Læknablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 48
188
LÆKNABLAÐIÐ
aí innflutningsgjöldum af læknabif-
reiðum og að sá afsláttur nái til
allra þeirra bifreiða, sem læknar
flytja inn á þessu ári, og verði eigi
lægri en afsláttur sá, sem leigubíl-
stjórar njóta.
Þessi tilmæli eru hér borin fram
vegna margítrekaðra óska fjöl-
margra félagsmanna. Þær óskir
styðjast við framangreind rök, en
auk þess benda læknar stöðugt á,
að vafasamt sé, að ívilnun i bif-
reiðasköttum til leigubílstjóra sé
meiri þjóðhagsleg nauðsyn en lækk-
un á verði læknabifreiða.
116. gr. laga um efnahagsmál frá
1960 er heimildarákvæði fyrir ríkis-
stjórnina að veita undanþágu frá
135% gjaldinu að einhverju eða öllu
leyti, og í skýringum við þá grein,
sem lagafrumvarpinu fylgdi, kom
greinilega í Ijós, að ríkisstjórnin
telur brýnni nauðsyn að veita leigu-
bilstjórum ívilnun í bílasköttum
heldur en læknum. Þetta hefur einn-
ig orðið svo í reynd; verður því að
líta svo á, að í þessu felist í fram-
kvæmd ákveðið mat á gildi þeirrar
þjónustu, er þessar stéttir veita
borgurunum, samkv. þeirri megin-
reglu, að vægari skattar eru lagð-
ir á atvinnutæki hinna þjóðhagslegu
þýðingarmestu framleiðslu- og þjón-
ustugreina.
Þá ber þess að geta, að veittur
hefur verið afsláttur af innflutn-
ingsgjöldum af minnstu tegundum
bifreiða til almenningsnota, en þetta
eru þær tegundir bíla, sem prakti-
serandi læknar telja yfirleitt of
veigalitlar og ótraustar til afnota
við sín störf. Kemur þessi ráðstöfun
því aðeins að gagni fyrir þá lækna,
sem minnsta bílaþörf hafa.
Um leið og við látum í ljós ánægju
okkar yfir ágætri afgreiðslu inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfa fyrir
læknabifreiðum s.l. sumar, þá ítrek-
um við þá ósk, að háttvirt ríkis-
stjórn taki til athugunar, hvort ekki
sé þjóðhagslega rétt að breyta fram-
kvæmd 16. gr. efnahagsmálafrum-
varpsins, þannig, að þjónusta lækna
verði metin að minnsta kosti til
jafns við þjónustu leigubilstjóra, og
í samræmi við það verði læknum
þá að sjálfsögðu ekki gert að greiða
hærra verð fyrir bifreiðir til sinna
starfa en leigubilstjórar gera, þegar
um samskonar bifreiðir er að ræða.
um við þá ósk, að háttvirt ríkis-
stjórn geti fallizt á þetta sjónarmið
og sjái sér fært að framkvæma það.
Virðingarfyllst,
f. h. stjórnar Læknafélags
Reykjavikur,
Arinbjörn Kolbeinsson, form.
Snorri P. Snorrason, ritari.
Stjórn félagsins átti viðræður
við fjármálaráðherra um þetta,
og lofaði hann, að málið skvldi
tekið til athugunar, en engin
skýrsla hefur horizt um þá at-
hugun enn. Teljum við sjálf-
sagt að halda þessu máli áfram
og fá opinberlega úr því skor-
ið, hvers vegna akstur fólks í
smábílum er mikilvægari fyrir
þjóðfélagið heldur en læknis-
þjónustan í landinu.
Ágreiningur vegna skilnings
á samningi um störf sérfræð-
inga á sjúkrahúsum.
Ágreiningur hefur risið milli
L.R. annars vegar og S.R. hins
vegar um skilning á samningi
um greiðslur fyrir sérfræðistörf
á sjúkrahúsum til sérfræðinga
í lyflækningum, sem eigi hafa
almenn heimilislæknisstörf.
Synjaði samlagið um endanlega