Læknablaðið - 01.08.1966, Qupperneq 43
LÆKNABLAÐIÐ
161
sem skrifstofan veitir, er skattlögð lítils háttar, og gagnar það mikið til
greiðslu á auknum kostnaði. Starfsemi Læknafélags íslands hefur auk-
izt mjög mikið á skrifstofunni. Hefur samvinnan milli félaganna verið
með ágætum, og tekur nú Læknafélag íslands verulegan þátt í kostnaði
við skrifstofurekstur, svo sem fram kemur í reikningum félagsins.
Ráðizt hefur verið í kaup á talsverðu af húsgögnum á skrifstofuna,
bókahillum og vélum. Deilist sá kostnaður milli beggja félaganna.
Þrátt fyrir mikinn kostnað hefur gjaldkera okkar, Tómasi Á. Jón-
assyni, tekizt að halda svo vel á málum, að reksturshagnaður nemur
nokkrum upphæðum á árinu, svo sem hann mun kynna hér á eftir.
Starfslið. Verulegur hluti hinna ýmsu framkvæmda félagsins hefur
hvílt á herðum þeirra Árna Þ. Árnasonar viðskiptafræðings,
framkvæmdastjóra L. R., og Sigfúsar Gunnlaugssonar viðskiptafræð-
ings og Guðrúnar Þórhallsdóttur, skrifstofustúlku félagsins. Hat'a þau
öll reynzt félaginu ágætustu starfskraftar og sýnt mikla ósérplægni í
starfi. Auk þess að annast ýmsar framkvæmdir hafa þeir Árni og Sigfús
setið aragrúa funda, bæði í stjórn, meðstjórn og nefndum félagsins, en
Guðrún annazt daglegan rekstur skrifstofunnar eins og áður.
Á sameiginlegum stjórnarfundi L. R. og L. í. í nóvember síðastliðn-
um var tekin ákvörðun um það að ráða framkvæmdastjóra allan dag-
inn, sem tæki að verulegu leyti að sér rekstur í samráði við stjórnir og
nefndir félaganna. Var miðað við, að framkvæmdastjórinn tækiviðfullu
starfi um það leyti, er skrifstofurnar flyttu í Domus Medica. Varð það
síðan að ráði, að Sigfús Gunnlaugsson réðst í þessa stöðu til félaganna
frá og með aðalfundi, en Árni Þ. Árnason hættir þá framkvæmdastjóra-
störfum hjá félaginu frá sama tíma. Vill stjórnin þakka Árna prýðilegt
starf. Hann hefur innleitt fjölmargar nýjungar í félagsstarfið og skipu-
lagt marga þætti félagsmála, þannig að til fyrirmyndar er. Jafnframt
bjóðum við Sigfús Gunnlaugsson velkominn til fullra starfa hjá félög-
unum.
Lögfræðileg Við allar samningagerðir félagsins, bæði í launamálum
aðstoð. og í samningum við sjúkrasamlög og Tryggingastofnun.
hefur stjórn félagsins og nefndir þess í æ ríkara mæli not-
ið aðstoðar lögfræðinga, og hefur fagþekking þeirra orðið félaginu að
ómetanlegu gagni. Svo sem á fyrra ári naut félagið aðstoðar þeirra
Benedikts Sigurjónssonar hæstaréttarlögmanns og Guðmundar Ingva
Sigurðssonar hæstaréttarlögmanns, og var verkaskipting þeirra svipuð
og áður. Benedikt Sigurjónsson var skipaður hæstaréttardómari um
síðastliðin áramót og varð því stöðu sinnar vegna að hætta öllum störf-
um hjá félaginu. Hefur Guðmundur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlög-
maður fallizt á að taka að sér þær samningagerðir, er Benedikt Sigur-
jónsson hafði áður, en til viðbótar mun Sveinn Snorrason lögfræðingur,
og félagi Guðmundar á skrifstofu, aðstoða, eftir þörfum, við samninga-
gerðir og önnur lögfræðistörf fyrir félögin.
Samstarfið við þessa lögfræðinga hefur verið með ágætum, og vill
stjórnin flytja þeim fyrir hönd félagsins hinar beztu þakkir fyrir vel
unnin störf.