Læknablaðið - 01.08.1966, Side 56
170
LÆKNABLAÐIÐ
þeir síðan hugsað sér að gefa til bókasafnsins, sem innan fárra ára á að
vera fært um að sjá þeim fyrir bókakosti, sem vinna vilja að vísinda-
störfum í sérgreininni.
Þetta framtak augnlæknanna er svo athyglisvert og svo til fyrir-
myndar, að stjórn félagsins vill eindregið hvetja önnur sérgreinafélög
innan Læknafélagsins til þess að fara sömu braut og bæði á þennan
hátt sem annan að hvetja alla félagsmenn til þess að styðja og efla
bókasafn félagsins, sem nú fær ágætt húsnæði í Domus Medica.
í lok síðasta árs barst stjórn L. R. erindi frá háls-, nef- og eyrna-
læknum, þar sem þeir óska eftir því að hætta störfum sem heimilissér-
fræðingar, en í framtíðinni að sinna störfum sínum sem aðrir sérfræð-
ingar i félaginu. Mun samninganefnd félagsins, sem hefur farið með
mál þeirra undanfarið, þegar hafa komið þessu á framfæri við Sjúkra-
samlag Reykjavíkur.
Laga- Lög Læknafélags Reykjavíkur voru síðast prentuð
breytingar. 1952. Síðan hafa á nokkrum aðalfundum verið gerðar
ýmsar minni eða stærri breytingar á lögunum, en heild-
arendurskoðun á þeim hefur ekki farið fram í mörg ár. Stjórnin ákvað
því að yfirfara lögin vandlega í þetta sinn, og liggja nú fyrir aðalfundi
tillögur, sem fela í sér ýmsar veigamiklar breytingar. Meðal þeirra má
telja, að nú verða gerðar tillögur um það, ?ð eigi megi endurkjósa aðal-
stjórn til sömu starfa tvö tímabil í röð. Gerðardómur L. R. er nú felldur
niður, þar sem ekki þykir þörf á því, að læknafélögin í landinu hafi
nema einn gerðardóm. Kaflinn um viðurlög er þyngdur nokkuð, hvaðfjár-
upphæðum nemur. Kafli um verksvið vottorðanefndar er felldur úr lög-
um, þar eð rétt þykir að láta gilda um þá nefnd sem aðrar nefndir fé-
lagsins að hafa starfssvið þeirra markað utan laga félagsins. Auk þess
eru margar smærri breytingar, settar inn fyrirsagnir fyrir einstaka
kafla og samræming gerð á máli.
Lögfræðingur félagsins hefur ásamt framkvæmdastjóra farið ræki-
lega yfir iögin, hvað þetta snertir, og er fyrirhugað að prenta lögin að
nýju að loknum þessum aðalfundi.
Lækna- Mikil röggsemi hefur verið í útgáfustarfsemi Læknablaðs-
blaðið. ins á síðastliðnu starfsári, sem lýsir sér bezt í því, að ekki
færri en þrír árgangar blaðsins voru gefnir út á árinu! Staf-
aði þetta af því, að Læknablaðið varð 50 ára á starfsárinu og leiðrétti
ritstjórn Læknablaðsins þá nokkra skekkju í árgangatalningu fyrri ára,
þar sem fyrir bar, að seinkun á útgáfu einstakra blaða truflaði rétta ár-
gangaskipan.
Nú mun útgáfustarfsemin komin í rétt horf og Læknablaðið kemur
út reglulega annan hvern mánuð.
Ritstjóraskipti urðu við blaðið á síðastliðnu ári, þar eð fyrrverandi
ritstjóri, Ólafur Bjarnason, varð formaður Læknafélags íslands. Réðu
stjórnir félaganna (L. R. og L. í.) þá Ólaf Jensson sem aðalritstjóra
blaðsins, og tók hann við starfi sínu seint á síðastliðnu ári. Vill stjórn
L. R. hér nota tækifærið og þakka dr. Ólafi Bjarnasyni vel unnin störf
við Læknablaðið á undanförnum árum.