Læknablaðið - 01.04.1968, Page 94
106
LÆKNABLAÐIÐ
Auglýsing frá stjórn Lækna-
félags íslands
I Ijós hefur komið í sambandi við embættisveitingar,
að stjórn L. I. er ekki alltaf kunnugt um, hverjir
bafa sótt.
Stjórn L. L vill bcina þeim tilmælum til lækna, að
skrifstofu félagsins verði framvegis send afrit af öllum
umsóknum um stöður, svo að félagið geti fylgzt með
gangi mála.
STJÓRN
LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS.
LÆ KNABLAÐIÐ
Gefið út af Læknafélagi íslands og Læknafélagi Reykjavíkur.
Aðalritstjóri: Ölafur Jensson.
Meðritstjórar:
Magnús Ólafsson og Þorkell Jóhannesson (L. í.),
Ásmundur Brckkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L. R.)
Afgreiðsla og auglýsingar: Skrifstofa L. í. og L. R.,
Domus Medica, Egilsgötu, Reykjavík. Sími 18331.
Handrit að greinum, sem birtast eiga í Læknablaðinu, ber
að senda til aðalritstjóra, Ólafs Jenssonar læknis, Laugar-
ásvegi 3, Reykjavík. — Handrit skulu vera vélrituð, með
breiðu línubili og ríflegri spássíu (um 5 cm). Tilvitnanir
í texta skulu auðkenndar með tölustöfum ofan við línu í
lok málsgreinar (eða setningar) þannig: 1, 2, 3 o. s. frv.
Heimildaskrá skal skipa í þeirri röð, sem vitnað er til í
texta. Skal tilvitnun skráð eins og eftirfarandi dæmi sýna:
1. Cameron, R. (1958): J. clin. Path., 11, 463.
2. Sigurðsson, B. (1940): Arch. f. exp. Zellforch., 24, 72.
Eftirprentun bönnuð án leyfis ritstjórnar.
Félagsprentsmiðjan h.f.