtækar tillögur til
endurbóta. Þrátt fvrir mikinn
læknaskort í landinu var það
tillaga sendinefndarinnar að
fækka þeim stúdentum, sem
innritast i hina fimm lækna-
skóla landsins, þannig að ör-