Læknablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
67
hefur ekki aukizt. Venjulegar rannsóknaraðferðir koma að litlum
notum við greiningu þessa sjúkdóms. Því miður er ekki unnt að
nota mælingar á vinylmöndlusýru (VMA) í þvagi lil þess að
ákvarða framleiðslu á epinephrine í líkamanum, þar eð megnið
af VMA í þvagi kemur frá norepinephrine, sem auk þess er að
mestu framleitt utan nýrnahettunnar. Epinephrine er því aðeins
örlítið hrot af VMA i þvagi.30 Einu áreiðanlegu rannsóknirnar
eru deildar mælingar á catecholaminum í þvagi og beinar ákvarð-
anir á epinephrine og norepinephrine í blóði. Þessar rannsóknir
er því miður óvíða hægt að framkvæma.
Eyjafrumuæxli og -auki í briskirtli (Pancreatic
islet-cell-adenoma og hyperplasia)
Insúlínframleiðsla getur aukizt gífurlega hjá sjúldingum með
insúlinæxli (insulinoma). Þetta æxli er mjög sjaldgæft í ung-
hörnum, en hefur þó fundizt í eins dags gömlu barni17 og einnig
í tveim hörnum l'jögurra ára og 14 mánaða.10
Tolbutamide-þolpróf er mikilvægasta rannsóknin við grein-
ingu þessa sjúkdóms, og er mælt með, að það sé gert, áður en
könnunarholskurður er framkvæmdur. Bæði blóðsykur- og insúlín-
mælingar eru notaðar til þess að ákvarða niðurstöður rannsóknar-
innar. Þetta þolpróf er gert á eftirfarandi hátt:
Eftir að tolbutamide (25 mg/kg) hefur verið sprautað hratt í
æð, eru blóðsýnishorn tekin með vissu millibili til ákvörðunar á
sykri og insúlíni. Blóðsýnishorn er tekið eftir 12 kluklcustunda
föstu, rétt áður en lvfið er gefið, og einnig strax eftir inndælinguna
og síðan eftir 1, 3, 5, 10, 20, 30, 40, 60, 90, 120 og 180 mínútur.
Stærð sjúldingsins og tæknileg vandamál geta þó komið í veg fyrir,
að hægt sé að taka svo mörg blóðsýnishorn. í slíkum tilfellum
má fækka þeim og taka blóð 1, 20, 30, 60 og 90 minútum eftir
að tolbutamide hefur verið gefið, enda eru þetta mikilvægustu
sýnishornin. Nauðsynlegt er að hafa sykurvatnsupplausn eða
glucagon lil taks, ef sjúklingurinn kynni að fá einkenni um alvar-
legan blóðsykurskort. Einnig er æskilegt að taka lieilalínurit,
meðan á þolprófinu stendur.
Ef blóðsykur er lægri en 60% af fastandi blóðsykri 20—30
mínútum eftir tolbutamide-gjöfina, er sennilegl, að sjúklingurinn
hafi insúlínæxli, og ef blóðsykur hefur ekki hækkað upp í 70%
af fastandi gildi eftir 90—180 mínútur, eru líkurnar fyrir því, að
um insúlínæxli sé að ræða, mjög sterkar.11 Insúlín í serum er
mælt með „radio-immunoassay“, og er það hæst nokkrum augna-