Læknablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
71
leiðslu fóstursins á insúlíni vegna hins háa blóðsykurs móður-
innar, svipað því sem gerist í börnum sykursjúkra mæðra.
Börn sykursjúkra mæðra
Þessi börn eru venjulega með blóðsykurskort fjórum til sex
klukkustundum eftir fæðingu. Þegar þau eru hálfs til eins sólar-
brings gömul, er blóðsykurinn venjulega kominn í eðlilegt borf.1G
Sennilega stafar Jjlóðsykurskorlur þessara barna af tímabilsbund-
inni offramlciðslu á insúlíni. Það er mjög sjaldgæft, að þessi börn
fái blóðsykurskort, eftir að þau eru sólarhrings gömul, og er
það þó gagnstætt því, sem við sjáum hjá börnum mæðra með for-
boða fæðingarkrampa. Þeim er bættast við blóðsykurskorti, þegar
þau eru eldri en eins sólarbrings gömul.
Kuldi
I Bretlandi virðist kuldi vera algeng orsök fyrir lágum blóð-
sykri í ungbörnum.24 Ástæðan er sú, að um það bil 20% af öllum
mæðrum þar fæða börn sín heima og hitun húsakynna þessara
er tíðum ábótavant. Hitaeiningaþörf barnsins í þessu kalda um-
hverfi getur aukizt svo gífurlega, að afleiðingin verði blóðsykur-
skortur.
Blóðsykurskoi'tur af ókunnum orsökum
(Ilypoglycaemia idiopathica)
Ef sjúklingurinn hefur engan af áðurnefndunx sjúkdómum, er
notað þetta sjúkdómsheiti, og játurn við þá unx leið ósigur okkar
við að finna bina raunverulegu orsök.
Eins og kenxur í ljós af því, senx hér hefur vei’ið ritað, eru
enn íxiörg verkefni fyrir lxöndum við rannsókn á blóðsykurskorti
í ungbörnum. Sambandið milli skýs á auga og blóðsykurskorts
er enn þá óljóst. Fullkomnari og nákvæmari rannsóknai-aðferðir
eru nauðsynlegar til þess að skilgreina frekar þær orsakir blóð-
sykurskorts, sem þegar eru kunnar. Mest er um vert, að flestum
læknum er nú fullljóst, að blóðsykurskortur í börnum getur leitt
til mjög alvarlegi-ar beilaskemmdar, ef sjúkdómsgreining eða
meðfei-ð tefst. Einnig er mikilvægt að miima á, að væg, almenxx
einkenni í ungbörnum, eins og máttleysi, lystarleysi, lágur likanxs-
hiti, braður eða ói’eglulegur andardráttur, breyting á litarhætti
o. s. frv., geta verið bending unx alvai'lega lágan blóðsykur. Ef