Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 42
54 LÆKNABLAÐIÐ UM BÆKUR Screening in medical care. Oxford University Press 1968. London, New York, Toronto. Meðal bóka, sem komu út á síðasta ári um hóprannsóknir og sjúk- dómaleit, er ofangreind bók. Hún er ritgerðasafn 18 sérfræðinga í Englandi. Formálann skrifar Cohen lávarður of Birhenhead, en Nuffield Provincial Hospital Trust stendur að útgáfunni. Höfundar ritgerðanna taka til meðferðar vandamál, sem tengd eru fjöldarannsókn við leit að tíu eftirtöldum sjúkdómum: gerlamigu (bacteruria) um meðgöngutimann, krabbameini í brjósti, legopskrabba- meini, heyrnardeyfu barna, sykursýki, gláku, járnskortsblóðleysi, phenylketonuria, berklum og blóðleysingu (hemolysis) hjá nýfæddum vegna rhesus-blóðflokka-ósamræmis. Mörgum mun koma á óvart sú niðurstaða höfunda, að einungis fjórar tegundir hinna tíu fjöldarannsókna fullnægja þei'm skilyrðum, sem þeir telja nauðsynleg til að rannsóknin sé þjónustuhæf. Rannsóknir, sem fullnægja þessum skilyrðum að dómi höfunda, eru þær, sem not- aðar eru til að finna eftirtalda sjúkdóma: berklaveiki, heyrnardeyfu hjá ungbörnum, phenylketonuria og rhesus-ósamræmi. Þá vekur og athygli, hvað þarna er sagt um þá rannsókn, sem núna er notuð í hvað stærstum mæli: leit að legopskrabbameini með frumu- skoðun. Meginástæðan til þe&s, að höfundar treysta sér ekki til að kalla þessa tegund hóprannsókna þjónustuhæfa samkvæmt þeim mælistikum, sem þeir leggja til grundvallar, er, að gátan um mikilvægi staðbundins krabbameins (carcinoma in situ cervicis) er óráðin. Þeir telja þó, að frumurannsóknir, .sem ná til mikils fjölda kvenna á ákveðnu svæði og ákveðnu tímabili, geti veitt svar við þeirri gátu. Og því er ekki heldur gleymt, að hluti þeirra meina, sem finnast með hjálp frumurannsókna, eru lítil ífarandi krabbamein. Hiklaust er unnt að mæla með þessari bók við alla þá, sem hafa áhuga á hóprannsóknum fólks í þeim tilgangi að finna sjúkdóma á byrjunarstigi. O. J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.