Læknablaðið - 01.04.1968, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
55
hæpnar. Lentum við þvi stundum í stælum, sem þó voru háðar
i mesta bróðerni. En undantekning mun það hafa verið, að annar
hvor léti sannfærast. I kunningjahópi var hann glaður og reifur,
sagði oft skennntilega frá ýmsu, sem hann hafði heyrt eftir öðrum
eða lifað sjálfur, og seint mun óg gleyma lians hressilega hlátri,
þegar hann heyrði eitthvað, sem honum þótti matur í, þó að ekki
væri annað en smellin skrítla eða mergjuð ferskevtla.
Kvæntur var Pétur Jónsson Ástu Sigvaldadóttur skipstjóra
Valentínussonar frá Stykkishólmi, og lifir hún mann sinn. Var
heimili þeirra hið vistlegasta. Syni áttu þau sex barna. Af þeim
eru fimm á lífi, en elztur þeirra er Gissur augnlæknir.
Jarðarför Péturs Jónssonar fór fram frá Akureyrarkirkju hinn
16. marz, — ein hin fjölmennasta, sem þar hefur farið fram.
Helgi Slcúlason.