Læknablaðið - 01.06.1964, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
69
verið notað í áðurnefndum til-
gangi, er meskalin. Er það ekki
ósvipað að bvggingu og ad-
renalin, adrenokrom og am-
fetamin. Meskalin hefur verið
þekkt í margar aldir og verið
notað af Indíánum í Mexico til
að komast í nánara samband
við æðri máttarvöld.
Mönnum, sem eru undir á-
hrifum meskalins, finnst t. d.
allt óeðlilega fagurt, hlutir
breyta um form og liti, þekktir
tónar liljóma öðruvisi en áður,
sérkennilegar sjónofskynjanir
gera vart við sig, og tímaskyn-
ið breytist. Mismunurinn á
geðklofnum sjúklingi og mes-
kalin-neytanda er hins vegar
mikill. M. a. er alltaf hægt að
komast í samband við meska-
lin- neytandann, sem auk þess
gerir sér grein fvrir, að bið
einkennilega ástand stafar af
lvfinu. Vegna þessa mikla mis-
munar liefur ábugi lækna á
meskalini minnkað á undan-
förnum árum, en jafnframt
hafa þeir fengið meiri áluiga
á öðrum efnum, svo sem LSD-
25 (lvsergsýrudietylamið), sem
veldur stórkostlegum ofskynj-
unum og í sumum tilfellum
miklu óráði. En þótt greini-
legur munur sé á þessu ástandi
og geðklofa, mun LSD-25 í
mjög stórum skömmtum geta
komið af stað ofskynjunum og
ranghugmyndum, sem sumir
geðklofnir sjúklingar hafa a.
m. k.
Það efni, sem vakið liefur
einna mesta forvitni lækna,
er adrenokrom, sem myndast
við niðurbrot adrenalins og
ælti þess vegna að geta fund-
izt í mannslíkamanum. Adren-
okrom gelur valdið sjúklegu
ástandi, sem er töluvert frá-
Jn-ugðið áðurnefndum efnum,
því að sá, sem tekur efnið inn,
fær auk ofskynjana raun-
verulegar ofsóknarhugmyndir.
Hafa sumir læknar því gert
sér vonir um, að þessi tegund
geðtruflana geti verið sem eins
konar fyrirmynd fyrir mynd-
un geðklofa.
Rétt er að geta þess, að í
mannslíkamanum gengur nið-
urbrotið adrenalin í gegnum
adrenokrom-stig, sem varir
reyndar örstutta stund, þannig
að aldrei finnst neitt verulegt
magn þess efnis í líkamanuni.
Sú kenning befur verið sett
fram, að truflun á adrenalin-
niðurbroti eigi sér stað hjá
þeim, sem geðklofna, þannig
að adrenokrom-stigið standi
miklu lengur yfír, svo að meira
safnist fyrir af adrenokromi í
blóðinu en eðlilegt er; hjá
sumum verði þessi truflun
ekki meiri en svo, að einkenn-
in komi aðeins fram, ef þeir
verða fyrir andlegu eða líkam-
legu álagi, sem eykur mynd-
un adrenalins.
Mér finnst rétt að minnast
á þessar efnafræðilegu (kem-
ísku) geðtruflanir; í fyrsta lagi