Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
263
7. Að lokum vill nefndin benda á, að læknisaðstoð við fiskiskip um-
hverfis ísland eða á fjarlægum miðum yrði mun auðveldari, ef
tiltæk væri hér á landi langfleyg, tveggja hreyfla þyrla, sem annað-
hvort gæti veitt skipum sjúkrahjálp ein sér eða í samvinnu við
sérstök aðstoðarskip.
Pétur Sigurðsson forstjóri, Pétur Sigurösson alþm.
formaöur
Hannes Finnbogason Gunnar 1. Hafsteinsson
9. Mál frá Alþingi, a) Drög aö frumvarpi til laga um eiturefni og
sem L.í. hafa borizt liœttuleg efni
til umsagnar Nefnd var skipuð til að athuga þetta mál,
og áttu sæti í henni Snorri P. Snorrason,
Guðmundur Þórðarson og Magnús Ólafsson. Skilaði nefnd þessi áliti,
og var eftirfarandi bréf sent Alþingi varðandi þetta mál:
Reykjavík, 21. 2. 1968.
Með bréfi dags. 4. okt. 1967 hefur ráðuneytið sent Læknafélagi
íslands til umsagnar drög að frumvarpi til laga um eiturefni og hættu-
leg efni, ásamt greinargerð og drögum að reglugerðum samkvæmt því.
Stjórn Læknafélags íslands leyfir sér að gera eftirfarandi athuga-
semdir við frumvarpið:
1) Varðandi skipun eiturefnanefndar teljum við rétt, að sett séu
ákvæði um það, að jafnan eigi sæti í nefndinni a. m. k. einn maður
með læknismenntun (sbr. 2. gr.).
í því sambandi ber að hafa í huga, að megintilgangur frumvarps-
ins er sá að koma í veg fyrir heilsutjón af völdum umræddra efna.
2) Hvað snertir ákvæðin um viðtöku eiturefna, sbr. 5. gr. frum-
varpsins, viljum við leggja til, að niður yrði fellt úr 6. tölulið orðin
„í eigu ríkis eða bæjarfélaga“.
Viljum við í því sambandi benda á, að nú þegar eru starfandi
sjúkrahús og rannsóknarstofur í einkaeign, sem kunna að hafa þörf
fyrir umrædd efni engu síður en sams konar stofnanir í eigu ríkis og
bæjarfélaga, enda gerir frumvarpið ráð fyrir, að um viðurkenndar
stofnanir sé að ræða.
3) Varðandi ákvæðin um útlát eiturefna og hættulegra efna, sbr.
8. og 10. gr. frumv., teljum við rétt, að í stað orðanna „matvæli, (dýra)-
fóður eða önnur óskaðleg efni“, komi „lyf, matvæli, dýrafóður eða
önnur óskaðleg efni“.
4) Að lokum teljum við það óheppilegt, að sett sé að nokkru leyti
í vald erlendra framleiðenda og umboðsmanna þeirra hér, hvort og
hvaða (lyf og) efni, sem frumvarp þetta fjallar um, eru fáanleg hér-
lendis (sbr. 3. gr. reglugerðar, er fjallar um skráningu efna og efna-
samsetninga), enda teljum við, að þegar sé fengin óheppileg reynsla
af sams konar fyrirkomulagi varðandi innflutning lyfja.
Virðingarfyllst,
F. h. stjórnar Læknafélags íslands,
Friðrik Sveinsson, ritari.