Læknablaðið - 01.12.1964, Page 88
220
LÆKNABLAÐIÐ
BÓKAGJÖF
Á síðastliðnu hausti barst
Rannsóknastofu Háskólans við
Barónsstíg rífleg bókagjöf frá
Alexander von Humboldt-Stif-
tung, Bad Godesberg í Þýzka-
landi.
Er hér um að ræða tuttugu
bindi af þýzkum fræðiritum í
meinafræði og skyldum grein-
um. Frágangur bókanna og
prentun, bæði texta og mynda,
er allur hinn vandaðasti og ber
prentlist Þjóðverja gott vitni.
Er Rannsóknastofu Háskólans
mikill fengur að bókagjöf þess-
ari, en i ritunum er fjallað um
nýjustu vísindalegar niðurstöð-
ur á sviði meinafræðinnar.
Ofangreind gjöf er þannig til
komin, að einn af stj'rkþegum
Alexander von Humboldt-Stif-
tung, Hrafn Tulinius læknir,
bafði verið beðinn að benda á
stofnun í beimalandi sínu, sem
viðtakanda bókanna, en það eitl
skilyrði sett fyrir gjöfinni, að
Hrafn ætti greiðan aðgang að
bókunum, er heim kæmi. Hrafn
dvelur nú við framhaldsnám og
rannsóknir í meinafræðistofnun
M. D. Anderson Hospital, Hou-
ston, Texas.