Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 41
H eilbrigðisverkfræði notar verkfræðilegar nálganir til að leysa vandamál í læknis-
fræði og lífvísindum. Markmið heil-
brigðisverkfræði er meðal annars að
stuðla að þróun nýrra lækningatækja,
læknisfræðilegra greiningartækja,
stoðtækja, gervilíffæra og þróun
vefja og líffæra úr stofnfrumum með
vefjaverkfræði. Mörg lækningatæki
sem okkur þykja sjálfsögð í dag væru
ekki til staðar á spítölum nema vegna
heilbrigðisverkfræðinnar. Þetta eru
tæki til röngtenmyndatöku, hjarta- og
lungnavélar, sneiðmyndatæki, blóð-
skiljunartæki, tæki til að taka hjarta-
línurit og heilarit, gangráðar og ýmsir
ígræðlingar notaðir við skurðaðgerðir,
svo að nokkuð sé nefnt.
Þó svo að heilbrigðisverkfræði
sé frekar ný fræðigrein innan verk-
fræðinnar má segja að hún hafi
fylgt mannkyninu með einum eða
öðrum hætti í langan tíma. Nýlega
fundu til að mynda þýskir fornleifa-
fræðingar 3.000 ára múmíu sem var
með gervitá úr tré þar sem stóru
tána vantaði; George Washington,
fyrsti forseti BNA, var með gervi-
tennur úr tré; annar hver sjóræningi
í Karabíska hafinu
virðist hafa verið með
tréfót (ef eitthvað er
að marka bandaríska
kvikmyndagerð) og
snemma á 19. öld rúll-
aði franski læknirinn
Rene Laenec upp dag-
blaði og notaði það til
að hlusta á hjartslátt
ungrar konu, þar sem
honum þótti óviðeig-
andi að leggja kalt
eyrað á bera bringu
hennar. Það leiddi af
sér þróun hlustunar-
pípunnar.
Ein af mörgum
áhugaverðum grein-
um innan heilbrigðis-
verkfræðinnar er
vefjaverkfræði. Mark-
mið vefjaverkfræðinn-
ar er að nota verkfræðilega hugsun
til að smíða lífrænan vef og heil líf-
færi sem leyst geta af hólmi vefi og
líffæri sem verða ónothæf vegna sjúk-
dóma, hrörnunar eða áverka. Þetta
er gert með því að blanda saman
þekkingu úr læknisfræði, lífvísind-
um, efnisfræði og verk-
fræði og fá úr því nýjar
nálganir á læknisfræði-
legum vandamálum.
Háskólinn í Reykja-
vík er stærsti tæknihá-
skóli landsins og út-
skrifar nú um tvo þriðju
hluta allra þeirra sem
hljóta háskólagráðu
á tæknisviði hér á
landi. Árið 2005 hóf
Háskólinn í Reykjavík
að kenna heilbrigðis-
verkfræði til BSc-gráðu
og árið 2008 hófst slíkt
nám til MSc-gráðu við
tækni- og verkfræði-
deild skólans. Heil-
brigðisverkfræði er
vaxandi grein hvar sem
stigið er niður. Aldur-
samsetning þjóðarinn-
ar er að breytast, við lifum lengur og
munum gera sífellt meiri kröfur um
betri læknisfræðileg úrræði. Heil-
brigðisverkfræðingar munu verða
mikilvægir í því að leiða áfram þróun
slíkra læknisfræðilegra úrræða.
Heilbrigðisverkfræði
Ný en samt ævaforn grein
dr. Ólafur E. Sigurjónsson
Höfundur er með doktors-
gráðu í stofnfrumulíffræði og
ónæmisfræði, forstöðumaður
stofnfrumuvinnslu og grunn-
rannsókna í Blóðbankanum og
lektor við heilbrigðisverkfræði-
svið tækni- og verkfræðideildar
Háskólans í Reykjavík.
Öflugur greiðendavefur með
hagnýtum upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Öflugur greiðendavefur með
hagnýtum upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Þjónustuver 440 7700
www.ekkigeraekkineitt.is
Þjónustuver 440 7700
www.ekkigeraekkineitt.is
Þjónustuver 440 7700 • www.ekkigeraekkineitt.is
Þjónustuver 440 7700 • www.ekkigeraekkineitt.is
Öflugur greiðendavefur með hagnýtum
upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Öflugur greiðendavefur með
hagnýtum upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Ég fékk líka gjöf
www.soleyogfelagar.is
Merkisspjöldin frá Sóley og
félögum hægt að nálgast í IÐU
í Lækjargötu 2 og 10-11
Helgin 8.-10. apríl 2011