Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1969, Side 29

Læknablaðið - 01.04.1969, Side 29
LÆKNABL AÐIÐ 43 við hæfi hinna eldri, og því væri betra að hætta, áður en ellimörk gerðu vart við sig. Hann hætti þó ekki að starfa sem læknir, þótt hann fengist lítið við skurðlækningar eftir þetta. Allt fram til dauðadags starf- aði hann sem ráðgefandi skurðlæknir fvrir Kleppsspítalann. Árið 1952 var hann skipaður prófdómari við læknadeildina og var það síðan, þar til árið 1965, að hann fékk lausn frá því starfi. Læknisævi Guðmundar hefur náð yfir mjög viðburðaríkt tíma- hil í þróun handlæknisfræðinnar. Þegar hann hóf starf, var hand- læknisfræðin um það hil að vaxa úr grasi. Meiri liáttar skurð- aðgerðir, sem hafa nú um áratugi verið gerðar daglega, voru þá sjaldgæf afrek, næstum á horð við hjartaflutning nú á dögum. Þróunin upp úr fyrri heimsstyrjöldinni varð hins vegar mjög ör, en þrátt fvrir einangrun frá nágrönnum okkar tókst aðalskurð- læknum okkar, þeim Guðmundi Thoroddsen, Matthíasi Einarssyni og Halldóri Hansen, að halda vel í horfinu. Þeir munu, livað allar algengar skurðaðgerðir snerti, í engu hafa verið eftirbátar starfs- félaga sinna erlendis. Þessir þrír læknar mótuðu handlæknisfræði hér á landi um árahilið frá 1920 til 1950, og er þáttur Guðmundar Thoroddsens þar stærstur, enda hafa flestir núverandi skurðlækn- ar landsins verið nemendur hans. Eg minnist Guðmundar Thoroddsens fyrst sem kennara míns, síðar sem vfirmanns og saínstarfsmanns og sem góðs vinar. Sem kennari var Guðmundur mjög eftirminnilegur. Hann hafði ágætt vald á efninu, framsetning skýr, hlæhrigðarik, á stundum full kímni, en alltaf hógvær. Hin augljósa hæfni hans sem skurð- læknis og kennara, kímnigáfa, Ijúfmennska hans og látleysi, gerði það að verkum, að hann var eftirlæti allra stúdenta. Munu mörg þau vináttutengsl milli kennara og nemenda hafa haldizt æ síðan. Sem yfirlæknir handlæknisdeildar Landspítalans er Guðmund- ur mér einnig minnisstæður. Betri yfirmann hefði ég vart getað kosið. Hann var mjög fær skurðlæknir og farsæll í starfi. Góð þekking, róleg íhugun og dirfska að vandlega athuguðu máli voru einkennandi þættir í starfi hans. Ilann var mannþekkjari, en mildur í dómum um brevskleika annarra. Hins vegar hafði hann glöggt auga fyrir hinu skoplega og listræna hæfileika til þess að koma því á framfæri, en gætti þess ávallt að særa engan. Við, nemendur Guðmundar, minnumst hans ekki aðeins sem kennara okkar og læknis. í minningunni geymist ekki síður Ijúf- mennið, „humoristinn“ og listamaðurinn Guðmundur Thoroddsen. Snorri Hallgrímsson.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.