Læknablaðið - 01.04.1968, Síða 36
64
LÆKNABLAÐIÐ
augasteinninn er að mestu „anaerobiskur“ vefur. Ilann er eins
og rauðu blóðkornin fullkomlega háður blóðsykri til framleiðslu
á orku. Augasteinninn hefur einnig mjög litla möguleika til þess
að nota sér súrefni vegna þess, hvað bann inniheldur fáar mito-
chondria og hann getur ekki unnið orku beint úr amínósýrum eða
fitu. „In vitro“-rannsókir með vefjabita úr augasteinum hafa leitt
í ljós, að ef styrkleiki svkurupplausnarinnar er lækkaður úr 100
mg í 50 mg/100 ml, minnkár ATP-framleiðsla verulega, svo að
fræðilega gæli langvarandi lágur blóðsykur að minnsta kosti
valdið skýi. Samt sem áður hefur aldrei verið sannað, að um
beint samband sé að ræða.
Orsakir blóðsykurskorts í börnum
Krampi er oft fyrsta einkenni lágs blóðsykurs. Við rannsókn
á sjúklingi með krampa er auk annars nauðsynlegt að ákvarða
sykurmagn í blóði og mænuvökva. Þar sem talsverður tími getur
liðið, áður en niðurstöður af þessum rannsóknum eru kunnar,
er ráðlegt að gefa sjúklingnum sykurvatn í æð auk lyfja þeirra,
sem notuð eru við meðferð á krampaköstum (status epilepticus).
Með þessu móti er hægt að koma í veg fvrir varanlega heila-
skemmd, ef um langvarandi krampaástand er að ræða.
Blóðsykurskortur veldur aukinni myndun á vaxtarhormóni,
catecholaminum og nýrnahettuhormónum (adrenocorticostero-
id), sem öll stuðla að því að koma blóðsykrinum og meðvitund-
inni í eðlilegt liorf. Ef sýnishorn af blóði er ekki tekið, áður en
þetta verður, er ekki unnt að sanna, að krampinn liafi stafað af
blóðsykurskorti, nema mænuvökvinn sé rannsakaður. Hækkun
á sykurinnihaldi hans samsvarandi því, sem á sér stað í blóði,
gerist ekki fvrr en 50 mínútum síðar.
Mæla má blóðsykur á nokkrum andartökum með hinni svo-
nefndu Dextrostix-aðferð. Hún er mjög auðveld i framkvæmd,
þar sem aðeins þarf einn oropa af blóði lil þess að væta ræmu
af þessum Dextrostix-pappír. Blóðið er skolað af pappírnum
eftir nákvæmlega 60 sekúndur. Ef enginn litur kemur í ljós að
þeim tima liðnum, er um mjög lágan blóðsvkur að ræða.° Þó að
niðurstöður þessarar aðferðar séu ekki alltaf sainbærilegar við
þær, sem komá frá hinum nákvæmu rannsóknarstofum, er hún
engu að síður mjög gagnleg. Það ætti að vera regla að senda
sjúklinginn ekki lieim, fvrr en slík skyndirannsókn á blóðsykri
Iiefur verið framkvæmd, jafnvel þó að hann virðist hafa náð sér
fullkomlega eftir krampann.