Læknablaðið - 01.04.1968, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ
79
skrifstofuhaldið er mjög mikill, og í öðru lagi sökum þess, að starfsemi
skrifstofunnar og afköst séu ekki í samræmi við þann kostnað, sem
hún hefur í för með sér fyrir læknasamtökin. Allt frá síðastliðnu hausti
hafa verið haldnir sameiginlegir fundir stjórna L. í. og L. R. um
starfsemi skrifstofunnar og um það, á hvern hátt væri unnt að koma
henni þannig fyrir og skipuleggja hana, að hún skilaði afköstum í
samræmi við þann kostnað, sem af starfsemi hennar leiðir. Reynt
hefur verið að gera sér grein fyrir því, hver væru hin raunverulegu
verkefni skrifstofunnar og hversu mikill tími færi í flest þessara verk-
efna. Gerð hefur verið skrá yfir verkefni skrifstofunnar af gjaldkerum
félaganna í samráði við framkvæmdarstjóra læknafélaganna, og er
sú skrá birt hér:
1) Umsjá með jjármálum L. í. og L. R.:
1.1. : Innheimta félagsgjalda.
1.2. : Innheimta annarra tekna.
1.3. : Greiðslur vegna umsvifa og framkvæmda.
1.4. : Gæzla sjóða félaganna, daglegt bókhald, árlegt reiknings-
uppgjör.
2) Umsvif og framkvœmdir:
2.1. : Fræðslu- og upplýsingastarfsemi:
2.1.1. : Upplýsingar til einstaklinga.
2.1.2. : Upplýsingar til hópa.
2.1.3. : Upplýsingar til allra félagsmanna.
2.1.1. : Upplýsingar til einstaklinga:
a) ráðninga- og launakjör; stöðuauglýsingar,
b) upplýsingar um einstök taxtamál,
c) upplýsingar um skattamál,
d) upplýsingar um námskeið og fundi.
2.1.2. : Upplýsingar til hópa:
a) kjaramál og sérstakir samningar,
b) tryggingamál, einkum hóptryggingar,
c) hópsamstarf lækna o. s. frv.,
d) yfirlit um samninga; uppsögn og endurskoðun,
e) upplýsingar um námskeið og fundi,
f) upplýsingar um starfsemi námssjóða og umsjá með
rekstri þeirra,
g) aðstoð við undirbúning námskeiða og fundi,
h) aðstoð vegna funda með sjúkrasamlagi og Tryggingar-
stofnun.
2.1.3. : Upplýsingar, sem varða alla stéttina:
a) heilbrigðislöggjöf,
b) lög og Codex félaganna,
c) fundir og námskeið félaganna,
d) undirbúningur að lífeyrissjóði lækna,
e) spjaldskrár,
f) gagnasöfnun ýmiss konar.