Læknablaðið - 01.06.1964, Blaðsíða 42
70
LÆKNABLAÐIÐ
Þorvaldur Veigar Guðmundsson:
Notkun geislajoðs (1131) við greiningu
skjaldkirtilssjúkdóma á íslandi.
Að mestu eftir erindi, sem flutt var í L. R. 13. nóv. 1963.
Nú eru liðin næstum tvö ár,
síðan mælingar á skjaldkirtils-
starfsemi með geislajoði hóf-
ust á Landspítalanum.* 1) Hinn
15. okt. sl. höfðu slíkar mæl-
ingar verið gerðar á 413 manns.
Það er því kominn tími til
þess að gera sér grein fyrir,
hvernig þetta próf reynist hér
við greiningu hvper- og hvpo-
thyroidismus.
Áður en byrjað verður á þvi,
er rétt að gera stutta grein fyr-
ir joðefnaskiptum líkamans,
mælingaraðferðum og niður-
slöðum af mælingum á heil-
brigðum fslendingum.
Joðefnaskipti.
Á mynd 1 sést í stórum drátt-
um ferð joðs um líkamann.
Kreidd örvanna á myndinni
vegna þess, að þær eru fram-
kallaðar af aminum, sem eru
náskyld þeim lyfjum, sem
sjúklingarnir, sem ég gat um
i upphafi, tóku inn, og í öðru
lagi veita þær okkur tækifæri
til að velta fyrir okkur hugsan-
legri efnafræðilegri orsök geð-
klofa, og vonandi finnast þær,
áður en langt um líður.
veitir nokkra hugmynd um
hlutföllin í dreifingu þess.
Joð ahsorherast einkum úr
mjógirninu, en lítill liluti þess
fer út með saurnum. Absorher-
að joð flyzt síðan í blóðinu
sem joðíð (I-) og dreifist
um allan millifrumuvökvann
(extracelluler) (ECV).
Á 24 klukkuslundum skiljast
út með þvagi u. þ. h. % af því
joði, sem borðað er, en skjald-
kirtillinn tekur til sín u. þ. h.
Ys hluta (1, 8). Munnvatns- og
magakirtlar skilja út örlitið af
joði.
Skjaldörvandi horrnón (TSH,
thyreotropin) frá lieiladingli
eykur joðtöku skjaldkirtilsins
og framleiðslu hans á hormóni.
í skjaldkirtlinum oxyderast
joðíð og binzt tyrosini. Frek-
ari efnabreytingar til myndun-
ar skjaldkirtilshormóns verða
ekki raktar hér. Fulhnyndað
hormón geymist í kirtlinum,
sem hluti af thvreoglohulini.
* Frá ísótópastofu Landspital-
ans. Forstöðumaður: Davíð Daviðs-
son prófessor.
i) Þegar talað er um geislajoð i
grein þessari, er alltaf átt við I131.