Læknablaðið - 01.04.1968, Page 96
108
LÆKNABLAÐIÐ
Rannsóknastyrkur í Frakklandi
Læknafélag íslands hefur fengið eftirfarandi upplýsingar
frá franska sendiráðinu í Reykjavík:
Franska rannsóknarstofnunin „Institut National de la Santé
et de la Recherche Médicale“ hefur í hyggju að gefa erlend-
um vísindamönnum, sem hug hafa á rannsóknum á sviði
læknisfræði, kost á eins árs dvöl við franska rannsóknar-
stofnun. Meðan á dvölinni stendur, verða greidd laun, sem
miðast við menntun og starfsreynslu.
Umsóknir skulu hafa borizt fyrir 1. júlí ár hvert á sér-
stökum eyðublöðum, sem sendiráðið mun útvega.
Ákvörðun um umsóknir verður tekin í októbermánuði, og
er ætlazt til þess, að umsækjandi geti hafið starf hinn 1.
janúar.
Umsækjendum er frjálst að tilgreina, við hvaða stofnanir
þeir vilji starfa, en verða þá sjálfir að setja sig í samband
við yfirmann hlutaðeigandi stofnunar.
Hins vegar getur „Institut National de la Santé et de la
Recherche Médicale" tekið að sér að velja rannsóknarstofnun,
sem bezt virðist henta menntun og verksviði umsækjanda.
Frekari upplýsinga má leita hjá Monsieur la Directeur
Général de l’Institut National de la Santé et de la Recherche
Médicale — Section des Personnels Chercheurs — 3, rue Léon-
Bonnat, PARIS (XVI).