Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 79
LÆKNABLAÐIÐ
285
Fylgiskjal 20
Ályktun flutt af Arinbirni Kolbeinssyni og Friðriki Sveinssyni í tilefni
af úrsögn Ásmundar Brekkans úr stjórn L.í.
Aðalfundur L.Í., haldinn að Bifröst í Borgarfirði 22. og 23. júní
1968, flytur Ásmundi Brekkan alúðarþakkir fyrir fjölmörg ágæt störf í
stjórn félagsins og harmar, að annríki hindrar félagsstörf hans að
sinni. Þá telur fundurinn, að það fordæmi, sem Ásmundur hefur sett
með því að segja sig úr stjórn, þegar annríki hamlar eðlilegum áfram-
haldandi félagsstörfum, sé til fyrirmyndar.
Arinbjörn Kolbeinsson,
Friðrik Sveinsson.
Fylgiskj al 2 1
Tillaga Arinbjarnar Kolbeinssonar og Friðriks Sveinssonar um bygg-
ingaframkvæmdir á þaki háhýsis Domus Medica
Aðalfundur L.Í., haldinn 22. og 23. júní 1968, heimilar stjórn fé-
lagsins eftirfarandi atriði varðandi byggingaframkvæmdir á þaki há-
hýsis Domus Medica:
a) að festa kaup á byggingarétti, ef hann fæst á eðlilegu verði,
b) að gera áætlun um byggingakostnað fyrir skrifstofuhúsnæði L.í.
og L.R.,
c) að kjósa bygginganefnd og láta framkvæma byggingaframkvæmd-
ir í samvinnu við L.R. og aðra aðila innan stéttarinnar, eftir því
sem hagkvæmast reynist;
d) að skuldbinda félagið vegna þessara framkvæmda allt að 1.6
millj. kr., miðað við nothæft skrifstofuhúsnæði fyrir L.í. og L.R.
og núverandi verðlag.
Arinbjörn Kolbeinsson,
Friðrik Sveinsson.