Læknablaðið - 01.12.1964, Síða 40
180
LÆKNABLAÐIÐ
reglugerðar um starfskjör fastra
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Jt. gr. Lausar sérfræðingastöður
skal auglýsa á sama hátt og stöð-
ur fastráðinna borgarstarfsmanna.
1 auglýsingu skal getið um áætl-
aðan vikulegan vinnutíma.
5. gr. Gagnkvæmur uppsagnar-
frestur er 3 mánuðir.
6. gr. Ef vinnutími breytist, skal
skv. kröfu L.R. eða stjórnar Heilsu-
verndarstöðvarinnar meta starfs-
tímann, þó ekki oftar en á 6 mán.
fresti. Aðilar tilnefna hvor sinn
matsmann, en verði ekki samkomu-
lag, skal dómkveðja oddamann.
Vinnutilhögun sérfræðinga þeirra,
sem nú eru í þjónustu Heilsuvernd-
arstöðvarinnar og samningur þessi
nær til, verður ekki endurskoðuð
fyrr en eftir 6 mán. frá undirskrift
samnings þessa.
7. gr. Samningur þessi tekur gildi
1/7 1963 og gildir til ársloka 1965,
en framlengist um eitt ár í senn,
sé honum ekki sagt upp með 3ja
mánaða fyrirvara miðað við árslok.
Reykjavík, 17. febrúar 1964.
F. h. Læknafélags Reykjavíkur,
með fyrirvara,
Jón Þorsteinsson (sign.)
Sigmundur Magnússon (sign.)
Guðm. Ingvi Sigurðsson (sign.).
(Samþykkt af stjórn Læknafélags
Reykjavíkur með bréfi dags. 11.
marz 1964.)
F. h. stjórnar Heilsuverndarstöðv-
arinnar, með fyrirvara,
Guttormur Erlendsson (sign.)
Hjálmar Blöndal (sign.)
Magnús Óskarsson (sign.)
(Staðfest af borgarráði með bréfi
dags. 26. febrúar 1964.)
8. Ýmis atriði varðandi gæzlu-
vaktir og yfirvinnu samkv.
Kjaradómi liafa komið til
kasta nefndarinnar, sem hef-
ur verið ósammála túlkun
skrifstofu rikisspitalanna
um útreikning hennar á á-
kveðnum atriðum. Hefur
launanefnd mótmælt frá-
drætti á gæzluvaktagreiðsl-
um vegna yfirvinnu, skipt-
ingu eftirvinnu og nætur-
vinnu, lágmarkslengd út-
kallana og útreikningi dag-
vinnutima, t. d. lijá kandí-
dötum. I undirbúningi er, að
þessu máli verði skotið til
Félagsdóms. Einnig er í ráði
að skjóta ágreiningi um ald-
urshækkanir til Félagsdóms.
Af þessu má sjá, að allmörg
atriði eru enn óútkljáð um það,
hvernig framkvæma beri það
nýja fyrirkomulag á greiðslum,
sem sett var með kjarasamningi
og Kjaradómi 1. júlí 1963.
Kjarabætur þær, er læknar
fengu með úrskurði Kjaradóms,
voru bæði hækkanir á föstum
launum fyrir dagvinnu, en þó
einkum miklar hækkanir á
greiðslum fyrir gæzluvaktir og
eftirvinnu, meðalhækkun á út-
borguðum mánaðarlaunum til
allra flokka spítalalækna befur
orðið nálega 8 þús. Meðallaun
fyrir dagvinnu voru fyrir Kjara-
dóm rúm 8 þús. á mánuði.
Um það bil 70 læknar hafa
orðið beint aðnjótandi þessara
liækkana, sem nema tæpum 100
þús. kr. í árlegum greiðslum til
livers læknis. Árlegar heildar-
greiðslur til þessa hóps lækna