Læknablaðið - 01.04.1968, Qupperneq 83
LÆKNABLAÐIÐ
97
Fundargerð læknaþings, sem haldið var í
Domus Medica 27.-28. júlí 1967.
FYRRI DAGUR
Ólafur Bjarnason prófessor, formaður Læknafélags íslands (L.Í.),
setti þingið fimmtudaginn 27. júlí kl. 13.30.
Formaður nefndi sem fundarstjóra Tómas Helgason prófessor
fyrri daginn og Gunnlaug Snædal seinni daginn. Baldur Johnsen var
tilnefndur ritari.
Síðan var gengið til dagskrár.
Tók formaður fyrstur til máls og flutti skýringar við skýrslu
Læknafélags íslands fyrir starfsárið 1966—1967.
Þá var samþykkt að senda prófessor Meulengracht í Kaupmanna-
höfn og fyrrverandi landlækni Dana, dr. Frandsen, símskeyti í tilefni
þingsins, en þeir eru báðir heiðursfélagar Læknafélags íslands.
Þá var samþykkt að senda Bjarna Snæbjörnssyni, starfandi lækni
í Hafnarfirði, heillaóskaskeyti í tilefni 50 ára starfsafmælis hans í
Hafnarfirði.
Þessu næst var tekin til umræðu skýrsla Læknafélags íslands
fyrir starfsárið 1966—1967. Fyrst var rætt um heildarskipulag heil-
brigðismála. Ásmundur Brekkan reifaði málið. Aðrir, sem til máls
tóku, voru þeir Árni Björnsson og Arinbjörn Kolbeinsson.
Þá var rætt um stofnun Lífeyrissjóðs lækna. Arinbjörn Kolbeins-
son reifaði málið eftir áskorun frá Árna Björnssyni.
Umræðum um læknamiðstöðvar var frestað þangað til síðar á
fundinum.
Því næst var rætt um kjarasamninga lækna, og tóku til máls Ás-
mundur Brekkan og Árni Björnsson.
Bjarni Bjarnason gerði síðan grein fyrir reikningum vegna bygg-
ingar Domus Medica, en vígsla hússins hafði farið fram 3. des. 1966.
Til máls tók Arinbjörn Kolbeinsson. Læknaþingið þakkaði Bjarna
Bjarnasyni vel unnin störf með lófataki.
Þá var tekinn fyrir þriðji liður dagskrár: umræða um nýjan Codex
Ethicus. Þeir Ólafur Björnsson, Páll Gíslason og Páll Sigurðsson höfðu
samið frumvarpið milli þinga, og flutti Ólafur Björnsson framsöguræð-
una. Að lokinni framsöguræðu tóku eftirfarandi læknar til máls og
fluttu Ólafi þakkir og gerðu grein fyrir breytingartillögum: Sigmundur
Magnússon, Arinbjörn Kolbeinsson, Matthías Kjeld og Tómas Helga-
son. Enn fremur kvaddi Páll Gíslason sér hljóðs. Að lokum svaraði
Ólafur Björnsson. Þá lýsti fundarstjóri yfir, að aðalfundur myndi taka
við málinu til afgreiðslu.
Þá var tekið til að ræða um læknamiðstöðvar, og reifaði Gísli Auð-
unsson málið. Til máls tóku þeir Helgi Valdimarsson og Baldur John-
sen.