Læknablaðið - 01.12.1964, Síða 49
LÆKNABLAÐIÐ
189
afgreiðslu á reikningum þess-
um, en greiddi hins vegar við-
komandi læknum nokkra fjár-
hæð upp í reikningana.
Þar sem ókleift reyndist að
fá mál þetta afgreitt, var sam-
þykkt að leggja það í gerðar-
dóm í janúar 1964 samkvæmt
samningi milli Læknafélagsins
og Sjúkrasamlagsins. Gerðar-
dóminn skipa f. h. L.R. Bjarni
Jónsson læknir, en Guttormur
Erlendsson af hálfu S.R., en
Bjarni Bjarnason horgardómari
er oddamaður. Lögfræðingur
sá, er flytur málið fyrir liönd
L.R. fyrir dómnum, er Guðm.
Ingvi Sigurðsson. Samningi um
störf þessi hefur verið sagt upp
frá l.april, eins og öðrum samn-
ingum.
I samhandi við uppsögn
samninga við Sjúkrasamlagið
má geta þess, að í nóv. sl. sendu
fjórir læknar persónulega upp-
sögn samninga við Sjúkrasam-
lagið, þ.e.a.s. þeir vildu ekki
verða aðilar að neinum sérfræði-
samningum milli L.R. og S.R.
Er þetta í fyrsta sinn, sem slík
heimild í samningum er notuð
af sérfræðingum í L.R.
Félagsmerki o. fl.
Fyrir alllöngu var stjórninni
falið að láta gera merlci fyrir
félagið til þess að nota á hréf-
um þess og við önnur tækifæri
eftir því, sem við ætti. Á þeim
tíma þótti ekki fært að leggja
út í samkeppni um félagsmerki,
þar eð slíkt mundi verða of dýrt.
Á síðasta stjórnarfundi kom
fram sú skoðun, að félagið hefði
nú ráð á að vinna að þessu máli
á þann hátt, sem hezt mun vera,
þ.e.a.s. með því að efna til opin-
berrar samkeppni og veita verð-
laun allt að 10 þús. kr. Var sam-
þykkt að beina því til stjórnar-
innar að leita heimildar aðal-
fundar til nægilegrar fjárveit-
ingar í þessu skyni og efna sið-
an til samkeppni um félags-
merki fyrir L.R.
Samin hafa verið spjaldskrár-
form fyrir heimilislækna, og
mun S.R. dreifa spjöldunum
læknum að kostnaðarlausu.
Spjöldin eru gerð í Skýrsluvél-
um og verða tilbúin til afhend-
ingar í apríl n.k.
Þá hefur stjórn félagsins látið
gera sérstök eyðublöð fyrir um-
sóknir um inngöngu í félagið.
Er ætlun, að þar séu allar helztu
upplýsingar, sem þarf í ná-
kvæma spjaldskrá um félags-
menn. En ákveðið var að fresta
framkvæmd spjaldskrár þeirr-
ar, þar til læknalal er komið út.
Störf sjúkrahúsmálanefndar
og afskipti félagsins af sjúkra-
húsmálum.
Sjúkrahúsmálanefnd starfaði
á árinu. Formaður hennar var
Sigmundur Magnússon, en í
nefndinni voru einnig Tómas Á.
Jónasson og Þórarinn Guðna-
son. Markmið nefndarinnar var
að kynna sér núverandi ástand