Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ
247
Þá var rædd nokkuð tillaga Þórðar Oddssonar (fsk. 5) um stofn-
un félags embættislækna, og var hún samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Þá var komið að auglýstri dagskrá.
Laga- Eftir nokkrar umræður voru allar tillögur stjórnarinnar
breytingar til lagabreytinga (fsk. 6) samþykktar samhljóða. Breyt-
ingartillaga Valgarðs Björnssonar (fsk. 7) var dregin til
baka.
Við umræður um lagabreytingar lýsti Sigmundur Magriússon
nokkrum agnúum á 9. gr. laga L.í. og lagði fyrir fundinn álitsgerð
(fsk. 8), sem hann vísaði til stjórnarinnar til athugunar fyrir næsta
aðalfund.
Tryggingamál Sigfús Gunnlaugsson framkvæmdastjóri lýsti samning-
lækna um við Hagtryggingu h.f. um hóptryggingu lækna.
Virtist tryggingin mjög hagkvæm, einkum fyrir yngri
lækna, og von til að komast að enn hagkvæmari skilmálum, þegar þátt-
taka yrði meiri. Nú þegar væru 74 læknar í tryggingu. Hvatti Sigfús
fulltrúa til að kynna trygginguna í sínum svæðafélögum.
Víkingur H. Arnórsson lýsti nánar tildrögum hóptryggingarinnar
eftir hina nýju samninga Læknafélags Reykjavíkur og stjórnarnefndar
ríkisspítalanna og kvað mesta þörf á sjúkratryggingu, en síður örorku-
tryggingu, líftryggingu eða ferðatryggingu, sem allt væri innifalið í
þessari hóptryggingu.
Formaður L.í. taldi meginhluta iðgjaldsins vera vegna sjúkra-
tryggingarinnar.
Landlæknir, Sigurður Sigurðsson, hvatti læknastéttina eindregið
til að koma tryggingamálum í gott horf, því að alltaf væri mikið vanda-
mál á ferðum, þegar slys, veikindi eða fráfall lækna bæru að höndum.
MÁL NEFNDA
Samninga- Friðrik Sveinsson skýrði frá störfum samninganefndar og
nefnd kvað nefndina litlu hafa áorkað; mætti að einhverju leyti
um kenna litlum undirbúningi vegna fráfalls Ólafs heit-
ins Björnssonar, fyrrverandi formanns nefndarinnar. Eins og í skýrslu
stjórnarinnar kæmi fram, væri helzta breytingin á gjaldskrá L.í. hækk-
un á kílómetragjaldi bifreiða úr kr. 4.50 í kr. 5.15. Þá gat Friðrik
þess, að nýr samningur væri í prentun.
Samstarfs- Sigmundur Magnússon gerði grein fyrir störfum sam-
nefnd starfsnefndar og kvað afköst ekki mikil á árinu. Nefndin
safnaði gögnum um samninga lækna við sjúkrahús og
sjúkraskýli og hafði fjallað nokkuð um mál tveggja lækna í því sam-
bandi, en annars vísað málunum til samninganefnda L.f. og L.R.
Staðgengla- Friðrik Sveinsson kvað ekkert sérstakt að segja af störf-
nefnd um nefndarinnar.