Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
251
Arinbjörn Kolbeinsson ræddi úrsögn Ásmundar Brekkans úr
stjórn L.í. vegna annríkis hans og flutti ásamt Friðriki Sveinssyni til-
lögu til ályktunar, þar sem Ásmundi eru þökkuð fjölmörg ágæt störf í
þágu félagsins. Var ályktunin (fsk. 20) samþykkt með lófataki.
Arinbjörn Kolbeinsson og Friðrik Sveinsson fluttu tillögu um
byggingaframkvæmdir á þaki háhýsis Domus Medica (fsk. 21) og
mælti eindregið með framkvæmdum í málinu sem fyrst; tók Bjarni
Bjarnason mjög í sama streng. Páll Gíslason taldi hins vegar vafasamt
að taka svo mikilsverða ákvörðun að lítt ræddu máli, en sökum tíma-
leysis var ræðutími mjög takmarkaður. Tillaga Arinbjarnar var sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Þá var ákveðið árgjald L.í. með hliðsjón af stofnun Styrktarsjóðs
lækna kr. 5.600.00 eftir tillögum stjórnarinnar, og var það samþykkt.
Fleira lá ekki fyrir fundinum, og flutti fundarstjóri þakkarorð til
fundarmanna fyrir vel unnin störf.
Formaður, Arinbjörn Kolbeinsson, tók síðan til máls og þakkaði
fundarstjóra rösklega fundarstjór.n, riturum fyrirhöfnina og góð störf
fundarmanna. Þá þakkaði hann landlækni sérstaklega fyrir komuna
cg margar gagnlegar upplýsingar og þátttöku í umræðum. Þá þakkaði
hann formanni Félags læknanema fyrir komuna á fundinn.
Landlæknir þakkaði fyrir að fá að sitja fundinn og taldi sér ávinn-
ing og hagnað í að fylgjast með því, sem þar fór fram. ítrekaði hann,
að samskipti heilbrigðisstjórnarinnar og læknafélaganna mættu verða
meiri í framtíðinni e.n hingað til.
Að lokum sagði fundarstjóri aðalfundi Læknafélags íslands slitið
og flutti fundarmönnum boð Læknafélags Vesturlands til síðdegis-
drykkju að fundi loknum.
Fylgiskj a 1 1
ÁRSSKÝRSLA L.í. FYRIR STARFSÁRIÐ 1967—1968.
1. Inngangur Gjaldskyldir félagsmenn í L.í. eru 244. Þeir skiptast
þannig: Læknafélag Reykjavíkur 176, Læknafélag Suð-
urlands 9, Læknafélag Vesturlands 9, Læknafélag Norðvesturlands 10,
Læknafélag Vestfjarða 8, Læknafélag Akureyrar 19, Læknafélag Norð-
austurlands 4, Læknafélag Austurlands 9.
1. janúar 1968 voru læknar með íslenzkt lækningaleyfi 381, þar
af 267 á íslandi og 114 búsettir erlendis. Sérfræðingar voru 129, og
skiptast þeir niður á 29 sérgreinar. Læknakandídatar án lækninga-
leyfis voru 1. júní 1968 82, þar af starfandi á íslandi 51, erlendis 31.
2. Stjórnarfundir Alls hélt stjórn L.í. 30 fundi á starfsárinu, þar af
voru 5 sameiginlegir fundir með stjóm Læknafé-
lags Reykjavíkur. Auk aðalstjórnar hafa meðstjórnarmenn verið boð-
aðir á fundina, og hafa þeir mætt, þegar þeir hafa átt þess kost; þó