Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 52
192 LÆKNABLAÐIÐ dagbl. Timinn 30. janúar s.l. við landlækni og nokkra lækna Land- spítalans. Þau nýmæli, semfelast í lagafrum- varpi um breytingu á sjúkrahúslög- um, munu til nokkurra bóta, hvað snertir framkvæmdir við nýbygging- ar sjúkrahúsa, ekki sizt utan Reykja- vikur. Hvort hin nýju lög koma að fullum notum til þess að efla rekst- ur og þjónustu sjúkrahúsanna, velt- ur mjög á framkvæmd þeirra. Eins og greiðslum til sjúkrahúsa er nú hagað, er reksturshalli þeirra óhjá- kvæmilegur, og stendur þjónustan, er þau veita, að vissu marki í beinu hlutfalli við það, hve ríkið greiðir mikið af reksturshallanum. Þegar sjúkrahúsin standa misjafnt að vígi gagnvart hinum opinberu styrkjum, getur ekki hjá því farið, að slíkt valdi misjafnri þjónustu. Þykir rétt að benda á, að þetta fyrirkomulag bitnar einkum á þeim, sem sízt eru megnugir að gæta hagsmuna sinna, þ. e. öldruðu fólki og geðsjúkling- um. Ástand það, sem lýst er i ræðu ráðherra og fram kemur í áður- nefndu blaðaviðtal við lækna, gefur ærið tilefni til íhugunar á máli, er varðar velferð íbúa þessa lands um langa framtíð. Af því tilefni viljum við vekja athygli á nokkrum atriðum, sem við teljum mjög veigamikil: 1. Viðbótarbygging við Landspital- ann hefur verið í smíðum í rúm 10 ár, og er enn engum hluta hennar lokið að fullu. 2. Ýmsar fleiri byggingar þarf að reisa í sambandi við spítalann fyrir margháttaða rannsóknar- starfsemi og þjónustu, til þess að rekstur hans geti orðið með þeim hætti, sem sjálfsagt er að stefna að. 3. Ekki kemur fram, að til sé nein heildaráætlun um skipulag, stærð eða samstarf þeirra stofnana, sem þarna eiga að vera, og því ekki heldur nákvæm áætlun um, hvenær þær skuli reisa. 4. Á skipulagsuppdrætti af Land- spítalalóðinni, sem birtist i dag- blöðum, kemur fram, að gert er ráð fyrir að reisa þar margar nýbyggingar á þröngu svæði. Augljóst er, að hagnýta verður til hins ýtrasta það takmarkaða landrými, sem þar er fyrir hendi, og varðveita útfærslumöguleika þeirra stofnana, sem gera má ráð fyrir, að mest muni þróast í framtíðinni. 5. Lauslega er áætlað, að til þess að reisa þessar byggingar burfi um 250 millj. kr., og bendir ráð- herrann réttilega á, að brýn nauðsyn sé að gera ráðstafanir til að afla fjár til þessar fram- kvæmda. 6. 1 áðurnefndu blaðaviðtali við lækna Landspítalans kemur fram nokkur óánægja með þær framkvæmdir, sem þegar hafa verið gerðar og í sumum tilvik- um jafnvel efasemdir um, að vel muni takast að leysa þau verk- efni, sem óunnin eru og þarfn- ast úrlausnar i náinni framtíð. Einnig kemur fram, að megin- hlutverk Landspítalans er að vera háskóla- og kennsluspitali fyrir læknanema, hjúkrunar- nema og ljósmæðranema, og fyrirsjáanlegt, að hann muni verða aðalstofnun þjóðarinnar í þeim efnum, þar til ibúatalan hefur komizt yfir 2 milljónir. 7. Þá er tekið fram, að menntun hérlendra lækna í framtíðinni velti mjög á því, hvernig tekst að gera Landspitalann úr garði sem háskólastofnun, en lækna- menntunin er undirstaða læknis- þjónustunnar. 8. Hér er verið að vinna að mikils-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.