Læknablaðið - 01.04.1968, Page 62
80
LÆKNABLAÐIÐ
2.2. : Undirbúningur og framkvæmd læknaþings, aðalfunda,
stjórnar- og nefndafunda.
2.3. : Fréttatilkynningar og fréttabréf.
2.4. : Umsjá Læknablaðsins.
2.4.1. : Auglýsingasöfnun.
2.4.2. : Innheimta og afgreiðsla.
2.5. : Umsjá með tímaritakaupum lækna.
2.6. : Tölfræðilegar athuganir á starfsaðstöðu og kjörum lækna.
2.7. : Prentun og sala vottorðaeyðublaða.
3) Ýmis önnur starfsemi:
3.1. : Innlendar og erlendar bréfaskriftir.
3.2. : Samband við íslenzka lækna erlendis.
3.3. : Samband við erlend læknafélög og W. M. A.
3.4. : Samstarf við félag læknanema.
3.5. : Samstarf við önnur félög heilbrigðisstarfsliðs.
3.6. : Fyrirgreiðsla við erlenda starfsfélaga.
3.7. : Upplýsingaþjónusta fyrir umboð.smenn erlendra fyrirtækja
og stofnana.
3.8. : Samvinna við sjálfseignarstofnunina Domus Medica.
4) Aukastörf:
4.1. : Símavarzla vegna neyðarlæknisþjónustu.
4.2. : Upplýsingar til almennings.
4.3. : Vélritunar- og ljósprentunarþjónusta til lækna.
4.4. : Afgreiðsla Ekknasjóðs, útsending minningarkorta, innheimta.
Þá hefur einnig verið reynt að kryfja það til mergjar, á hvern
hátt mætti minnka kostnað við skrifstofuhaldið, án þess að starfsemi
skrifstofunnar raskaðist eða minnkaði og sú þjónusta, sem hún veitir.
Athugun þessi hefur leitt í ljós, að fjárhagur félaganna leyfir ekki
meira en ein og hálf laun skrifstofustúlku og hálf laun framkvæmdar-
stjóra. Allan launakostnað fram yfir það verður því að greiða af verk-
efnum, sem gefa af sér tekjur.
Eftir því, sem starfsemi skrifstofunnar hefur aukizt, hefur komið
í ljós, að húsnæði það, sem hún hefur, er á margan hátt óhentugt, og
hafa þegar verið gerðar athuganir á því, á hvern hátt því verður
breytt, svo að minna ónæði verði af daglegri afgreiðslu og meiri vinnu-
friður fyrir starfsfólk skrifstofunnar.
Þá hefur einnig verið í athugun, hvort nauðsynlegt sé, að skrif-
stofan hafi með höndum öll þau verkefni, sem að framan eru talin.
Við þá athugun hefur komið í ljós, að það væri mjög óhagstætt fyrir
lækna almennt, ef eitthvað af starfsemi skrifstofunnar legðist niður.
Þó virðist sem sá hluti af starfsemi skrifstofunnar, sem fer í að taka
á móti og afhenda laun sérfræðinga og aðstoðarlækna á ríkisspítölum,
þyrfti ekki að vera jafnmikill og hann er nú. Væri jafnvel hugsanlegt,
að þessi starfsemi legðist alveg niður, nema þá gegn greiðslu, ef menn
vildu láta skrifstofuna sjá um fjáreiður og eftirlit með launagreiðslum
sínum að einhverju eða öllu leyti.